Kápuhönnun

Hugmyndin á bak við Rafbókavefinn er að setja texta sem komnir eru úr höfundarétti upp í rafbókaform sem hver sem er getur breytt eftir sínu höfði. Þannig gæti framhaldsskólakennari búið til sýna eigin útgáfu af Njálu með því að bæta við til dæmis spurningum, skýringum eða myndum.

En það er líka önnur leið til að bæta þessar rafbækur – með því að búa til á þær kápur. Ef þið hafið áhuga á að reyna ykkur við að búa til bókakápu þá tek ég framlögum ykkar fagnandi. Ég vona að þið lítið á þetta sem tækifæri til þess að takast á við þetta form.

Raunar má segja að orðið kápa sé villandi þar sem einungis er þörf á forsíðu. Það er fleira sem aðgreinir þessar kápur frá hefðbundnum bókakápum. Það má nefna að þær sjást oft ekki í fullri stærð. Í tækjunum eru þær oftast frekar smáar. Þar að auki sýna margir rafbókalesarar ekki liti (þó spjaldtölvur geri það). Það má þó gera ráð fyrir að það breytist í framtíðinni. Hins vegar er kápan áfram ákaflega mikilvæg til þess að fanga athygli mögulegra lesenda.

Kápurnar þurfa að vera í stærðinni 600px x 800px en upplausnin er 300 dpi í jpg skrá.

Hér að neðan er listi yfir rafbækur sem vantar kápur á. Til þess að tryggja að það fari ekki margir að vinna að sömu kápunni óska ég eftir því að þið skráið á ykkur þann titil (eða þá titla) sem þið viljið taka að ykkur. Þið sendið mér síðan tilbúnar kápur og ég nota þær til að búa til nýjar útgáfur af rafbókunum. Því miður er ekkert í boði annað en heiðurinn enda er Rafbókavefurinn ekki rekinn í hagnaðarskyni.

Anna frá Stóruborg / Jón Trausti
Bandamanna saga
Bárðar saga Snæfellsáss
Bjarnar saga Hítdælakappa
Borgir / Jón Trausti
Brennu-Njáls saga
Brynjólfur biskup Sveinsson / Torfhildur Hólm
Droplaugarsona saga
Egils saga
Eiríks saga rauða
Eyrbyggja saga
Finnboga saga ramma
Fljótsdæla saga
Færeyinga saga
Gamalt og nýtt / Þorgils gjallandi
Gísla saga Súrssonar
Grettis saga
Grænlendinga saga
Grænlendinga þáttur
Gunnlaugs saga Ormstunga
Harðar saga og Hólmverja
Hávarðar saga Ísfirðings
Heimskringla
Hrafnkels saga Freysgoða
Hrana saga hrings
Hænsna-Þóris saga
Kjalnesinga saga
Kormáks saga
Króka-Refs saga
Laxdæla saga
Leysing / Jón Trausti
Ljósvetninga saga
Reykdæla saga og Víga-Skútu
Upp við Fossa / Þorgils gjallandi
Valla-Ljóts saga
Vatnsdæla saga
Víga-Glúms saga
Víglundar saga
Vopnfirðinga saga
Þorsteins saga hvíta
Þorsteins saga Síðu-Hallssonar
Þórðar saga hreðu

Bókaseríur sem þyrftu samstæðar kápur
Halla / Jón Trausti
Heiðarbýlið I : Barnið / Jón Trausti
Heiðarbýlið II : Grenjaskyttan / Jón Trausti
Heiðarbýlið III : Fylgsnið / Jón Trausti
Heiðarbýlið IV : Þorradægur / Jón Trausti

Piltur og stúlka / Jón Thoroddsen
Maður og kona / Jón Thoroddsen

Bækur sem eru á leiðinni:
Flóamanna saga
Fóstbræðra saga
Gull-Þóris saga
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Hallfreðar saga vandræðaskálds (eftir Möðruvallabók)
Hallfreðar saga vandræðaskálds (Úr Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu)
Heiðarvíga saga
Svarfdæla saga

Færðu inn athugasemd

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

* Copy this password:

* Type or paste password here:

308 Spam Comments Blocked so far by Spam Free Wordpress

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>