„Jón Trausti gerði áhrifamikla skáldsögu, sem heitir Söngva-Borga. Þar er byggt á sannsögulegum atburðum úr lífi þessarar Söngva-Borgu sem var dóttir Jón Sigmundssonar [...] og eitt átaklegasta dæmi íslandssögunnar um fórnardýr helvítiskenningarinnar gömlu.“ (Gunnar Benediktsson, Verkamaðurinn, 14. tbl., 45. árg)
Höfundar
Veislan á Grund / Jón Trausti
Hækkandi stjarna / Jón Trausti
Milljónarseðillinn / Mark Twain
Jarðarförin / Mark Twain
Bréfstuldurinn / Edgar Allan Poe
Klækir / Sigurjón Pálsson
Spennusaga sem teygir sig frá fjalllendi Afganistan alla leið heim til Íslands.
Af hverju ég er ekki kristinn / Bertrand Russell
Ást er þjófnaður / Eiríkur Örn Norðdahl
Ást er þjófnaður er safn stuttra ritgerða um höfundarétt og bókaþjófnað eftir Eirík Örn Norðdahl.
Í sjálfu sér er það ekki flóknara. Lesa meira
Brynjólfur biskup Sveinsson / Torfhildur Hólm
Skáldsaga þessi eftir Torfhildi Þ . Hólm er löngu áður útgefin, og sú útgáfa uppseld nú og ófáanleg. Var því vel gjört að gefa hana út að nýju. Fyrir sögu þessa hlaut frú Torfhildur maklegt hrós, og varð sagan einkar kær íslenzkum almenningi þótt ávalt geti verið deildar meiningar um það, hvort ýmsum persónum sögunnar sé með öllu rétt lýst, svo sem hinum lærða og mikilláta biskupi, Brynjólfi, Daða Halldórssyni, Ólafi Gíslasyni o.fl., þá er það engum vafabundið, að sagan á skilið þá vinsæld, sem hún hefir hlotið hjá íslendingum,og að hún geymir minningu höfundarins um langan aldur, eftir að sumt annað er gleymt, er nú er samið og dýrara er kveðið. (Heimskringla, 31. des. 1913, 4. bls, 14. tbl, 28.árg.)
„Veislan á Grund byggir á þeim atburðum sem urðu á bænum Grund í Eyjafirði 1362 þar sem Norðlendingar drápu óvinsælan hirðstjóra, Smið Andrésson, og lögmanninn Jón skráveifu, í Grundarbardaga.“
Hækkandi stjarna fjallar um þau feðgin Björn bónda Einarsson Jórsalafara og dóttur hans Vatnsfjarðar-Kristínu (Jón Jónsson – Skírnir, 1916).
Smásaga eftir Mark Twain um ungan bandarískan mann sem stendur óvænt uppi peningalaus á götum Lundúnaborgar.
Smásaga eftir Mark Twain sem fjallar um sérstæðar persónur í villta vestrinu.
Bréfstuldurinn eftir Edgar Allan Poe er þriðja saga hans um Dupin. Með þessum sögum varð til ný gerð af bókum – einkaspæjarasagan. Þessar sögur höfðu m.a. mikil áhrif á sögurnar um Sherlock Holmes.
Í fyrirlestrinum sem hann flutti árið 1927 færir heimspekingurinn Bertrand Russell rök gegn tilvist guðs og siðferðilegum heilindum Jesú. Árið 2006 þýddi Dr. Ívar Jónsson þennan fyrirlestur á íslensku. Nú er þýðingin fáanleg endurgjaldslaust á rafbókaformi.
Ást er þjófnaður er safn stuttra ritgerða um höfundarétt og bókaþjófnað eftir Eirík Örn Norðdahl.