Þriðja bréf Jóhannesar

1

Öldungurinn til hins elskaða Gajusar, sem eg elska í sannleika. 2 Þú hinn elskaði, eg bið þess, að þér vegni vel í öllum hlutum og að þú sért heill heilsu, eins og sálu þinni vegnar vel. 3 Því að eg varð harla glaður, þegar bræður komu og vitnuðu um sannleika þinn, eins og þú framgengur í sannleika. 4 Eg hefi enga meiri gleði en þá, að heyra að börnin mín framgangi í sannleikanum.

5 Þú elskaði, þú gjörir trúarverk með því, sem þú vinnur fyrir bræðurna, og það ókunna menn; 6 þeir hafa vitnað um kærleika þinn fyrir söfnuðinum, og þú gjörir vel, er þú greiðir för þeirra eins og samboðið er Guði; 7 því að fyrir sakir nafnsins eru þeir farnir af stað, og hafa við engu tekið af heiðingjunum. 8 Þess vegna ber oss að taka þvílíka menn að oss, til þess að vér verðum samverkamenn sannleikans. 9 Eg hefi ritað nokkuð til safnaðarins, en Díótrefes, sem vill vera fremstur meðal þeirra, tekur eigi við oss. 10 Þess vegna ætla eg, er eg kem, að minna á verk þau, er hann vinnur, með því að ófrægja oss með vondum orðum; og hann lætur sér ekki það nægja, heldur tekur hann ekki sjálfur á móti bræðrunum, og hindrar þá, er það vilja gjöra, og rekur þá út úr söfnuðinum. 11 Þú elskaði, breyttu ekki eftir því, sem ilt er, heldur eftir því, sem gott er. Sá sem gott gjörir, er af Guði, en sá sem ilt gjörir, hefir ekki séð Guð. 12 Demetríusi er borið gott vitni af öllum og af sannleikanum sjálfum; vér vitnum einnig, og þú veizt að vitnisburður vor er sannur.

13 Eg hefi margt að rita þér, en eg vil ekki rita þér með bleki og penna; 14 en eg vona að sjá þig bráðum, og munum við þá talast við munnlega. 15 Friður sé með þér. Vinirnir heilsa þér. Heilsa þú vinunum með nafni.