Hlekkir

Netútgáfan vann frumkvöðlastarf við að koma verkum sem fallin voru úr höfundarrétti á rafrænt form. Með leyfi Sæmundar Bjarnasonar sem stjórnaði verkefninu á sínum tíma hefur Rafbókavefurinn hafið það verk að koma þeim textum í rafbókaform.

Heimskringla hýsir mikið magn af norrænum textum, þar á meðal á íslensku. Það efni mætti setja yfir á rafbókaform til að gera það aðgengilegra (alltaf skal þó geta upprunans).

Internet Archive hýsir töluvert magn af textum á íslensku. Margt af efninu hefur verið ljóslesið (texti unninn úr skönnuðu skjali) en oftast vantar mikið upp á prófarkalesturinn. Það er spennandi verkefni fyrir áhugasama.

Google Books hýsir fjölmargar bækur á íslensku og oft er hægt að hala niður heilum pdf skjölum með bókum sem komnar eru úr höfundarrétti. Það efni mætti gera aðgengilegra með því að ljóslesa það og setja upp í rafbókaformi.

Rúnatýr er íslensk útgáfa sem býður upp á nokkrar ókeypis rafbækur.

 

One thought on “Hlekkir

  1. Á Project Gutenberg má finna nokkrar rafbækur á íslensku: http://www.gutenberg.org/

    Distributed Proofreaders (http://www.pgdp.net) er áhugaverð síða. Sú síða byggist upp á „crowd-sourcing“ til að koma gömlum bókum á rafrænt form. Örfáar bækur á íslensku eru í vinnslu, en það væri gaman að sjá Íslendinga vera virkari þarna inni.

    Loks er eitthvað af íslenskum rafbókum á vefnum http://www.lestu.is/. Því miður þarf að borga fyrir flestar ef ekki allar bækurnar sem þar eru inni.

Færðu inn athugasemd

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

* Copy this password:

* Type or paste password here:

308 Spam Comments Blocked so far by Spam Free Wordpress

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>