Bréf Páls postula til Fílemons

1

Páll, bandingi Krists Jesú, og bróðirinn Tímóteus til okkar elskaða Fílemons og samverkamanns okkar, 2 og til Appíu systur okkar, og til Arkippusar samherja okkar, og til safnaðarins í húsi þínu.

3 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi.

4 Guði mínum gjöri eg ávalt þakkir, er eg minnist þín í bænum mínum, — 5 er eg heyri um kærleika þinn og trúna, sem þú hefir til drottins Jesú og til allra hinna heilögu, — 6 að samfélag trúar þinnar verði mikilvirkt fyrir Krist í þekking alls hins góða, sem með yður býr. 7 Því að eg hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefir endurnært hjörtu hinna heilögu.

8 Því er það, að þótt eg hafi fulla djörfung að bjóða þér það sem vera ber, 9 þá fer eg þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem eg er eins og eg er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú; 10 eg bið þig þá fyrir barnið mitt, sem eg hefi getið í fjötrum mínum, hann Onesímus, 11 sem áður var þér óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér; 12 einmitt hann sendi eg nú til þín aftur, og er hann hjartað í brjósti mér. 13 Feginn vildi eg hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum fagnaðarerindisins; 14 en án þíns samþykkis vildi eg ekkert gjöra, til þess að velgjörningur þinn skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja. 15 Því að vísast hefir hann þess vegna um stundarsakir skilist við þig, til þess að þú síðan skyldir eilíflega halda honum; 16 ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður, mjög kærum mér, en hve miklu fremur þó þér, bæði í holdi og í drotni. 17 Ef þú nú telur mig félagsbróður þinn, þá tak á móti honum, eins og væri eg það sjálfur. 18 En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú mér það til reiknings. 19 Eg, Páll, rita með eigin hendi: Eg mun gjalda — að eg ekki nefni við þig, að þú enda ert í skuld við mig um sjálfan þig. 20 Já, bróðir, unn mér gagns af þér í drotni, endurnær hjarta mitt í Kristi. 21 Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita eg til þín, og veit að þú munt enda gjöra fram yfir það, sem eg mælist til. 22 En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að eg vona, að eg vegna bæna yðar muni verða gefinn yður.

23 Epafras, sambandingi minn í Kristi Jesú, sendir þér kveðju, 24 og Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.

25 Náðin drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar. Amen.