Lúkasar guðspjall

1

Þar eð margir hafa tekið sér fyrir hendur að setja saman frásögu um þá atburði, er fullgjörst hafa meðal vor, 2 samkvæmt því sem þeir menn hafa sagt oss frá, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins, 3 þá hefir mér einnig litist, eftir að eg hafði rannsakað alt kostgæfilega frá upphafi, að skrásetja það í röð fyrir þig, göfugi Teófílus, 4 til þess að þú skulir þekkja áreiðanleik þeirrar kenningar, er þú hefir verið uppfræddur í.

5 Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur, að nafni Sakaría, af flokki Abía; hann átti konu af dætrum Arons og hét hún Elísabet. 6 Voru þau bæði réttlát fyrir Guði og fram gengu óaðfinnanlega eftir öllum boðum og tilskipunum drottins, 7 en þau áttu ekkert barn, því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau hnigin á efra aldur.

8 En svo bar við, er hann var að gegna prestsverkum frammi fyrir Guði, eftir röð flokks síns, 9 samkvæmt venju prestaþjónustunnar, að það varð hlutverk hans að ganga inn í musteri drottins og færa reykelsisfórn. 10 En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn, meðan á reykelsisfórninni stóð. 11 Og birtist honum þá engill drottins, standandi hægramegin við reykelsisaltarið. 12 Og er Sakaría sá hann, varð hann felmtsfullur og ótti féll yfir hann. 13 En engillinn sagði við hann: Óttast þú eigi, Sakaría, því að bæn þín er heyrð, og kona þína Elísabet mun fæða þér son, og þú skalt kalla nafn hans Jóhannes. 14 Og þér mun veitast fögnuður og gleði, og margir munu gleðjast yfir fæðingu hans; 15 því að hann mun verða mikill fyrir augliti drottins. Og vín og áfengan drykk mun hann ekki drekka, og hann mun fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi. 16 Og mörgum af Ísraels börnum mun hann snúa til drottins, Guðs þeirra. 17 Hann mun ganga fyrir augliti hans í anda og krafti Elía, til þess að snúa hjörtum feðra til barna og hinum óhlýðnu til hugarfars réttlátra, til þess að búa drotni hæfan lýð. 18 Og Sakaría sagði við engilinn: Af hverju get eg vitað þetta? Því að eg er maður gamall og kona mín er hnigin á efra aldur. 19 Og engillinn svaraði og sagði við hann: Eg er Gabríel, sem stend frammi fyrir Guði, og eg var sendur til að tala við þig og flytja þér þessi gleðitíðindi. 20 Og sjá, þú munt mállaus vera og ekki geta talað til þess dags, er þetta kemur fram, vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum, sem þó munu rætast á sínum tíma. 21 Og fólkið beið eftir Sakaría, og þeir undruðust yfir því, að honum dvaldist í musterinu. 22 En er hann kom út, gat hann ekki talað við þá, og skildu þeir þá, að hann mundi sýn séð hafa í musterinu; og hann gaf þeim bendingar, og hann var mállaus. 23 Og það varð, er dagar þjónustu hans voru fullnaðir, að hann fór heim til sín.

24 En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð, og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði: 25 Þannig hefir drottinn gjört við mig á þeim dögum, er hann leit til mín, til þess að burt taka hneisu mína meðal manna.

26 En á sétta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nazaret, 27 til meyjar, er var heitkona manns, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, og nafn meyjarinnar var María. 28 Og hann kom inn til hennar og sagði: Heil vert þú, sem nýtur mikillar náðar! Drottinn er með þér. 29 En hún skelfdist við orðið og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri. 30 Og engillinn sagði við hana: Óttast þú ekki, María, því að þú hefir fundið náð hjá Guði. 31 Og sjá, þú munt þunguð verða og fæða son; og þú skalt kalla nafn hans JESÚS. 32 Hann mun verða mikill og kallast sonur hins hæsta; og drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans, 33 og hann mun ríkja yfir húsi Jakobs að eilífu, og eigi mun endir verða á ríki hans. 34 Þá sagði María við engilinn: Hvernig mun þetta verða, þar eð eg hefi ekki karlmann kent? 35 Og engillinn svaraði og sagði við hana: Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig, og fyrir því mun einnig það, sem fæðast mun, kallast heilagt, sonur Guðs. 36 Og sjá, Elísabet, frændkona þín, einnig hún er orðin þunguð að syni í elli sinni, og þessi er hinn sétti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja; 37 því að ekkert orð frá Guði mun verða ómáttugt. 38 En María sagði: Sjá, eg er ambátt drottins; verði mér eftir orði þínu. Og engillinn fór burt frá henni.

39 Á þessum dögum tók María sig upp og fór með flýti til fjallbygðanna, til Júda-borgar nokkurrar, 40 og kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabet. 41 Og það varð, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í kviði hennar, og Elísabet fyltist heilögum anda, 42 kallaði upp með hárri röddu og mælti: Blessuð ert þú meðal kvenna, og blessaður er ávöxtur kviðar þíns. 43 Og hvaðan kemur mér þetta, að móðir drottins míns kemur til mín? 44 Því sjá, þegar rödd kveðju þinnar kom til eyrna minna, tók barnið viðbragð af gleði í kviði mér. 45 Og sæl er hún, sem trúði, því að það mun rætast, sem talað hefir verið við hana frá drotni. 46 Og María sagði:

Önd mín miklar drottin,
47 og andi minn hefir glaðst í Guði, frelsara sínum.
48 Því að hann hefir litið á lítilmótleik ambáttar sinnar;
því sjá, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því hinn voldugi hefir gjört mikla hluti við mig;
og heilagt er nafn hans.
50 Og miskunnsemi hans er frá kyni til kyns við þá sem óttast hann.
51 Hann hefir máttarverk unnið með armlegg sínum;
hann hefir stökt á dreif hinum dramblátu í hugsun hjarta þeirra.
52 Höfðingjum hefir hann hrundið úr hásætum, en hafið lítilmótlega.
53 Hungraða hefir hann fylt gæðum,
en ríka hefir hann látið tómhenta frá sér fara.
54 Hann hefir tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
til þess að minnast miskunnar
55 við Abraham og sæði hans æfinlega,
samkvæmt því sem hann talaði til feðra vorra.

56 En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín. 57 En fyrir Elísabet fullnaðist tíminn, að hún yrði léttari, og ól hún son. 58 Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, að drottinn hefði miklað miskunn sína við hana, og samfögnuðu þeir henni. 59 Og það varð á áttunda degi, að þeir komu til að umskera barnið, og þeir vildu kalla það Sakaría eftir nafni föður þess; 60 en móðir þess svaraði og sagði: Engan veginn, heldur skal það kallast Jóhannes. 61 Þá sögðu þeir við hana: Enginn er í ætt þinni, sem heitir því nafni. 62 Bentu þeir þá föður hans, hvað hann vildi að hann skyldi heita. 63 Og hann bað um spjald og reit: Jóhannes er nafn hans; og undruðust allir. 64 En þegar í stað laukst upp munnur hans og tunga, og hann talaði og lofaði Guð. 65 Og ótti kom yfir alla nágranna þeirra, og allir þessir atburðir bárust út um alla fjallbygð Júdeu. 66 Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í hjarta sér og sögðu: Hvað mun þá barn þetta verða? Því að hönd drottins var yfir honum.

67 Og Sakaría faðir hans fyltist heilögum anda og spáði og mælti:

68 Lofaður veri drottinn, Guð Ísraels;
því að hann vitjaði lýðs síns og veitti honum lausn,
69 og hann hefir upp reist oss horn hjálpræðis
í húsi Davíðs þjóns síns,
70 eins og hann talaði fyrir munn hinna helgu spámanna sinna,
er verið hafa frá upphafi,
71 frelsun frá óvinum vorum og frá hendi allra, er hata oss;
72 til að auðsýna feðrum vorum miskunn og minnast síns heilaga
sáttmála,
73 þess eiðs, er hann sór föður vorum Abraham;
74 til þess að unna oss, frelsuðum af hendi óvina vorra,
að þjóna sér óttalaust,
75 í heilagleika og réttlæti fyrir honum alla daga vora.76 Og þú, barn! spámaður hins hæsta munt þú kallast,
því að þú munt ganga fyrir augliti drottins, til að greiða götur hans,
77 og gefa lýð hans þekkingu á hjálpræðinu í fyrirgefningu synda
78 fyrir hjartgróna miskunn Guðs vors*, og við hana mun sólarupprásin af hæðum vitja vor,
79 til að lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans;
til að beina fótum vorum á friðar veg.

80 En barnið óx og styrktist í anda og var í óbygðum til þess dags, er hann gekk fram fyrir Ísrael.


2

En á þeim dögum bar svo við, að boð kom frá Ágústus keisara um að öll heimsbygðin skyldi skrásetjast. 2 Þetta var hin fyrsta skrásetning, er gjörð var þá er Kýreníus hafði völd á Sýrlandi. 3 Og fóru þá allir til að skrásetjast, hver til sinnar borgar. 4 Fór þá einnig Jósef frá Galíleu úr borginni Nazaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, því að hann var af húsi og kynþætti Davíðs, 5 til þess að verða skrásettur, ásamt Maríu heitkonu sinni, sem þá var þunguð. 6 En það varð, á meðan þau dvöldust þar, að þeir dagar fullnuðust, að hún skyldi verða léttari. 7 Og fæddi hún þá son sinn frumgetinn, og reifaði hann og lagði hann í jötu, því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsinu.

8 Og í þeirri bygð voru fjárhirðar, er voru úti og héldu náttvörð yfir hjörð sinni. 9 Og engill drottins stóð hjá þeim og dýrð drottins ljómaði í kring um þá, og urðu þeir mjög hræddir. 10 Og engillinn sagði við þá: Óttist ekki, því sjá, eg flyt yður gleðiboðskap um mikinn fögnuð, sem verða mun fyrir allan lýðinn; 11 því að í dag er yður frelsari fæddur, sem er Kristur drottinn í borg Davíðs. 12 Og þetta sé merkið fyrir yður: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu. 13 Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu:

14 Dýrð sé í upphæðum Guði,
og á jörðu friður meðal manna, sem velþóknun er á.

15 Og það varð, þá er englarnir voru farnir frá þeim til himins, að hirðarnir sögðu hver við annan: Förum þá alt til Betlehem og sjáum þennan atburð, sem orðinn er og drottinn hefir kunngjört oss. 16 Og þeir fóru með skyndi, og fundu bæði Maríu og Jósef, og ungbarnið liggjandi í jötunni. 17 En þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því orði, er talað hafði verið við þá um barn þetta. 18 Og allir, sem heyrðu, undruðust það, sem hirðarnir höfðu við þá talað. 19 En María geymdi öll þessi orð og hugleiddi þau í hjarta sínu. 20 Og hirðarnir sneru aftur og lofuðu Guð og vegsömuðu fyrir alt það, er þeir höfðu heyrt og séð, samkvæmt því sem þeim hafði sagt verið.

21 Þegar átta dagar voru fullnaðir, svo að hann yrði umskorinn, var nafn hans kallað JESÚS, sem það var kallað af englinum, áður en hann var getinn í móðurlífi.

22 En er fullnaðir voru hreinsunardagar þeirra eftir lögum Móse, fóru þau með hann til Jerúsalem, til að færa hann drotni, — 23 eins og ritað er í lögmáli drottins: Alt karlkyns, er fyrst opnar móðurlíf, skal kallast helgað drotni,24 og til þess að færa fórn, eftir því sem sagt er í lögmáli drottins, tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur. 25 Og sjá, í Jerúsalem var maður að nafni Símeon, og maður þessi var réttlátur og guðrækinn og vænti huggunar Ísraels, og heilagur andi var yfir honum. 26 Og honum hafði verið birt það af heilögum anda, að hann skyldi ekki dauðann sjá, fyr en hann hefði séð drottins smurða. 27 Og hann kom að tillaðan andans í helgidóminn, og er foreldrarnir komu inn með barnið Jesúm, til að fara með það eftir reglu lögmálsins, 28 þá tók hann það í fang sér og lofaði Guð og sagði:

29 Nú lætur þú, herra, þjóninn þinn fara, eftir orði þínu, í friði,
30 þar eð augu mín hafa séð hjálpræði þitt,
31 sem þú hefir fyrirbúið fyrir augliti allra lýða,
32 ljós til opinberunar heiðingjum og vegsemd lýðs þíns Ísraels.

33 Og faðir hans og móðir hans voru undrandi yfir því, er sagt var um hann. 34 Og Símeon blessaði þau og sagði við Maríu, móður hans: Sjá, þessi er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael, og til tákns, sem móti verður mælt, 35 og sverð mun jafnvel ganga í gegnum þína eigin sálu, — til þess að hugrenningar margra hjartna verði opinberar. 36 Og þar var Anna spákona, dóttir Fanúels af ætt Assers; hún var háöldruð og hafði lifað sjö ár með manni sínum, frá því hún var mey. 37 Og hún hafði nú verið ekkja fram að áttatíu og fjögra ára aldri. Hún veik eigi úr helgidóminum, og þjónaði Guði með föstum og bænum nótt og dag. 38 Og hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð og talaði um hann við alla, sem væntu lausnar Jerúsalem. 39 Og er þau höfðu lokið öllu, er lögmál drottins bauð, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nazaret.

40 En barnið óx og styrktist, fult vizku, og náð Guðs var yfir því.

41 Og foreldrar hans fóru ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. 42 Og þegar hann var orðinn tólf ára gamall, ferðuðust þau til Jerúsalem eftir sið hátíðarinnar. 43 Og er þau höfðu fullnað dagana, varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem, er þau sneru heimleiðis, og vissu foreldrar hans það eigi; 44 en af því að þau ætluðu, að hann væri með samferðafólkinu, fóru þau eina dagleið og leituðu að honum meðal frænda og kunningja. 45 Og er þau fundu hann ekki, sneru þau aftur til Jerúsalem og leituðu hans. 46 Og það varð eftir þrjá daga, að þau fundu hann í helgidóminum, sitjandi mitt á meðal kennaranna, bæði hlýðandi á þá og spyrjandi þá; 47 en alla, sem heyrðu til hans, furðaði á skilningi hans og andsvörum. 48 Og er þau sáu hann, urðu þau forviða; og móðir hans sagði við hann: Barn, hví breyttir þú svo við okkur? Sjá, faðir þinn og eg leituðum þín harmþrungin. 49 Og hann sagði við þau: Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í því, sem míns föður er? 50 En þau skildu ekki orð það, er hann talaði við þau. 51 Og hann fór með þeim, og kom til Nazaret, og var þeim undirgefinn. Og móðir hans geymdi öll þessi orð í hjarta sínu. 52 Og Jesús þroskaðist að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.


3

En á fimtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus hafði völd í Júdeu og Heródes var fjórðungsstjóri í Galíleu, en Filippus bróðir hans fjórðungsstjóri í héraði Ítúreu og Trakónítis, og Lýsanías fjórðungsstjóri í Abílene, 2 í æðstaprests-tíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbygðinni. 3 Og hann kom í alt bygðarlagið við Jórdan, prédikandi iðrunarskírn til syndafyrirgefningar, 4 eins og ritað er í bókinni, er inniheldur orð Jesaja spámanns: Rödd manns, er hrópar í óbygðinni: Greiðið veg drottins, gjörið beinar brautir hans. 5 Sérhver lægð skal fylllast upp, og sérhver hæð og hóll skal lækka; krókarnir skulu verða beinir og ójöfnurnar skulu verða að sléttum götum; 6 og alt hold mun sjá hjálpræði Guðs.

7 Hann sagði því við mannfjöldann, sem fór út, til að skírast af honum: Þér nöðru-afkvæmi, hver kendi yður að flýja undan komandi reiði? 8 Berið því ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: Vér eigum Abraham að föður; því eg segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 9 En öxin er og þegar lögð að rót trjánna; verður þá sérhvert tré, sem ekki ber góðan ávöxt, upphöggið og því kastað í eld. 10 Og mannfjöldinn spurði hann og sagði: Hvað eigum vér þá að gjöra? 11 En hann svaraði og sagði við þá: Sá sem hefir tvo kyrtla, skifti milli sín og þess, sem engan hefir; og sá, sem matföng hefir, fari eins að. 12 En jafnvel tollheimtumenn komu til að skírast, og þeir sögðu við hann: Meistari, hvað eigum vér að gjöra? 13 En hann sagði við þá: Krefjist ekki meira en yður er boðið. 14 En hermenn spurðu hann einnig og sögðu: Og vér, hvað eigum vér að gjöra? Og hann sagði við þá: Kúgið ekki né svíkið fé út úr neinum, og látið yður nægja mála yðar.

15 En þegar nú eftirvænting var vöknuð hjá lýðnum, og allir voru að hugsa í hjörtum sínum um Jóhannes, hvort hann kynni ekki að vera Kristur, 16 svaraði Jóhannes og sagði við alla: Eg skíri yður að vísu með vatni, en sá kemur, sem mér er mátkari, og er eg ekki verður að leysa skóþveng hans; hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi; 17 varpskófla hans er í hendi honum, til þess að hann gjörhreinsi láfa sinn og safni hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvandi eldi.

18 Og með mörgum öðrum áminningum boðaði hann lýðnum fagnaðarerindið. 19 En er Heródes fjórðungsstjóri var ávítaður af honum vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir alt hið illa, sem Heródes hafði gjört, 20 bætti hann einnig því við alt, að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi.

21 En þegar allur lýðurinn var skírður, bar svo við, er Jesús hafði einnig verið skírður og var að gjöra bæn sína, að himininn opnaðist, 22 og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: Þú ert sonur minn hinn elskaði, á þér hefi eg velþóknun.

23 Og sjálfur var Jesús hér um bil þrítugur að aldri, þegar hann byrjaði, og var, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, 24 sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs, 25 sonar Mattatías, sonar Amos, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí, 26 sonar Maats, sonar Mattatías, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda, 27 sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí, 28 sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers, 29 sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví, 30 sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms, 31 sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs, 32 sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóas, sonar Salmons, sonar Nahsons, 33 sonar Ammínadabs, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Perez, sonar Júda, 34 sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs, 35 sonar Serúks, sonar Rehú, sonar Peleks, sonar Ebers, sonar Sela, 36 sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks, 37 sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans, 38 sonar Enos, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs.


4

En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda, og var leiddur af andanum á eyðimörk 2 í fjörutíu daga og var freistaður af djöflinum; og einskis matar neytti hann þá daga, og er þeir voru liðnir, hungraði hann. 3 En djöfullinn sagði við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú steini þessum að verða að brauði. 4 Og Jesús svaraði honum: Ritað er: Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. 5 Og hann fór upp með hann og sýndi honum öll ríki heimsbygðarinnar á augabragði. 6 Og djöfullinn sagði við hann: Þér mun eg gefa alt þetta vald og dýrð þess, því að mér er það í vald gefið, og hverjum sem eg vil gef eg það. 7 Ef þú þá tilbiður frammi fyrir mér, skal það alt verða þitt. 8 Og Jesús svaraði og sagði við hann: Ritað er: Drottin, Guð þinn, átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum. 9 Og hann fór með hann til Jerúsalem og setti hann á musterisbrúnina og sagði við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér hér niður af; 10 því að ritað er: Hann mun bjóða englum sínum um þig, að gæta þín, 11 og á höndum munu þeir bera þig, til þess að þú skulir eigi steyta fót þinn við steini. 12 Jesús svaraði og sagði við hann: Það er sagt: Ekki skalt þú freista drottins, Guðs þíns. 13 Og er djöfullinn hafði lokið allri freistingu, veik hann frá honum um hríð.

14 Og Jesús sneri í krafti andans aftur til Galíleu, og orðrómur um hann barst út um öll héruðin í grend. 15 Og hann kendi í samkunduhúsum þeirra og var vegsamaður af öllum.

16 Og hann kom til Nazaret, þar sem hann hafði verið upp alinn, og gekk á hvíldardeginum, eins og hann var vanur, inn í samkunduhúsið og stóð upp til að lesa. 17 Og var honum fengin bók Jesaja spámanns; og hann fletti upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað var: 18 Andi drottins er yfir mér, vegna þess, að hann smurði mig, til að flytja fátækum gleðilegan boðskap; hann hefir sent mig, til að boða bandingjum lausn og blindum að þeir skuli aftur fá sýn, til að láta þjáða lausa, 19 til að kunngjöra hið þóknanlega ár drottins.

20 Og hann lét aftur bókina, fékk hana þjóninum og settist niður, og allir í samkunduhúsinu störðu á hann. 21 En hann tók að tala til þeirra: Í dag hefir þessi ritning ræzt fyrir eyrum yðar. 22 Og allir lofuðu hann og undruðust þau náðarorð, sem fram gengu af munni hans, og sögðu: Er ekki þessi maður sonur Jósefs? 23 Og hann sagði við þá: Vissulega munuð þér segja við mig málshátt þennan: Læknir, lækna sjálfan þig; gjör einnig hér í föðurborg þinni alt það, sem vér höfum heyrt að gjörst hafi í Kapernaum. 24 En hann sagði: Sannlega segi eg yður: enginn spámaður er vel metinn í föðurlandi sínu. 25 En eg segi yður það satt, að margar ekkjur voru í Ísrael á dögum Elía, þegar himininn var lokaður í þrjú ár og sex mánuði, þá er mikið hungur var í öllu landinu; 26 og til engra þeirra var Elía sendur, heldur aðeins til Sarepta í Sídon-landi til konu, sem var ekkja. 27 Og margir voru líkþráir í Ísrael á dögum Elísa spámanns, og enginn þeirra var hreinsaður, heldur aðeins Naaman Sýrlendingur. 28 Og allir í samkunduhúsinu fyltust reiði, er þeir heyrðu þetta, 29 og risu upp, hröktu hann út úr borginni og fóru með hann út á brún fjalls þess, sem borg þeirra var bygð á, til þess að hrinda honum niður. 30 En hann gekk burt mitt á milli þeirra og fór leiðar sinnar.

31 Og hann kom niður til Kapernaum, borgar í Galíleu, og hann kendi þeim á hvíldardögum, 32 og undruðust þeir kenningu hans; því að orð hans var með myndugleika. 33 Og í samkundunni var maður nokkur, er hafði óhreinan anda; og hann kallaði upp með hárri röddu: 34 Æ, hvað höfum vér saman við þig að sælda, Jesús frá Nazaret? Ertu kominn til að fyrirfara oss? Eg þekki, hver þú ert, hinn heilagi Guðs. 35 Og Jesús hastaði á hann og sagði: Þegi þú, og far þú út af honum. Þá hratt illi andinn honum fram á meðal þeirra, fór út af honum og hafði eigi gjört honum nokkurt mein. 36 Og felmtur kom yfir alla, og þeir töluðu hver við annan og sögðu: Hvaða orð er þetta? Því að með myndugleika og valdi skipar hann óhreinum öndum, og þeir fara út. 37 Og orðrómurinn um hann barst út til sérhvers staðar þar í grend.

38 En hann stóð upp, fór úr samkunduhúsinu og gekk inn í hús Símonar; en tengdamóðir Símonar var þungt haldin af hitasótt, og báðu þeir hann fyrir hana. 39 Og hann stóð upp yfir henni og hastaði á hitasóttina, og hvarf hún frá henni; en hún reis upp þegar í stað og þjónaði þeim.

40 Og er sól var sezt, komu allir, er höfðu menn veika af ýmiss konar sjúkdómum, með þá til hans; en hann lagði hendur yfir sérhvern þeirra og læknaði þá. 41 Illir andar fóru jafnvel út af mörgum, æptu og sögðu: Þú ert sonur Guðs. Og hann hastaði á þá og leyfði þeim ekki að tala, því að þeir vissu, að hann var Kristur.

42 En er dagur var kominn, gekk hann út og fór í eyðistað, en mannfjöldinn leitaði hans og kom til hans og reyndi að halda honum aftur, til þess að hann færi ekki frá þeim. 43 En hann sagði við þá: Mér ber og að boða hinum borgunum fagnaðarerindið um guðsríki; því að til þess var eg sendur.

44 Og hann prédikaði í samkundunum í Galíleu.


5

En svo bar við, er mannfjöldinn þrengdist að honum og hlýddi á orð Guðs, að hann stóð við Genesaretvatnið, 2 og sá hann þá tvö skip, er stóðu við vatnið, en fiskimennirnir voru farnir frá þeim og voru að þvo net sín; 3 fór hann þá út í annað skipið, sem Símon átti, og bað hann að leggja lítið eitt frá landi; settist hann þá niður og kendi mannfjöldanum af skipinu. 4 En er hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við Símon: Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskidráttar. 5 Og Símon svaraði og sagði: Meistari, í alla nótt höfum vér erfiðað og ekkert fengið; en eftir orði þínu vil eg leggja netin. 6 Og er þeir höfðu gjört þetta, innilokuðu þeir mikla mergð fiska; en net þeirra rifnuðu. 7 Og þeir bentu félögum sínum á hinu skipinu, að þeir skyldu koma og hjálpa sér; og þeir komu og fyltu þeir bæði skipin, svo að þeim lá við að sökkva. 8 En er Símon Pétur sá þetta, féll hann að knjám Jesú og sagði: Far þú frá mér, því að eg er maður syndugur, herra. 9 Því að felmtur var kominn yfir hann og alla þá, sem með honum voru, af fiskiafla þeim, sem þeir höfðu fengið; 10 eins yfir Jakob og Jóhannes Zebedeussonu, sem voru félagar Símonar. Og Jesús sagði við Símon: Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða. 11 Og þeir drógu skip sín á land, yfirgáfu alt og fylgdu honum.

12 Og svo bar við, er hann var í einni af borgunum, sjá, þar var maður yfirkominn af líkþrá; en er hann sá Jesúm, féll hann fram á ásjónu sína, bað hann og mælti: Herra, ef þú vilt getur þú hreinsað mig. 13 Og hann rétti út höndina, snart hann og mælti: Eg vil, verðir þú hreinn! og jafnskjótt hvarf líkþráin frá honum. 14 Og hann bauð honum að segja engum þetta; heldur far og sýn þig prestinum, og fær fórn fyrir hreinsun þína, eins og Móse hefir boðið, þeim til vitnisburðar. 15 En orðrómurinn um hann útbreiddist því meir, og mikill mannfjöldi kom saman, til að hlýða á hann og til þess að læknast af sjúkleikum sínum. 16 En sjálfur fór hann út í óbygðir og var þar á bæn.

17 Og svo bar við einn daginn, að hann var að kenna, og þar sátu Farísear og löglærðir, er komnir voru úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur drottins var með honum til að lækna. 18 Og sjá, menn komu, er báru á sæng lama mann, og leituðust þeir við að bera hann inn og leggja hann fram fyrir hann. 19 Og er þeir ekki vissu, hvar þeir ættu að bera hann inn, vegna mannfjöldans, fóru þeir upp á þakið, og létu hann síga með sænginni niður á milli þaksteinanna fyrir framan Jesúm. 20 Og er hann sá trú þeirra, sagði hann: Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar. 21 Þá tóku fræðimennirnir og Farísearnir að hugsa með sér og sögðu: Hver er þessi, sem talar lastmæli? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn? 22 En er Jesús skynjaði hugsanir þeirra, svaraði hann og sagði við þá: Hvað hugsið þér í hjörtum yðar? 23 Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru þér fyrirgefnar, eða að segja: Statt upp og gakk? 24 En til þess að þér skulið vita, að mannsins sonur hefir vald til að fyrirgefa syndir á jörðunni, þá sagði hann við lama manninn: Eg segi þér, statt upp og tak sæng þína og far heim til þín. 25 Og jafnskjótt reis hann upp frammi fyrir þeim, tók það, sem hann hafði legið á, og fór heim til sín, lofandi Guð. 26 Og allir urðu frá sér numdir, og vegsömuðu Guð og fyltust ótta og sögðu: Vér höfum í dag séð furðulega hluti.

27 Og eftir þetta fór hann burt og sá þá tollheimtumann, að nafni Leví, er sat hjá tollbúðinni, og sagði við hann: Fylg þú mér! 28 Og hann yfirgaf alt, stóð upp og fylgdi honum. 29 Og Leví bjó honum veizlu mikla í húsi sínu, og þar var mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra, sem sátu að borði með þeim. 30 Og Farísearnir og fræðimenn þeirra mögluðu við lærisveina hans og sögðu: Hvers vegna etið þér og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum? 31 Og Jesús svaraði og sagði við þá: Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. 32 Eg er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar. 33 En þeir sögðu við hann: Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og eru á bænum, sömuleiðis einnig lærisveinar Faríseanna, en þínir eta og drekka. 34 Jesús sagði við þá: Getið þér látið brúðkaupssveinana fasta, meðan brúðguminn er hjá þeim? 35 En dagar munu koma, og er brúðguminn verður tekinn frá þeim, þá munu þeir fasta á þeim dögum. 36 En hann sagði þeim einnig líkingu: Enginn rífur bót af nýju fati og leggur hana á gamalt fat; því að þá rífur hann nýja fatið, og bótin af hinu nýja sambýður ekki hinu gamla. 37 Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því að þá sprengir nýja vínið belgina, og það fer niður og belgirnir ónýtast. 38 Heldur ber að láta nýtt vín á nýja belgi. 39 Og enginn, sem drukkið hefir gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: hið gamla er gott.


6

En svo bar við á hvíldardegi að hann fór um sáðlönd, og tíndu þá lærisveinar hans kornöxin, neru þau með höndunum og átu. 2 En nokkurir af Faríseunum sögðu: Hví gjörið þér það, sem ekki er leyfilegt að gjöra á hvíldardögum? 3 Og Jesús svaraði og sagði við þá: Hafið þér ekki lesið það, sem Davíð gjörði, er hann varð sjálfur hungraður og menn hans? 4 hvernig hann fór inn í hús Guðs og tók skoðunarbrauðin og át, og gaf þau einnig mönnum sínum, þau sem enginn má eta nema prestarnir einir? 5 Og hann sagði við þá: Mannsins sonur er herra hvíldardagsins.

6 En á öðrum hvíldardegi bar svo við, að hann kom inn í samkunduna og kendi; og þar var maður nokkur, og var hægri hönd hans visin. 7 En fræðimennirnir og Farísearnir höfðu gætur á honum, hvort hann mundi lækna á hvíldardegi, til þess að þeir gætu fundið eitthvað að kæra hann fyrir. 8 En hann vissi hugsanir þeirra, og hann sagði við manninn, sem hafði visnu höndina: Rís upp og kom hér fram. Og hann reis upp og kom. 9 Jesús sagði við þá: Eg spyr yður, hvort er leyfilegt á hvíldardegi að gjöra gott eða gjöra ilt, að bjarga lífi eða fyrirfara því? 10 Og er hann hafði litið í kring á þá alla, sagði hann við manninn: Rétt þú fram hönd þína. Hann gjörði svo, og hönd hans varð aftur heil. 11 En þeir fyltust æði og töluðu hver við annan um, hvað þeir gætu gjört við Jesúm.

12En svo bar við um þessar mundir, að hann fór út til fjallsins, til þess að biðjast fyrir, og var alla nóttina á bæn til Guðs. 13 Og er dagur kom, kallaði hann til sín lærisveina sína og valdi tólf af þeim, sem hann einnig kallaði postula: 14 Símon, sem hann kallaði Pétur, og Andrés bróður hans, og Jakob og Jóhannes og Filippus og Bartólómeus, 15 og Matteus og Tómas, og Jakob Alfeusson og Símon, sem kallaður var vandlætari, 16 og Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot, sem varð svikari. 17 Og hann fór niður með þeim og nam staðar á sléttlendi, og var þar þá mikill hópur af lærisveinum hans og mikill fjöldi fólks úr allri Júdeu og Jerúsalem og frá sjávarbygðinni hjá Týrus og Sídon, sem komnir voru til að heyra hann og til þess að læknast af sjúkdómum sínum; 18 og þeir, er þjáðir voru af óhreinum öndum, urðu heilbrigðir, 19 og allur mannfjöldinn leitaðist við að snerta hann, því að kraftur gekk út frá honum, sem læknaði alla.

20 Og hann upplyfti augum sínum til lærisveina sinna og sagði: Sælir eruð þér, fátækir, því yðar er Guðs ríki. 21 Sælir eruð þér, sem nú líðið hungur, því að þér skuluð saddir verða. Sælir eruð þér, sem nú grátið, því að þér munuð hlæja. 22 Sælir eruð þér, er menn hatast við yður og er þeir útskúfa yður og lastmæla yður og afmá nafn yðar sem vont, vegna mannsins sonar. 23 Fagnið á þeim degi og látið gleðilátum, því sjá, laun yðar eru mikil á himnum, því á sama hátt breyttu feður þeirra við spámennina. 24 En vei yður, þér ríku, því að þér hafið úttekið huggun yðar. 25 Vei yður, þér sem nú eruð saddir, því að þér munuð hungur líða. Vei yður, sem nú hlæið, því að þér munuð sýta og gráta. 26 Vei yður, er allir menn tala vel um yður, því á sama hátt breyttu feður þeirra við falsspámennina.

27 En eg segi yður, er heyrið: elskið óvini yðar, gjörið þeim gott, sem hata yður; 28 blessið þá, sem bölva yður, og biðjið fyrir þeim, er sýna yður ójöfnuð. 29 Þeim, er slær þig á aðra kinnina, skaltu og bjóða hina; og þeim, sem tekur yfirhöfn þína, skaltu jafnvel eigi varna kyrtilsins. 30 Gef þú hverjum sem biður þig, og þann sem tekur það, sem þitt er, skaltu eigi krefja. 31 Og eins og þér viljið að mennirnir breyti við yður, eins skuluð þér og breyta við þá. 32 Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk fáið þér fyrir það? Því að bersyndugir elska einnig þá, sem þá elska. 33 Og þótt þér gjörið þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða þökk fáið þér fyrir það? Því að bersyndugir gjöra og hið sama. 34 Og þótt þér lánið þeim, sem þér búist við að fá það hjá, hvaða þökk fáið þér fyrir það? Bersyndugir lána einnig bersyndugum, til þess að þeir fái jafnmikið aftur. 35 En elskið óvini yðar, og gjörið gott og lánið, án þess að vænta nokkurs aftur, og laun yðar munu verða mikil, og þér munuð verða börn hins hæsta, því að hann er góðgjarn við vanþakkláta og vonda. 36 Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar er miskunnsamur. 37 Og dæmið ekki, þá munuð þér ekki verða dæmdir. Og sakfellið eigi og þá munuð þér eigi verða sakfeldir. Sýknið, og þá munuð þér sýknaðir verða. 38 Gefið, og þá mun yður gefið verða; góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun gefinn verða yður í skaut; því að með þeim mæli, sem þér mælið öðrum, mun yður aftur mælt verða.

39 En hann sagði þeim og líkingu: Hvort fær blindur leitt blindan? Munu þeir ekki báðir falla í gryfju? 40 Ekki er lærisveinninn yfir meistaranum, en hver sem er fullnuma, verður eins og meistari hans. 41 En hví sér þú flísina, sem er í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum, sem er í þínu eigin auga? 42 Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát þú mig draga út flísina, sem er í auga þér, þar sem þú sér ekki sjálfur bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag þú fyrst út bjálkann úr þínu auga, og þá munt þú sjá vel til að draga út flísina, sem er í auga bróður þíns. 43 Því að ekki er til gott tré, sem ber skemdan ávöxt; ekki heldur skemt tré, sem ber góðan ávöxt. 44 Því að sérhvert tré þekkist af ávexti sínum; því að ekki safna menn fíkjum af þyrnum eða uppskera vínber af þistlum. 45 Góður maður fram ber það sem gott er úr góðum sjóði hjarta síns, en illur maður fram ber það sem ilt er úr vondum sjóði; því af gnægð hjartans mælir munnur hans.

46 En hví kallið þér mig herra, herra, og gjörið ekki það sem eg segi? 47 Eg skal sýna yður, hverjum sá er líkur, sem kemur til mín og heyrir orð mín, og breytir eftir þeim; 48 hann er líkur manni, er bygði hús, gróf og fór djúpt og lagði undirstöðuna á klöpp; og er vatnsflóð kom, skall straumurinn á því húsi, en fékk hvergi hrært það, vegna þess að það var vel bygt. 49 En sá er heyrir, og gjörir ekki, hann er líkur manni þeim, er bygði hús á jörðunni án undirstöðu; straumurinn skall á því, og hrundi það þegar niður, og hrun þess húss varð mikið.


7

Þá er hann hafði fullnað öll orð sín í áheyrn lýðsins, fór hann inn í Kapernaum.

2 En þjónn hundraðshöfðingja nokkurs lá sjúkur, að fram kominn dauða, og var hann honum næsta kær. 3 Og er hann heyrði um Jesúm, sendi hann til hans öldunga Gyðinga, og bað hann að koma og bjarga þjóni sínum. 4 En þegar þeir komu til Jesú, báðu þeir hann innilega, segjandi: Verður er hann þess, að þú veitir honum þetta; 5 því að hann elskar þjóð vora, og hann hefir bygt samkunduhúsið handa oss. 6 Og Jesús fór með þeim. En er hann var þegar eigi langt frá húsinu, sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og sagði við hann: Ómaka þig ekki, herra, því að eg er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt; 7 þess vegna hefi eg ekki heldur álitið sjálfan mig verðan að koma til þín; en seg það með orði, og mun þjónn minn verða heill. 8 Því að eg er og maður yfirvaldi undirgefinn, sem hefi hermenn undir mér; og eg segi við þennan: Far þú, og hann fer, og við annan: Kom þú, og hann kemur, og við þjón minn: Gjör þú þetta, og hann gjörir það. 9 En er Jesús heyrði þetta, furðaði hann sig á honum og snerist að mannfjöldanum, sem fylgdist með honum, og mælti: Eg segi yður, ekki einu sinni í Ísrael hefi eg fundið svo mikla trú. 10 Og þeir sneru aftur heim, er sendir voru, og fundu þjóninn heilan heilsu.

11 Og skömmu síðar bar svo við, að hann fór til borgar, sem heitir Nain; voru þá í ferð með honum lærisveinar hans og mikill mannfjöldi. 12 En er hann nálgaðist borgarhliðið, sjá, þá var borinn út dauður maður, einkasonur móður sinnar, og hún var ekkja, og var mikill fjöldi úr bænum með henni. 13 Og er drottinn sá hana, kendi hann í brjósti um hana og sagði við hana: Grát þú eigi! 14 Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Og hann sagði: Ungi maður, eg segi þér, rís þú upp! 15 Og settist þá upp sá, er dauður var, og tók að mæla; og hann gaf hann móður hans. 16 En ótti greip alla; og vegsömuðu þeir Guð, segjandi: Spámaður mikill er risinn upp meðal vor, og: Guð hefir vitjað lýðs síns. 17 Og þessi fregn um hann barst út um alla Júdeu og öll héruðin þar í kring.

18 Og lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. 19 Og Jóhannes kallaði til sín tvo af lærisveinum sínum, og sendi þá til drottins og sagði: Ert þú sá sem koma á, eða eigum vér að vænta annars? 20 En þegar mennirnir voru komnir til hans, sögðu þeir: Jóhannes skírari sendi okkur til þín, segjandi: Ert þú sá sem koma á, eða eigum vér að vænta annars? 21 Á þeirri stund var hann að lækna marga af sjúkdómum og plágum og af illum öndum, og mörgum blindum gaf hann sýn. 22 Og hann svaraði og sagði við þá: Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir upprísa og fátækum er boðað fagnaðarerindi. 23 Og sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér.

24 En er sendimenn Jóhannesar voru burt farnir, fór hann að tala til mannfjöldans um Jóhannes: Hvað fóruð þér út í óbygðina að sjá? Reyr af vindi skekinn? 25 Eða hvað fóruð þér út að sjá? Mann klæddan mjúkum klæðum? Sjá, þeir, sem eru í skrautlegum búningi og lifa í sællífi, eru í konungahöllunum. 26 Eða hvað fóruð þér út að sjá? Spámann? Já, eg segi yður, jafnvel meira en spámann. 27 Hann er sá, sem ritað er um: Sjá, eg sendi sendiboða minn fyrir augliti þínu, er greiða mun veg þinn fyrir þér. 28 Eg segi yður: meðal þeirra, sem af konum eru fæddir, er enginn meiri en Jóhannes; en hinn minsti í guðsríki er honum meiri. 29 Og allur lýðurinn, sem heyrði hann, og tollheimtumennirnir réttlættu Guð, er þeir létu skírast skírn Jóhannesar. 30 En Farísearnir og lögvitringarnir ónýttu ráð Guðs þeim til handa, er þeir létu ekki skírast af honum. 31 Við hvað skal eg þá samlíkja mönnum kynslóðar þessarar, eða hverju eru þeir líkir? 32 Líkir eru þeir börnum, sem á torgi sitja og kalla hvert til annars, sem segja: Vér lékum fyrir yður á hljóðpípu, og þér dönsuðuð ekki. Vér sungum sorgarljóð, og þér grétuð ekki. 33 Því að Jóhannes skírari er kominn, og hann át ekki brauð og drakk ekki vín, og þér segið: Hann hefir illan anda. 34 Mannsins sonur er kominn, og etur og drekkur, og þér segið: Sjá, átvagl og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og syndara! 35 Og spekin réttlættist af öllum börnum sínum.

36 En einn af Faríseunum bauð honum að eta hjá sér; og hann fór inn í hús Faríseans og settist undir borð. 37 En sjá, þar í bænum var kona nokkur bersyndug; og þegar hún varð þess vís, að hann sat yfir borðum í húsi Faríseans, kom hún með alabastursbuðk með smyrslum, 38 stóð fyrir aftan við fætur hans grátandi, og tók til að væta fætur hans með tárum sínum og þerraði þá með höfuðhári sínu, kysti fætur hans og smurði þá með smyrslunum. 39 En er Faríseinn, sem honum hafði boðið, sá þetta, talaði hann við sjálfan sig og sagði: Væri þessi maður spámaður, þá vissi hann, hver og hvers konar kona það er, sem snertir hann, að hún er bersyndug. 40 Og Jesús svaraði og sagði við hann: Símon, eg hefi nokkuð að segja þér. Og hann mælti: Seg þú það, meistari. 41 Lánardrottinn nokkur átti tvo skuldunauta; annar þeirra skuldaði honum fimm hundruð denara, en hinn fimtíu. 42 Nú er þeir áttu ekkert til að borga með, gaf hann þeim báðum upp. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira? 43 Símon svaraði og sagði: Eg hygg, sá sem hann gaf meira upp. En hann sagði við hann: Þú ályktaðir rétt. 44 Og hann sneri sér síðan að konunni og sagði við Símon: Sér þú konu þessa? Eg kom í hús þitt, og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína, en hún vætti fætur mína með tárum sínum og þerraði þá með hári sínu. 45 Þú gafst mér ekki koss, en frá því eg kom inn hefir hún ekki látið af að kyssa fætur mína. 46 Ekki smurðir þú höfuð mitt með olíu, en hún hefir smurt fætur mína með smyrslum. 47 Þess vegna segi eg þér: hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar, með því að hún elskaði mikið; en sá, sem lítið er fyrirgefið, hann elskar lítið. 48 En hann sagði við hana: Syndir þínar eru fyrirgefnar. 49 Og þeir, sem til borðs sátu með honum, tóku að segja með sjálfum sér: Hver er þessi maður, sem jafnvel fyrirgefur syndir? 50 En hann sagði við konuna: Trú þín hefir frelsað þig; far þú í friði.


8

Og svo bar við skömmu síðar, að hann fór um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikandi og boðandi fagnaðarerindi guðsríkis, og með honum þeir tólf 2 og konur nokkurar, er læknaðar höfðu verið af illum öndum og sjúkleikum: María, kölluð Magdalena, er sjö illir andar höfðu farið út frá, 3 og Jóhanna, kona Kúsa, ráðsmanns Heródesar, og Súsanna og margar aðrar, sem hjálpuðu þeim með fjármunum sínum.

4 En er mikill mannfjöldi var saman kominn, og þeir fóru út til hans úr hverri borg, sagði hann í dæmisögu: 5 Sáðmaður fór út að sá sæði sínu; og er hann var að sá, féll sumt sæðið við götuna og varð fótum troðið, og fuglar himinsins átu það upp. 6 Og annað féll á klöpp, og er það óx, skrælnaði það, af því að það hafði ekki vökva. 7 Og annað féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu upp með og kæfðu það. 8 Og annað féll í góðu jörðina, og það óx upp og bar hundraðfaldan ávöxt. Þegar hann sagði þetta, kallaði hann hátt: Hver sem eyru hefir að heyra, hann heyri.

9 En lærisveinar hans spurðu hann, hvað þessi dæmisaga ætti að þýða. 10 En hann sagði: Yður er gefið að þekkja leyndardóma guðsríkis; en hinum öðrum í dæmisögum, til þess að sjáandi sjái þeir ekki og heyrandi skilji þeir ekki. 11 En dæmisagan þýðir þetta: Sæðið er orð Guðs; 12 en þeir við götuna eru þeir, sem hafa heyrt; síðan kemur djöfullinn og tekur orðið burt úr hjarta þeirra, til þess að þeir skuli ekki trúa og verða hólpnir. 13 En þeir á klöppinni eru þeir, sem taka við orðinu með fögnuði, er þeir hafa heyrt; en þessir hafa ekki rót, þeir er trúa um stund og falla frá á reynslutíma. 14 En það, er féll meðal þyrna, það eru þeir sem hafa heyrt, og þeir fara og kefjast í áhyggjum og auðæfum og munaði lífsins, og bera ekki þroskaðan ávöxt. 15 En það í góðu jörðinni, það eru þeir, sem heyrt hafa, geyma orðið í vönduðu og góðu hjarta, og bera ávöxt með stöðuglyndi.

16 En enginn, sem kveikt hefir ljós, hylur það með keri, eða setur það undir bekk, heldur setja menn það í ljósastiku, til þess að þeir, sem inn koma, sjái ljósið. 17 Því að ekkert er leynt, sem ekki muni verða opinbert, né nokkuð hulið, sem ekki verði kunnugt og komi í ljós. 18 Gætið þess því, hvernig þér heyrið; því að sá sem hefir, honum mun gefið verða; og sá sem ekki hefir, frá honum mun tekið verða einnig það, sem hann ætlar sig hafa.

19 En móðir hans og bræður komu til hans, og þau gátu ekki náð fundi hans vegna mannfjöldans. 20 En honum var sagt: Móðir þín og bræður þínir standa fyrir utan og vilja finna þig. 21 En hann svaraði og sagði við þá: Móðir mín og bræður mínir eru þessir, sem heyra Guðs orð og gjöra það.

22 En svo bar við einn daginn, að hann steig sjálfur á skip og lærisveinar hans; og hann sagði við þá: Förum til landsins hinumegin við vatnið. Og þeir létu frá landi. 23 En er þeir voru á siglingunni, sofnaði hann. Þá sló stormhrinu niður á vatnið, svo að fylti hjá þeim, og voru þeir hætt komnir. 24 Þeir fóru þá til hans, vöktu hann og sögðu: Meistari, meistari! vér förumst. En hann vaknaði, hastaði á storminn og ölduganginn, svo að hann sefaðist, og það varð logn. 25 Og hann sagði við þá: Hvar er trú yðar? En þeir urðu hræddir og undruðust þetta, og sögðu hver við annan: Hver er þá þessi, að hann jafnvel skipar vindum og vatni, og það hlýðir honum?

26 Og þeir lentu við hérað Gerasena, sem liggur hinumegin gagnvart Galíleu. 27 En er hann steig á land, kom á móti honum maður nokkur úr borginni, sem hafði illan anda; og langan tíma hafði hann ekki verið í fötum, og hafðist ekki við í húsum, heldur í gröfunum. 28 En er hann sá Jesúm, æpti hann, féll fram fyrir hann og sagði með hárri raustu: Hvað höfum við saman að sælda, Jesú, sonur hins æðsta Guðs? Eg bið þig, kvel þú mig ekki! 29 Því að hann bauð hinum óhreina anda að fara út af manninum. Því að í langa tíma hafði hann dregið hann með sér; og hann hafði verið bundinn hlekkjum og fótfjötrum og hafður í gæzlu, og hann hafði slitið fótfjötrana og verið rekinn af illa andanum í óbygðir. 30 En Jesús spurði hann: Hvað er nafn þitt? En hann sagði: Legíó; því að margir illir andar höfðu farið inn í hann. 31 Og þeir báðu hann að skipa sér ekki að fara í undirdjúpið. 32 En þar var stór svínahjörð á beit í fjallinu, og þeir báðu hann að leyfa sér að fara í þau, og leyfði hann þeim það. 33 En illu andarnir fóru út af manninum og fóru í svínin, og hjörðin steyptist niður fyrir þvergnípið í vatnið og kafnaði. 34 En er hirðarnir sáu það sem orðið var, flýðu þeir og fluttu fregnina til borgarinnar og bygðanna. 35 En menn fóru út að sjá þennan atburð, og komu til Jesú og fundu manninn, er illu andarnir höfðu farið út af, sitjandi klæddan og heilvita við fætur Jesú, og urðu þeir mjög óttaslegnir. 36 En þeir, sem séð höfðu þetta, sögðu þeim frá, hvernig sá, er illu andarnir voru í, hafði orðið heill. 37 Og alt fólkið í Gerasena héruðum bað hann að fara burt frá þeim, því að þeir voru haldnir af miklum ótta. Og hann steig á skip og fór til baka. 38 En maðurinn, sem illu andarnir höfðu farið út af, bað hann að mega vera með honum; en hann lét hann frá sér fara og mælti: 39 Far þú aftur heim til þín og seg þú frá, hversu mikið Guð hefir gjört fyrir þig. Og hann fór og kunngjörði um alla borgina, hve mikið Jesús hafði fyrir hann gjört.

40 En er Jesús kom aftur, tók mannfjöldinn vel á móti honum, því að þeir höfðu allir verið að vænta hans. 41 Og sjá, maður kom, að nafni Jaírus, og var hann forstöðumaður samkunduhússins; og hann féll til fóta Jesú og bað hann að koma heim til sín; 42 því að hann átti einkadóttur, hér um bil tólf ára, og lá hún fyrir dauðanum. En er hann var á leiðinni, þrengdist mannfjöldinn að honum.

43 Og kona nokkur, er hafði haft blóðlát í tólf ár og varið allri eigu sinni til lækna, en eigi getað fengið lækningu hjá neinum, 44 kom að baki honum og snart fald yfirhafnar hans; stöðvaðist þá þegar í stað blóðlát hennar. 45 Og Jesús sagði: Hver var það, sem snart mig? Og er allir synjuðu fyrir það, sagði Pétur og þeir sem með honum voru: Meistari, mannfjöldinn þrengist að þér og þrýstir á. 46 En Jesús sagði: Einhver snart mig, því eg varð var við, að kraftur gekk út frá mér. 47 En er konan sá, að hún duldist ekki, kom hún skjálfandi, féll til fóta honum og sagði frá, frammi fyrir öllum lýðnum, fyrir hverja sök hún hefði snortið hann, og hvernig hún hefði læknast þegar í stað. 48 En hann sagði við hana: Dóttir, trú þín hefir gjört þig heila; far þú í friði.

49 Er hann var enn að tala, kemur maður frá samkundustjóranum og segir: Dóttir þín er látin, ómaka ekki meistarann. 50 En er Jesús heyrði þetta, svaraði hann honum: Óttast þú ekki, trú þú einungis, og mun hún heil verða. 51 En er hann kom að húsinu, leyfði hann engum að fara inn með sér nema Pétri, Jóhannesi og Jakob og föður stúlkunnar og móður hennar. 52 En allir grétu og syrgðu hana; en hann sagði: Grátið ekki, því að hún er ekki dáin, heldur sefur hún. 53 Og menn hlógu að honum, því að þeir vissu, að hún var dáin. 54 En hann tók í hönd hennar, kallaði og sagði: Stúlka, rís þú upp! 55 Og andi hennar sneri aftur, og hún reis upp þegar í stað; og hann bauð að gefa henni að eta. 56 Og foreldrar hennar urðu frá sér numdir, en hann bauð þeim að segja engum frá þessum atburði.


9

En hann kallaði saman þá tólf, og gaf þeim vald og ráð yfir öllum illum öndum og til að lækna sóttir. 2 Og hann sendi þá út, til að prédika Guðs ríki og til þess að lækna sjúka, 3 og hann sagði við þá: Takið ekkert með til ferðarinnar, hvorki staf né mal né brauð né silfur, og ekki skuluð þér hafa tvo kyrtla. 4 Og í hverju því húsi, er þér gangið inn í, þar skuluð þér dvelja og þaðan skuluð þér leggja á stað. 5 Og þar sem menn eigi skyldu taka á móti yður, þá hristið dustið af fótum yðar, er þér farið úr þeirri borg, til vitnis gegn þeim. 6 En þeir fóru á stað og ferðuðust um þorpin, boðuðu fagnaðarerindið og læknuðu alstaðar.

7 En Heródes fjórðungsstjóri heyrði alt það, sem gjörst hafði, og hann var mjög efablandinn; því að sumir sögðu, að Jóhannes væri risinn upp frá dauðum, 8 en aðrir, að Elía væri kominn fram, og sumir, að einn af hinum fornu spámönnum væri risinn upp. 9 Og Heródes sagði: Jóhannes hefi eg látið hálshöggva, en hver er þessi, sem eg heyri slíka hluti um? Og hann leitaði færis að sjá hann.

10 Og er postularnir voru komnir til baka, sögðu þeir honum frá, hvað þeir hefðu gjört; og hann tók þá með sér og fór burt einslega til bæjar, er kallast Betsaída. 11 En er mannfjöldinn varð þess var, fylgdi hann á eftir honum, og hann veitti þeim viðtöku og talaði við þá um guðsríki, og læknaði þá, er lækningar þurftu. 12 En degi tók að halla; komu þá þeir tólf og sögðu við hann: Lát þú mannfjöldann fara burt, til þess að þeir fari í þorpin og landsbygðina hér í kring og nátti sig og fái sér mat, því að vér erum hér á óbygðum stað. 13 En hann sagði við þá: Gefið þér þeim að eta. Þeir mæltu þá: Vér höfum ekki meira en fimm brauð og tvo fiska, nema ef vér eigum að fara og kaupa vistir handa öllu þessu fólki. 14 Því að það voru um fimm þúsundir karlmanna. En hann sagði við lærisveina sína: Látið þér þá setjast niður í hópum, um fimtíu í hverjum. 15 Og þeir gjörðu svo, og létu þá alla setjast niður. 16 En hann tók fimm brauðin og fiskana tvo, leit upp til himins, blessaði þau og braut þau og fékk lærisveinunum, til að leggja fyrir mannfjöldann. 17 Og þeir mötuðust allir og urðu mettir. Og það var tekið upp, sem þeir höfðu afgangs, tólf karfir af brotnum brauðum.

18 En svo bar við, er hann var einn saman á bæn, að lærisveinar hans voru hjá honum, og spurði hann þá og sagði: Hvern segir fólkið mig vera? 19 En þeir svöruðu og sögðu: Jóhannes skírara, aðrir Elía, og aðrir, að einn af hinum fornu spámönnum sé risinn upp. 20 En hann sagði við þá: En þér, hvern segið þér mig vera? Pétur svaraði þá og sagði: Krist Guðs. 21 En hann lagði ríkt á við þá og bannaði þeim að segja nokkurum þetta, 22 og mælti: Mannsins syni ber að líða margt og verða útskúfað af öldungunum og æðstu prestunum og fræðimönnunum, og verða deyddur og verða upp vakinn á þriðja degi. 23 Og hann sagði við alla: Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér og taki upp kross sinn daglega og fylgi mér. 24 Því hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því; en hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því. 25 Því að hvað stoðar það mann, að hafa unnið allan heiminn, og hafa glatað eða fyrirgjört sjálfum sér? 26 Því hver sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, fyrir hann mun mannsins sonur blygðast sín, þegar hann kemur í dýrð sinni og föðurins og heilagra engla. 27 En eg segi yður sannlega: af þeim, sem hér standa, eru nokkurir, sem alls ekki munu smakka dauðann, fyr en þeir sjá guðsríkið.

28 Hér um bil átta dögum eftir ræðu þessa bar svo við, að hann tók með sér Pétur og Jóhannes og Jakob, og fór upp á fjallið til að biðjast fyrir. 29 Og er hann var að biðjast fyrir, varð útlit ásjónu hans annað, og klæði hans urðu hvít og ljómandi. 30 Og sjá, tveir menn voru að tala við hann, og voru það þeir Móse og Elía, 31 er sáust í ljóma og töluðu um burtför hans, er fyrir honum lá að leiða til lykta í Jerúsalem. 32 En Pétur og þeir, sem með honum voru, voru yfirkomnir af svefni; en er þeir voru fullvaknaðir, sáu þeir dýrð hans og þá tvo menn, er stóðu hjá honum. 33 Og svo bar við, er þeir skildust við hann, að Pétur mælti við Jesúm: Gott er að vér erum hér, meistari; og gjörum nú þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina; en hann vissi ekki hvað hann sagði. 34 En er hann var þetta að mæla, kom ský og skygði yfir þá, og urðu þeir hræddir, er þeir komu inn í skýið. 35 Og rödd kom út úr skýinu, segjandi: Þessi er sonur minn hinn útvaldi, hlýðið honum. 36 En í því röddin kom, var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu af því, sem þeir höfðu séð.

37 En svo bar við daginn eftir, er þeir fóru niður af fjallinu, að mikill mannfjöldi kom á móti honum. 38 Og sjá, maður nokkur úr mannfjöldanum hrópaði og sagði: Meistari, eg bið þig að líta á son minn, því að hann er einkabarn mitt. 39 Og sjá, andi tekur hann og hann æpir alt í einu upp, og hann teygir hann, svo að hann froðufellir, og varla víkur hann frá honum og lætur af að kvelja hann. 40 Og eg bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki. 41 En Jesús svaraði og sagði: Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á eg að vera hjá yður og umbera yður? Fær þú hingað son þinn. 42 Og rétt í því að hann var að koma, hreif illi andinn hann og teygði hann sundur og saman. Hastaði þá Jesús á hinn óhreina anda, og læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans. 43 En þeir urðu allir forviða yfir hátign Guðs.

En er allir voru að undrast yfir öllu því, sem hann gjörði, sagði hann við lærisveina sína: 44 Festið þessi orð í eyrum yðar; því að mannsins sonur mun verða framseldur í manna hendur. 45 En þeir skildu ekki orð þetta, og það var hulið fyrir þeim, til þess að þeir skynjuðu það ekki; og þeir voru hræddir við að spyrja hann um orð þetta.

46 En sú hugsun kom upp meðal þeirra, hver þeirra mundi vera mestur. 47 En er Jesús sá hugsun hjartna þeirra, tók hann barn og setti það hjá sér 48 og sagði við þá: Hver sem veitir þessu barni viðtöku í mínu nafni, hann veitir mér viðtöku, og hver sem veitir mér viðtöku, hann veitir þeim viðtöku, er mig sendi; því að sá sem minstur er meðal yðar allra, hann er mikill.

49 En Jóhannes tók til máls og sagði: Meistari, vér sáum mann einn, sem í þínu nafni rak út illa anda, og vér bönnuðum honum það, af því að hann fylgir oss ekki. 50 En Jesús sagði við hann: Bannið það ekki, því að sá sem ekki er á móti yður, hann er með yður.

51 En svo bar við, er fullnast tóku dagar upphafningar hans, að hann fastréð með sér að halda beint til Jerúsalem, 52 og sendi sendimenn á undan sér. Og þeir fóru og komu inn í Samverja-þorp nokkurt, til að gjöra fyrirbúnað handa honum. 53 Og þeir veittu honum ekki viðtöku, af því að hann var á leið til Jerúsalem. 54 En er lærisveinar hans, Jakob og Jóhannes, sáu það, sögðu þeir: Viltu, herra, að vér bjóðum að eldur skuli falla niður af himni og tortíma þeim. 55 En hann snerist við og ávítaði þá. 56 Og þeir fóru í annað þorp.

57 Og er þeir voru á ferð á veginum, sagði maður nokkur við hann: Eg vil fylgja þér, hvert sem þú svo fer. 58 Og Jesús sagði við hann: Refar hafa greni og fuglar himinsins hreiður, en mannsins sonur á hvergi höfði sínu að að halla. 59 En við annan sagði hann: Fylg þú mér! En hann mælti: Herra, leyf mér fyrst að fara og grafa föður minn. 60 En hann sagði við hann: Lát hina dauðu grafa sína dauðu, en far þú og boða guðsríki. 61 En annar var og, er sagði: Eg vil fylgja þér, herra, en leyf mér fyrst að fara og kveðja þá, sem heima hjá mér eru. 62 En Jesús sagði við hann: Enginn, sem leggur hönd sína á plóginn og horfir aftur fyrir sig, er hæfur til guðsríkis.


10

En eftir þetta útvaldi drottinn aðra sjötíu og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði að koma til. 2 Og hann sagði við þá: Uppskeran er mikil, en verkamennirnir eru fáir; biðjið því herra uppskerunnar, að hann sendi út verkamenn til uppskeru sinnar. 3 Farið. Sjá, eg sendi yður eins og lömb á meðal úlfa. 4 Hafið ekki með fégyrðil, ekki mal, ekki ilskó, og heilsið engum á veginum. 5 En hvar sem þér komið inn í hús, þá segið fyrst: Friður sé í húsi þessu. 6 Og sé þar nokkurt friðarbarn, mun friður yðar hvíla yfir honum; en sé það ekki, mun hann hverfa til yðar aftur. 7 Verið kyrrir í því húsi, etið og drekkið það sem þér fáið hjá þeim, því að verður er verkamaðurinn launa sinna. Ekki skuluð þér flytja yður úr einu húsi í annað. 8 Og hvar sem þér komið inn í bæ, og menn veita yður viðtöku, þá neytið þess, er fyrir yður verður sett; 9 og læknið þá, sem þar eru sjúkir, og segið þeim: Guðsríki er komið nálægt yður. 10 En hvar sem þér komið í bæ, og menn veita yður eigi viðtöku, þá farið út á strætin og segið: 11 Jafnvel dustið, sem loðir við fætur vora úr bæ yðar, þurkum vér af oss yður til handa; vitið samt þetta, að guðsríki er komið í nánd. 12 Eg segi yður, að bærilegra mun verða fyrir Sódómu á þeim degi en fyrir þann bæ. 13 Vei þér, Korazín; vei þér, Betsaída; því að ef þau kraftaverk hefðu gjörð verið í Týrus og Sídon, sem gjörst hafa í ykkur, mundu þeir fyrir löngu hafa snúið sér, sitjandi í sekk og ösku. 14 Já, bærilegra mun verða fyrir Týrus og Sídon í dóminum en fyrir ykkur. 15 Og þú, Kapernaum! munt þú verða hafin til himins? Til Heljar mun þér niðursökt verða. 16 Sá sem hlýðir á yður, hlýðir á mig, og sá sem fyrirlítur yður, fyrirlítur mig; en sá sem fyrirlítur mig, fyrirlítur þann sem sendi mig.

17 En þeir sjötíu komu til baka með fögnuði og sögðu: Herra, jafnvel illir andar eru oss undirgefnir í þínu nafni. 18 En hann mælti við þá: Eg sá Satan falla af himni eins og eldingu. 19 Sjá, eg hefi gefið yður vald til að stíga ofan á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi, og ekkert skal yður minsta mein gjöra. 20 Gleðjist samt ekki yfir því, að andarnir eru yður undirgefnir, en gleðjist yfir því, að nöfn yðar eru innrituð á himnum.

21 Samstundis varð hann glaður í heilögum anda og sagði: Eg þakka þér, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefir hulið þetta fyrir spekingum og vitringum, og hefir auglýst það börnum. Já, faðir, því að þannig varð það velþóknanlegt fyrir þér. 22 Alt er mér í vald gefið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, eða hver faðirinn er, nema sonurinn og sá, sem sonurinn vill opinbera hann. 23 Og hann sneri sér til lærisveina sinna og sagði við þá einslega: Sæl eru þau augu, sem sjá það, sem þér sjáið. 24 Því að eg segi yður, að margir spámenn og konungar hafa viljað sjá það, sem þér sjáið, og sáu það ekki, og heyra það, sem þér heyrið, og heyrðu það ekki.

25 Og sjá, lögvitringur nokkur stóð upp, freistaði hans og mælti: Meistari, hvað á eg að gjöra, til þess að eignast eilíft líf? 26 En hann sagði við hann: Hvað er skrifað í lögmálinu? Hvernig les þú? 27 En hann svaraði og sagði: Elska skalt þú drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum og af öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig. 28 En hann sagði við hann: Þú svaraðir rétt; gjör þú þetta, og þá muntu lifa. 29 En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesúm: Hver er þá náungi minn? 30 Jesús svaraði og sagði: Maður nokkur ferðaðist frá Jesúsalem niður til Jeríkó, og hann féll á meðal ræningja, sem bæði flettu hann klæðum og börðu hann og fóru síðan burt og létu hann eftir hálfdauðan. 31 En af hendingu fór prestur nokkur niður veg þennan, og er hann sá hann, gekk hann fram hjá. 32 Svo fór og Levíta einum: þegar hann kom til þess staðar og sá hann, gekk hann einnig fram hjá. 33 En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum, og er hann sá hann, kendi hann í brjósti um hann, 34 og gekk til hans og batt um sár hans og helti í þau olíu og víni; og hann setti hann upp á sinn eigin eyk og flutti hann til gistihúss og bar umhyggju fyrir honum. 35 Og daginn eftir tók hann upp tvo denara og fékk þá gestgjafanum og mælti: Al þú önn fyrir honum, og hvað sem þú kostar meiru til, skal eg borga þér, er eg kem aftur. 36 Hver af þessum þremur sýnist þér hafa verið náungi mannsins, sem féll í hendur ræningjanna? 37 En hann mælti: Sá sem miskunnarverkið gjörði á honum. Og Jesús sagði við hann: Far þú og gjör þú slíkt hið sama.

38 Er þeir nú voru á ferð, kom hann inn í þorp nokkurt; en kona ein að nafni Marta tók á móti honum í hús sitt. 39 Og hún átti systur, er hét María, er jafnvel sat við fætur drottins og hlýddi á orð hans. 40 En Marta var önnum kafin við mikla þjónustu; og hún gekk til hans og mælti: Herra, hirðir þú ekki um það, að systir mín lætur mig eina ganga um beina? Seg þú henni þá að hjálpa mér. 41 En drottinn svaraði og sagði við hana: Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu, 42 en eitt er nauðsynlegt. Því að María hefir valið góða hlutann, sem ekki skal verða tekinn frá henni.


11

Og svo bar við, er hann var á stað nokkurum að biðjast fyrir, að einn af lærisveinum hans sagði við hann, þá er hann hafði lokið bænagjörðinni: Herra, kenn þú oss að biðja, eins og Jóhannes kendi lærisveinum sínum. 2 En hann sagði við þá: Er þér biðjist fyrir, þá segið: Faðir, helgist nafn þitt, komi ríki þitt, 3 gef oss dag hvern vort daglegt brauð; 4 og fyrirgef oss syndir vorar, því að vér sjálfir fyrirgefum og öllum vorum skuldunautum; og leið oss ekki í freistni.

5 Og hann sagði við þá: Hver yðar skyldi eiga vin og fara til hans um miðnætti og segja við hann: Vinur, lánaðu mér þrjú brauð; 6 því að vinur minn er kominn til mín úr ferð, og eg hefi ekkert að setja fram fyrir hann; 7 og hinn skyldi svara inni fyrir og segja: Gjörðu mér ekki ónæði; dyrnar eru lokaðar, og börn mín eru ásamt mér komin í rúmið; eg get ekki farið á fætur, til að fá þér þau? 8 Eg segi yður, þótt hann fari ekki á fætur og fái honum þau sökum þess, að hann er vinur hans, þá mun hann samt fara á fætur vegna áleitni hans, og fá honum svo mikið sem hann við þarf. 9 Og eg segi yður: Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér munuð finna; knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða; 10 því að hver sá fær, sem biður, og sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða. 11 En hver faðir yðar á meðal mundi gefa syni sínum stein, er hann bæði um brauð? eða um fisk, þá gefa honum höggorm í staðinn fyrir fisk? 12 eða bæði hann um egg, þá gefa honum sporðdreka? 13 Ef nú þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðirinn á himnum gefa þeim heilagan anda, sem hann biðja.

14 Og hann rak út mállausan anda, og það varð, er andinn var farinn út, að þá talaði mállausi maðurinn. Og mannfjöldinn undraðist, 15 en sumir þeirra sögðu: Með fulltingi Beelsebúls, foringja illu andanna, rekur hann illu andana út. 16 En aðrir freistuðu hans og kröfðust af honum tákns af himni. 17 En hann, er vissi hugrenningar þeirra, sagði við þá: Hvert það ríki, sem er sjálfu sér sundurþykt, eyðist, og hús fellur á hús. 18 Og ef Satan er nú sjálfum sér sundurþykkur, hvernig fær ríki hans þá staðist? Því að þér segið, að með fulltingi Beelsebúls reki eg illa anda út. 19 En sé það með fulltingi Beelsebúls að eg rek út illa anda, með hvers fulltingi út reka þá synir yðar þá? Þess vegna skulu þeir vera dómendur yðar. 20 En sé það með fingri Guðs, að eg rek illa anda út, þá er ríki Guðs þegar til yðar komið. 21 Þegar sterkur maður, alvopnaður, varðveitir hús sitt, þá er alt í friði, sem hann á; 22 en komi sá, sem sterkari er en hann, og sigri hann, tekur hann öll hertýgi hans, er hann treysti á, og skiftir herfanginu frá honum. 23 Sá sem ekki er með mér, hann er á móti mér; og sá sem ekki samansafnar með mér, hann sundurdreifir. 24 Þegar óhreinn andi er farinn út af manninum, fer hann um vatnslausa staði og leitar hvíldar, og er hann enga finnur, þá segir hann: Eg vil hverfa aftur í hús mitt, þaðan sem eg fór; 25 og er hann kemur, finnur hann það sópað og prýtt. 26 Þá fer hann og tekur með sér sjö aðra anda sér verri, og þeir fara inn og setjast þar að; og verður svo hið síðara þess manns verra en hið fyrra.

27 En svo bar við, er hann var að tala þetta, að kona nokkur í mannfjöldanum hóf upp rödd sína og mælti við hann: Sæll er sá kviður, er þig bar, og þau brjóst, er þú mylktir. 28 En hann sagði: Já, en sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.

29 En er mannfjöldinn þyrptist að honum, tók hann að segja: Þessi kynslóð er vond kynslóð; hún heimtar tákn, en henni skal ekki verða gefið neitt tákn nema tákn Jónasar. 30 Því að eins og Jónas var tákn fyrir Ninívemenn, svo mun og mannsins sonur verða það fyrir kynslóð þessa. 31 Suðurlanda-drotningin mun koma fram í dóminum ásamt mönnum kynslóðar þessarar og dæma þá seka, því að hún kom frá endimörkum jarðarinnar til að heyra speki Salómons; og sjá, hér er meira en Salómon. 32 Ninívemenn munu rísa upp í dóminum ásamt kynslóð þessari og dæma hana seka, því að þeir gjörðu iðrun við prédikun Jónasar; og sjá, hér er meira en Jónas.

33 Enginn, sem kveikt hefir á lampa, setur hann í kjallara eða undir ker, heldur í ljósastiku, til þess að þeir, sem inn koma, sjái ljósið. 34 Auga þitt er lampi líkamans; þegar auga þitt er heilt, þá er og allur líkami þinn í birtu; en sé það sjúkt, þá er og líkami þinn í myrkri. 35 Gæt því þess, að ljósið, sem í þér er, sé ekki myrkur. 36 Sé því líkami þinn allur í birtu og enginn partur hans í myrkri, þá verður hann allur í birtu, eins og þegar lampi skín á þig með birtu sinni.

37 En er hann var að tala, bauð Farísei nokkur honum að taka hjá sér dagverð. Hann kom inn og settist undir borð. 38 En Faríseinn undraðist, er hann sá að hann þvoði sér eigi fyrst á undan máltíðinni. 39 En drottinn sagði við hann: Þér Farísear hreinsið nú bikara yðar og föt að utan, en hið innra hjá yður er fult af ráni og ilsku. 40 Þér heimskingjar, hefir ekki sá sem gjörði hið ytra, einnig gjört hið innra. 41 En gefið í ölmusur það sem þar er í, og sjá, þá er alt yður hreint.

42 En vei yður, þér Farísear, því að þér tíundið myntu og rúðu og allar matjurtir, en gangið fram hjá réttinum og kærleikanum til Guðs; en þetta ber að gjöra, og láta hitt eigi ógjört. 43 Vei yður, þér Farísear, því að þér hafið mætur á efstu sætum í samkundunum og kveðjum á torgunum. 44 Vei yður, því að þér eruð eins og grafir, sem ekki ber á, og menn, sem ganga yfir þær, vita eigi af því.

45 En einn af lögvitringunum tók til máls og segir við hann: Meistari, er þú segir þetta, þá meiðir þú einnig oss. 46 En hann mælti: Vei yður líka, þér lögvitringar, því að þér íþyngið mönnum með þungbærum byrðum, og sjálfir snertið þér byrðarnar ekki með einum fingri. 47 Vei yður, því að þér byggið upp legstaði spámannanna, en feður yðar líflétu þá. 48 Þannig eruð þér vottar og samþykkið athafnir feðra yðar, því að þeir líflétu þá, en þér upp byggið legstaðina. 49 Fyrir því hefir og speki Guðs sagt: Eg mun senda til þeirra spámenn og postula; og suma af þeim munu þeir lífláta og ofsækja, 50 til þess að af þessari kynslóð verði krafið blóð allra spámannanna, er úthelt hefir verið frá því er heimurinn var grundvallaður, 51 frá blóði Abels til blóðs Sakaría, sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, segi eg yður, þess mun krafist verða af þessari kynslóð. 52 Vei yður, þér lögvitringar, því að þér hafið tekið burt lykil þekkingarinnar; sjálfir hafið þér ekki farið inn, og þá, sem ætluðu að fara inn, hindruðuð þér í því.

53 Og er hann var farinn út þaðan, tóku fræðimennirnir og Farísearnir að ganga hart að honum og fá hann til að tala um ýmislegt, 54 leggjandi snörur fyrir hann, til þess að veiða eitthvað af munni hans.


12

Þegar nú mannfjöldinn var saman kominn í tugum þúsunda, svo að hver tróð annan undir, hóf hann að tala til lærisveina sinna fyrst og fremst: Varist súrdeig Faríseanna, sem er hræsni. 2 En ekkert er það hulið, að ekki verði það opinbert, og ekkert það leynt, að ekki verði það kunnugt. 3 Því mun alt það, sem þér hafið talað í myrkri, verða heyrt í ljósinu, og það sem þér hafið hvíslað í herbergjum, það mun kunngjört verða á þökum uppi. 4 En eg segi yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, og geta ekki að því búnu meira gjört. 5 En eg skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast; hræðist hann, sem eftir að hann hefir líflátið, hefir vald til að kasta í Gehenna; já, eg segi yður, hræðist hann. 6 Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó er ekki einn af þeim gleymdur fyrir Guði. 7 Og jafnvel hárin á höfði yðar eru öll talin; óttist ekki, þér eruð meira verðir en margir spörvar. 8 En eg segi yður: hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, við hann mun og mannsins sonur kannast fyrir englum Guðs. 9 En þeim, sem afneitar mér fyrir mönnum, honum mun verða afneitað fyrir englum Guðs. 10 Og sérhverjum sem talar orð á móti mannsins syni, honum mun verða það fyrirgefið; en þeim sem talar lastmæli gegn heilögum anda, honum mun ekki fyrirgefið verða. 11 En þegar þeir fara með yður inn í samkunduhús sín og fram fyrir höfðingja og valdsmenn, verið þá ekki hugsjúkir, hvernig eða með hverju þér eigið að verja yður, eða hvað þér eigið að segja; 12 því að heilagur andi mun kenna yður á sömu stundu, hvað segja ber.

13 En einn af mannfjöldanum sagði við hann: Meistari, seg þú bróður mínum að skifta með mér arfi okkar. 14 En hann sagði við hann: Maður, hver hefir sett mig fyrir dómara eða skiftaráðanda yfir ykkur? 15 Og hann sagði við þá: Gefið gætur og varist alla ágirnd; því að einskis líf er innifalið í gnægð þess, sem hann á. 16 Og hann sagði þeim dæmisögu þessa: Akur ríkismanns nokkurs hafði borið mikinn ávöxt; 17 og hann hugsaði með sér og sagði: Hvað á eg nú að gjöra? því að eg hefi ekki rúm, þar sem eg geti látið afurðir mínar. 18 Og hann sagði: Þetta skal eg gjöra: rífa niður hlöður mínar og byggja aðrar stærri, og þar vil eg safna öllu korni mínu og auðæfum saman. 19 Og eg skal segja við sálu mína: Sál mín, þú hefir mikil auðæfi, geymd til margra ára; hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð. 20 En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefir aflað? 21 Svo fer þeim, er safnar sér fé, og ekki er ríkur í Guði.

22 En hann sagði við lærisveina sína: Fyrir því segi eg yður: Verið ekki hugsjúkir fyrir lífinu, hvað þér eigið að eta; ekki heldur fyrir líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast; 23 því að lífið er meira vert en fæðan, og líkaminn meira en klæðnaðurinn. 24 Gætið að hröfnunum, því að hvorki sá þeir né uppskera og ekki hafa þeir forðabúr né hlöðu, og þá fæðir Guð; hve miklu eruð þér fremri fuglunum! 25 Og hver af yður getur með áhyggjum sínum aukið alin við hæð sína? 26 Fyrst þér nú ekki einu sinni getið það sem minst er í varið, hvers vegna eruð þér þá áhyggjufullir um alt hitt? 27 Gætið að liljunum, hversu þær vaxa; þær vinna ekki og spinna ekki heldur; en eg segi yður: jafnvel Salómon í allri dýrð sinni var ekki svo skrýddur sem ein af þeim. 28 Þegar Guð nú skrýðir svo grasið á vellinum, sem stendur í dag og á morgun verður kastað í ofn, hversu miklu fremur mun hann klæða yður, þér lítiltrúaðir! 29 Og þér, spyrjið ekki um, hvað þér skulið eta og hvað þér skulið drekka, og verið eigi efablandnir; 30 því að eftir þessu öllu sækjast heiðingjarnir í heiminum; en faðir yðar veit, að þér þarfnist þessa. 31 Leitið heldur ríkis hans, og þetta mun veitast yður að auki. 32 Ver ekki hrædd, þú litla hjörð, því að föður yðar hefir þóknast að gefa yður ríkið. 33 Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, útvegið yður pyngjur, sem ekki fyrnast, ótæmandi fjársjóð á himnum, þar sem þjófur kemur eigi nálægt og mölur ekki heldur veldur skemdum; 34 því að hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.

35 Lendar yðar séu gyrtar, og lampar yðar logandi; 36 og verið sjálfir líkir mönnum, er bíða eftir húsbónda sínum, hve nær hann muni fara úr brúðkaupinu, til þess að ljúka jafnskjótt upp fyrir honum, er hann kemur og ber að dyrum. 37 Sælir eru þeir þjónar, sem húsbóndinn finnur vakandi, er hann kemur. Sannlega segi eg yður, hann mun binda belti um sig, láta þá seljast við borð og fara til og þjóna þeim. 38 Finni hann þá svo, hvort sem hann kemur um aðra eða þriðju næturvöku, þá eru þessir þjónar sælir. 39 En þetta vitið þér, að ef húsbóndinn hefði vitað, á hverri stundu þjófurinn mundi koma, þá mundi hann hafa vakað og ekki látið brjótast inn í hús sitt. 40 Verið þér og viðbúnir, því að mannsins sonur kemur á þeirri stundu sem þér ekki ætlið.

41 En Pétur mælti: Herra, segir þú líkingu þessa til vor eða til allra? 42 Og drottinn mælti: Hver er þá hinn dyggi og hygni ráðsmaður, sem húsbóndi hans mun setja yfir hjú sín, til að úthluta þeim á réttum tíma skamti þeirra? 43 Sæll er sá þjónn, er húsbóndi hans finnur breyta þannig, er hann kemur. 44 Sannlega segi eg yður, að hann mun setja hann yfir allar eigur sínar. 45 En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: Það dvelst, að húsbóndi minn komi, og tekur að berja vinnumennina og vinnukonurnar, og bæði eta og drekka og verða ölvaður, 46 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, sem hann væntir ekki, og á þeirri stundu, sem hann veit ekki af, og höggva hann sundur og láta hana fá hlutskifti með hinum ótrúu. 47 En sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns, og hefir ekki viðbúnað né gjörir vilja hans, mun barinn mörgum höggum. 48 En sá, sem ekki veit hann, en hefir gjört það, sem verðskuldar högg, mun verða barinn fáum höggum. En af sérhverjum, sem mikið er gefið, mun mikils verða krafist, og af þeim, sem mikið hefir verið í hendur selt, verður þess meira heimtað.

49 Eg er kominn til að varpa eldi á jörðina, og hversu vildi eg að hann væri þegar kveiktur! 50 En eg hefi skírn að skírast, og hversu angistarfullur er eg, þangað til henni er lokið! 51 Ætlið þér, að eg sé kominn til að gefa frið á jörðinni? Nei, segi eg yður, heldur sundurþykki. 52 Því að upp frá þessu munu fimm vera í einu húsi sundurþykkir, þrír á móti tveimur og tveir á móti þremur. 53 Þeir mun verða sundurþykkir, faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður sína, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður sína.

54 Og hann sagði einnig við fólkið: Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri, segið þér jafnskjótt: Það kemur regn; og það verður svo. 55 Og er þér sjáið sunnanvind blása, þá segið þér: Það mun verða steikjandi hiti; og það verður. 56 Þér hræsnarar, þér hafið vit á að dæma um útlit jarðarinnar og himinsins; en þennan tíma, hvernig er því varið, að þér skulið ekki hafa vit á að dæma um hann? 57 Og hví dæmið þér ekki jafnvel af sjálfum yður, hvað rétt sé? 58 Því að þegar þú fer með mótstöðumanni þínum til valdsmanns, þá kostaðu á veginum kapps um að skilja sáttur við hann, til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, og dómarinn mun afhenda þig fangaverðinum, og fangavörðurinn mun varpa þér í fangelsi. 59 Eg segi þér, þú munt alls ekki komast út þaðan, fyr en þú hefir borgað jafnvel hinn síðasta eyri.


13

En um sama leyti voru nokkurir viðstaddir, er sögðu honum frá Galíleumönnunum, hverra blóði Pílatus hafði blandað við fórnir þeirra. 2 Og hann svaraði og sagði við þá: Haldið þér að þessir Galíleumenn hafi verið syndarar fremur öllum öðrum Galíleumönnum, af því að þeir hafa orðið fyrir þessu? 3 Nei, segi eg yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir fyrirfarast á líkan hátt. 4 Eða þeir átján, sem turninn féll yfir í Sílóam og varð að bana, haldið þér að þeir hafi verið sekir fremur öllum þeim mönnum, sem í Jerúsalem búa? 5 Nei, segi eg yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir fyrirfarast á sama hátt.

6 Og hann sagði þessa dæmisögu: Maður nokkur átti fíkjutré plantað í víngarði sínum, og hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. 7 Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Sjá, nú hefi eg í þrjú ár komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið; högg þú það upp, hvers vegna á það einnig að gjöra jörðina arðlausa fyrir mér? 8 En hann svaraði og sagði við hann: Herra, lát það vera enn þetta árið, þar til eg hefi grafið um það og borið að áburð, 9 ef það skyldi bera ávöxt framvegis; en verði það ekki, þá höggur þú það upp.

10 Og hann var að kenna í einu af samkunduhúsunum á sabbatsdegi; 11 og sjá, þar var kona, er haldin hafði verið af sjúkleiks anda í átján ár; hún var krept og gat alls eigi rétt sig upp. 12 En er Jesús sá hana, kallaði hann til hennar og sagði við hana: Kona, þú ert orðin laus við sjúkleika þinn! 13 Og hann lagði hendur yfir hana, og jafnskjótt réttist hún upp og lofaði Guð. 14 En samkundustjórinn, sem líkaði illa, að Jesús læknaði á sabbatsdegi, tók til máls og sagði við fólkið: Það eru sex dagar, sem menn eiga að vinna á, komið því á þeim og látið lækna yður, og ekki á hvíldardegi. 15 En drottinn svaraði honum og sagði: Hræsnarar, leysir ekki sérhver yðar á hvíldardegi naut sitt eður asna af stalli og leiðir til vatns? 16 Og kona þessi, sem er dóttir Abrahams og Satan hefir haldið í fjötrum, og það í átján ár, átti hún ekki að vera leyst úr fjötrum þessum á hvíldardegi? 17 Og er hann sagði þetta, urðu allir mótstöðumenn hans sér til minkunar, og alt fólkið gladdist yfir öllum þeim dásemdarverkum, er hann gjörði.

18 Hann sagði því: Hverju er guðsríki líkt? Og við hvað á eg að líkja því? 19 Líkt er það mustarðskorni, sem maður tók og setti í jurtagarð sinn; og það óx og varð að tré, og fuglar himinsins hreiðruðu sig í greinum þess. 20 Og aftur sagði hann: Við hvað á eg að líkja guðsríki? 21 Líkt er það súrdeigi, er kona tók og faldi í þrem mælum mjöls, þangað til það sýrðist alt saman.

22 Og hann fór um borgir og þorp og kendi, og hann hélt áleiðis til Jerúsalem. 23 En einhver sagði við hann: Herra, eru það fáir, sem hólpnir verða? Og hann sagði við þá: 24 Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar; því að margir, segi eg yður, munu leitast við að komast inn og ekki geta. 25 Frá þeim tíma er húsbóndinn er upp staðinn og hefir lokað dyrunum, og þér takið að standa fyrir utan og berja á dyrnar, segjandi: Herra, ljúk þú upp fyrir oss! þá mun hann svara og segja við yður: Eg þekki yður ekki, hvaðan þér eruð. 26 Þá munuð þér taka að segja: Vér höfum etið og drukkið fyrir augum þér, og á strætum vorum kendir þú. 27 Og hann mun segja: Eg segi yður, eg veit ekki hvaðan þér eruð; farið frá mér, allir ranglætisiðkendur! 28 Mun þar þá verða grátur og gnístran tanna, er þér sjáið Abraham, Ísak og Jakob og alla spámennina í guðsríki, en yður útrekna. 29 Og menn munu koma frá austri og vestri, og frá norðri og suðri og sitja til borðs í guðsríkinu. 30 Og sjá, til eru síðastir, er verða munu fyrstir, og til eru fyrstir, er verða munu síðastir.

31 Á sömu stundu komu nokkurir Farísear og sögðu við hann: Far þú og hald á burt héðan, því að Heródes ætlar að drepa þig. 32 Og hann sagði við þá: Farið og segið ref þessum: Sjá, eg rek út illa anda og fullgjöri lækningar í dag og á morgun, og á þriðja degi mun eg ljúka mér af. 33 Samt sem áður ber mér að halda ferð minni áfram í dag og á morgun og daginn þar eftir; því að það hæfir ekki, að spámaður bíði dauða annarstaðar en í Jerúsalem. 34 Jerúsalem, Jerúsalem! þú sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín, hversu oft hefi eg viljað saman safna börnum þínum, eins og hæna ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð ekki. 35 Sjá, hús yðar skal yður eftir skilið verða. En eg segi yður: Þér munuð alls ekki sjá mig, þangað til þér segið: Blessaður sé sá, er kemur í nafni drottins.


14

Og svo bar við, er hann kom á hvíldardegi í hús eins af höfðingjum Faríseanna til máltíðar, að þeir höfðu gætur á honum. 2 Og sjá, frammi fyrir honum stóð maður nokkur vatnssjúkur.3 Og Jesús tók til máls og talaði til lögvitringanna og Faríseanna og sagði: Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki? 4 En þeir þögðu. Og hann tók á honum og læknaði hann og lét hann burt fara. 5 Og hann mælti til þeirra: Nú fellur asni eða naut einhvers yðar í brunn, mun hann ekki jafnskjótt draga það upp á hvíldardegi? 6 Og þeir gátu engu svarað til þessa.

7 Og hann sagði þeim, er boðnir voru, líkingu, er hann tók eftir, hvernig þeir völdu sér hefðarsætin, og mælti til þeirra: 8 Þegar þér er boðið af einhverjum til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti, til þess að ekki fari svo, ef maður fremri þér að virðingu skyldi vera boðinn af honum, 9 að sá komi, sem bauð þér og honum, og segi við þig: Gef þú þessum manni rúm! og farir þú þá með kinnroða að taka hið yzta sæti. 10 Heldur far þú, er þér er boðið, og set þig í hið yzta sæti, til þess að þegar sá kemur sem bauð þér, segi hann við þig: Vinur, flyt þig hærra upp! Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum þeim, er sitja til borðs með þér. 11 Því að sérhver, sem upp hefur sjálfan sig, hann mun niðurlægjast, og sá sem niðurlægir sjálfan sig, hann mun upp hafinn verða.

12 Og hann sagði einnig við þann, er honum hafði boðið: Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð, bjóð þú þá hvorki vinum þínum né bræðrum þínum né ættingjum þínum, ekki heldur ríkum nágrönnum þínum, til þess að þeir bjóði þér ekki aftur, og þú fáir endurgjald. 13 En þegar þú gjörir heimboð, þá bjóð þú fátækum, vanheilum, höltum og blindum; 14 og þá munt þú verða sæll, þar eð þeir hafa ekkert að endurgjalda þér með; því að þér mun verða endurgoldið í upprisu hinna réttlátu.

15 En er einn af þeim, er til borðsins sátu, heyrði þetta, sagði hann við hann: Sæll er sá, sem etur brauð í guðsríki. 16 En hann sagði við hann: Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. 17 Og er matmálstími var kominn, sendi hann þjón sinn, til að segja þeim, er boðnir voru: Komið, því að alt er þegar tilbúið. 18 Og þeir tóku allir í einu hljóði að afsaka sig. Hinn fyrsti sagði við hann: Eg hefi keypt akur, og er mér nauðsyn á að fara og líta á hann; eg bið þig, haf mig afsakaðan. 19 Og annar sagði: Eg hefi keypt fimm pör akneyta, og fer eg nú að reyna þau; eg bið þig, haf mig afsakaðan. 20 Og annar sagði: Eg hefi gengið að eiga konu, og þess vegna get eg ekki komið. 21 Og þjónninn kom og kunngjörði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: Far þú skjótlega út á stræti og götur borgarinnar og fær þú inn hingað fátæka og vanheila og blinda og halta. 22 Og þjónninn sagði: Herra, það er gjört, sem þú hefir fyrirskipað, og enn er rúm. 23 Og herrann sagði við þjóninn: Far þú út á göturnar og að girðingunum og þrýstu þeim til að koma inn, til þess að hús mitt verði fult. 24 Því eg segi yður, að enginn af mönnum þeim, er boðnir voru, skal smakka kvöldmáltíð mína.

25 En mikill fjöldi fólks var honum samferða; og hann sneri sér við og sagði við þá: 26 Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður og konu og börn og bræður og systur, og jafnvel einnig sitt eigið líf, hann getur ekki verið lærisveinn minn. 27 Hver, sem ekki ber sinn eigin kross og fylgir mér eftir, getur ekki verið lærisveinn minn. 28 Því að hver af yður, er ætlar að reisa turn, sezt eigi fyrst niður og reiknar kostnaðinn, hvort hann hafi það, sem þarf til að fullgjöra hann; 29 til þess að eigi fari svo, að þegar hann er búinn að leggja grundvöllinn, en getur ekki lokið við smíðið, þá fari allir, sem það sjá, að spotta hann og segja: 30 Maður þessi fór að byggja, en gat ekki lokið við það. 31 Eða hvaða konungur fer í hernað, til að berjast við annan konung, og sezt eigi fyrst niður og ræður við sig, hvort hann er fær um með tíu þúsundum að mæta þeim, sem kemur á móti honum með tuttugu þúsundir? 32 Að öðrum kosti mun hann senda sendimenn til hins, meðan hann er enn langt í burtu, og spyrja um friðarkostina. 33 Þannig getur þá enginn af yður, er eigi sleppir öllu, sem hann á, verið lærisveinn minn. 34 Saltið er að vísu gott, en ef saltið sjálft dofnar, með hverju á þá að krydda það? 35 Það er þá hvorki hæfilegt á jörð né í áburðarhaug; menn kasta því út. Hver, sem eyru hefir að heyra, hann heyri!


15

En allir tollheimtumenn og bersyndugir nálguðust hann, til að hlýða á hann. 2 En bæði Farísearnir og fræðimennirnir mögluðu og sögðu: Þessi maður tekur að sér bersynduga og samneytir þeim.

3 Og hann talaði til þeirra þessa líkingu og sagði: 4 Hver maður af yður, er á hundrað sauði og týnir einum af þeim, skilur ekki þá níutíu og níu eftir í óbygðinni og fer eftir þeim er týndur er, þangað til hann finnur hann? 5 Og er hann hefir fundið hann, leggur hann hann glaður á herðar sér; 6 og er hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: Samgleðjist mér! því að eg hefi fundið sauðinn minn, sem týndur var. 7 Eg segi yður, þannig mun verða gleði á himnum yfir einum syndugum, sem gjörir iðrun, fremur en yfir níutíu og níu réttlátum, er ekki þurfa iðrunar við.

8 Eða hvaða kona, er á tíu drökmur, og týnir einni drökmu, kveikir eigi á lampa, sópar húsið og leitar vandlega, þangað til hún finnur hana? 9 Og er hún hefir fundið hana, kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: Samgleðjist mér! því að eg hefi fundið drökmuna, sem eg týndi. 10 Þannig, segi eg yður, verður gleði frammi fyrir englum Guðs yfir einum syndugum, er gjörir iðrun.

11 Og hann sagði: Maður nokkur átti tvo sonu. 12 Og hinn yngri þeirra sagði við föður sinn: Faðir, gef mér þann hluta fjárins, sem kemur í minn hlut. Og hann skifti eign sinni með þeim. 13 Og eigi mörgum dögum síðar tók yngri sonurinn alt saman og ferðaðist burt í fjarlægt land; og þar sóaði hann fé sínu í óhófsömum lifnaði. 14 En er hann hafði eytt öllu, kom mikil hungursneyð í því landi og hann tók að líða skort. 15 Fór hann þá og réðst til borgara eins í því landi; og hann sendi hann út á búgarða sína, til að gæta svína; 16 og girntist hann þá að seðja sig á baunum þeim, er svínin átu; og enginn gaf honum neitt. 17 En er hann kom til sjálfs sín, sagði hann: Hversu margir daglaunamenn hjá föður mínum hafa gnægð matar, en eg ferst hér í hungri! 18 Eg vil taka mig upp og fara til föður míns og segja við hann: Faðir, eg hefi syndgað móti himninum og fyrir þér; 19 eg er ekki framar verður að heita sonur þinn. Lát mig vera eins og einn af daglaunamönnum þínum. 20 Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn þá langt í burtu, sá faðir hans hann og kendi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kysti hann. 21 En sonurinn sagði við hann: Faðir, eg hefi syndgað móti himninum og fyrir þér; eg er ekki framar verður að heita sonur þinn. 22 En faðirinn sagði við þjóna sína: Komið fljótt með beztu skikkjuna og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum; 23 og komið með alikálfinn og slátrið, og vér skulum eta og vera kátir, 24 því að þessi sonur minn var dauður, og er lifnaður aftur; hann var týndur, og er fundinn. Og tóku menn nú að verða kátir. 25 En sonur hans hinn eldri var á akri, og er hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann samsöng og dans. 26 Og hann kallaði á einn af piltunum og spurði, hvað um væri. 27 Og hann sagði við hann: Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefir slátrað alikálfinum, af því að hann fékk hann aftur heilan. 28 En hann reiddist og vildi ekki fara inn. Og faðir hans fór út og lagði að honum. 29 En hann svaraði og sagði við föður sinn: Sjá, í svo mörg ár hefi eg nú þjónað þér og aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefir þú aldrei gefið kiðling, svo að eg gæti glatt mig með vinum mínum; 30 en er þessi sonur þinn, sem sóað hefir eigum þínum með skækjum, er kominn, þá slátraðir þú fyrir hann alikálfinum. 31 En hann sagði við hann: Sonur minn, þú ert alt af hjá mér, og alt mitt er þitt. 32 En það var ástæða til að vera glaður og fagna, því að þessi bróðir þinn var dauður, og er lifnaður aftur, og hann var týndur, og er fundinn.


16

En hann sagði einnig við lærisveinana: Það var maður nokkur auðugur, er hafði ráðsmann; og þessi maður var sakaður við hann um það, að hann sóaði eigum hans. 2 Og hann kallaði á hann og sagði við hann: Hvað er þetta, er eg heyri um þig? Gjör þú reikningskap ráðsmensku þinnar, því að þú getur ekki lengur haft ráðsmenskuna. 3 En ráðsmaðurinn sagði með sjálfum sér: Hvað á eg að gjöra, fyrst húsbóndi minn tekur ráðsmenskuna af mér? Eg megna ekki að grafa, en skammast mín fyrir að biðja ölmusu. 4 Eg veit, hvað eg skal gjöra, til þess að þeir taki við mér í hús sín, er eg verð settur frá ráðsmenskunni. 5 Og hann kallaði á hvern og einn af skuldunautum húsbónda síns, og sagði við hinn fyrsta: Hversu mikið skuldar þú húsbónda mínum? 6 En hann sagði: Hundrað kvartil af olíu. En hann mælti við hann: Tak bréf þitt og set þig niður og skrifa sem skjótast fimtíu. 7 Síðan sagði hann við annan: En hversu mikið skuldar þú? Og hann sagði: Hundrað tunnur hveitis. Hann segir við hann: Tak þú bréf þitt og skrifa þú áttatíu. 8 Og húsbóndinn hrósaði rangláta ráðsmanninum fyrir það, að hann hefði breytt svo hyggilega, því að börn þessa heims eru hygnari gagnvart sinni kynslóð en börn ljóssins. 9 Og eg segi yður: Gjörið yður vini með mammóni ranglætisins, til þess að þeir, þegar hann þrýtur, taki við yður í hinar eilífu tjaldbúðir. 10 Sá sem er trúr í smáu, er einnig trúr í stóru, og sá sem er ranglátur í smáu, er og ranglátur í stóru. 11 Ef þér því ekki hafið verið trúir í hinum rangláta mammóni, hver mun þá trúa yður fyrir sannri auðlegð? 12 Og ef þér hafið ekki verið trúir í því, sem aðrir eiga, hver mun þá gefa yður það, sem er yðar eigið? 13 Enginn þjónn getur þjónað tveimur herrum, því að annaðhvort mun hann hata annan og elska hinn, eða aðhyllast annan og lítilsvirða hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammóni.

14 En Farísearnir, sem voru menn fégjarnir, heyrðu alt þetta, og hæddust þeir þá að honum. 15 Og hann sagði við þá: Þér eruð mennirnir, sem réttlætið sjálfa yður í augsýn mannanna, en Guð þekkir hjörtu yðar; því að það sem er hátt meðal manna, er viðurstygð í augsýn Guðs. 16 Lögmálið og spámennirnir náðu alt til Jóhannesar; síðan er fagnaðarboðskapurinn um guðsríki prédikaður, og hver maður þrengir sér inn í það með valdi. 17 En auðveldara er að himinn og jörð líði undir lok en að hið minsta stafstrik lögmálsins gangi úr gildi. 18 Hver, sem segir skilið við konu sína og gengur að eiga aðra, drýgir hór, og hver, sem gengur að eiga konu, sem skilin er við mann, drýgir hór.

19 En það var maður nokkur ríkur, er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. 20 En fátækur maður nokkur, er Lazarus hét, hlaðinn kaunum, hafði verið lagður við fordyri hans; 21 og girntist hann að seðja sig af því, er féll af borði ríka mannsins, og jafnvel hundar komu og sleiktu sár hans. 22 En svo bar við, að fátæki maðurinn dó og að hann var borinn af englunum í skaut Abrahams; en ríki maðurinn dó einnig og var grafinn. 23 Og er hann hóf upp augu sín í helju, þar sem hann var í kvölum, sér hann Abraham álengdar og Lazarus í skauti hans. 24 Og hann kallaði og sagði: Faðir Abraham, miskunna þú mér og send Lazarus, að hann dýfi fingurgómi sínum í vatn og kæli tungu mína, því eg kvelst í þessum loga. 25 En Abraham sagði: Minstu þess, sonur, að þú hlauzt þín gæði meðan þú lifðir, og Lazarus á sama hátt hið vonda, en nú er hann hér huggaður, en þú kvelst. 26 Og auk alls þessa er á meðal vor og yðar mikið djúp staðfest, til þess að þeir, sem vilja fara héðan yfir til yðar, geti það ekki, og að menn komist ekki þaðan yfir til vor. 27 En hann sagði: Þá bið eg þig, faðir, að þú sendir hann í hús föður míns, 28 því að eg á fimm bræður, til þess að hann beri vitni fyrir þeim, til þess að þeir komi ekki líka í þennan kvalastað. 29 En Abraham segir: Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim. 30 En hann sagði: Nei, faðir Abraham, en ef einhver frá hinum dauðu kæmi til þeirra, þá mundu þeir gjöra iðrun. 31 En hann sagði við hann: Ef þeir ekki hlýða Móse og spámönnunum, munu þeir ekki heldur láta sannfærast, þótt einhver rísi upp frá dauðum.


17

En hann sagði við lærisveina sína: Ómögulegt er annað en að hneykslanir komi, en vei þeim, er þeim veldur. 2 Betra væri honum að kvarnarsteinn lægi um háls honum og að honum væri varpað í hafið en að hann hneyksli einn af þessum smælingjum. 3 Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum. 4 Og ef hann syndgar á móti þér sjö sinnum á dag og kemur sjö sinnum aftur til þín og segir: Eg iðrast, þá áttu að fyrirgefa honum.

5 Og postularnir sögðu við drottin: Auk oss trú. 6 En drottinn sagði: Ef þér hafið trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og gróðurset þig í hafinu; og það mundi hlýða yður. 7 En hver af yður sem hefir þjón, er plægir jörð eða gætir fjár, mun segja við hann, er hann kemur inn af akrinum: Kom þegar í stað og set þig til borðs? 8 Mun hann ekki heldur segja við hann: Bú þú eitthvað til kvöldverðar fyrir mig, og gyrð þig og þjóna mér, meðan eg et og drekk, og eftir það getur þú etið og drukkið? 9 Mun hann þakka þjóninum fyrir að hann gjörði það sem boðið var? 10 Sömuleiðis skuluð einnig þér, er þér hafið gjört alt sem yður var boðið, segja: Ónýtir þjónar erum vér; vér höfum gjört það eitt, sem vér vorum skyldir til að gjöra.

11 Og svo bar við, er hann var á ferð til Jerúsalem, að leið hans lá milli Samaríu og Galíleu. 12 Og er hann kom inn í þorp nokkurt, mættu honum tíu menn líkþráir, er stóðu langt frá. 13 Og þeir hófu upp raust sína og sögðu: Jesú, meistari, miskunna þú oss! 14 Og er hann leit þá, sagði hann við þá: Farið og sýnið yður prestunum. Og svo bar við, er þeir fóru, að þeir urðu hreinir. 15 En einn af þeim sneri aftur, er hann sá að hann var heill orðinn, og lofaði Guð með hárri raustu, 16 og féll á ásjónu sína að fótum Jesú og þakkaði honum; og hann var Samverji. 17 En Jesús svaraði og sagði: Urðu ekki þeir tíu hreinir? Hvar eru þeir níu? 18 Voru engir, sem sneru aftur, til þess að gefa Guði dýrðina, nema þessi útlendingur? 19 Og hann sagði við hann: Statt upp og far leiðar þinnar; trú þín hefir gjört þig heilan.

20 En er hann var aðspurður af Faríseunum, hve nær guðsríki mundi koma, svaraði hann þeim og sagði: Guðsríki kemur ekki þannig, að á það verði bent; 21 og ekki munu menn segja: Sjá, það er hér, eða það er þar; því sjá, guðsríki er hið innra í yður.

22 Og hann sagði við lærisveinana: Dagar munu koma, er þér munuð þrá að sjá einn af dögum mannsins sonar, og þér munuð ekki sjá hann. 23 Og menn munu segja við yður: Sjá, hann er þar, sjá, hann er hér; farið þá ekki burt né fylgið þeim. 24 Því að eins og eldingin, er hún leiftrar úr einni átt undir himninum, skín í annarri átt undir himninum, eins mun mannsins sonur verða á degi sinum. 25 En áður hlýtur hann að líða margt og verða útskúfaður af kynslóð þessari. 26 Og eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum mannsins sonar. 27 Menn átu, drukku, kvæntust og giftust alt til þess dags, er Nói gekk inn í örkina, og flóðið kom og tortímdi þeim öllum. 28 Sömuleiðis, eins og var á dögum Lots: menn átu, drukku, keyptu, seldu, plöntuðu og reistu hús. 29 En á þeim degi, er Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi þeim öllum. 30 Eins mun verða á þeim degi, er mannsins sonur opinberast. 31 Sá sem á þeim degi er staddur uppi á þaki og á muni sína í húsinu, hann fari ekki ofan til að taka þá; og sömuleiðis snúi sá, sem er á akri, ekki aftur. 32 Minnist konu Lots. 33 Hver sem reynir að ávinna líf sitt, mun týna því, en hver sem týnir því, mun varðveita það. 34 Eg segi yður: á þeirri nóttu munu tveir vera í einni hvílu; annar mun verða tekinn og hinn eftir skilinn. 35 Tvær munu mala saman; önnur mun verða tekin, en hin eftir skilin. 37 Og þeir svara og segja við hann: Hvar, herra? En hann sagði við þá: Þar sem hræið er, þar munu og ernirnir safnast.


18

Og hann sagði þeim dæmisögu um það, að þeir ættu stöðugt að biðja og ekki þreytast, og mælti: 2 Í borg nokkurri var dómari, sem ekki óttaðist Guð og skeytti ekki um nokkurn mann. 3 En í borg þeirri var ekkja, og hún kom til hans og mælti: Lát þú mig ná rétti yfir mótstöðumanni mínum. 4 En hann vildi það ekki um hríð. En síðan sagði hann við sjálfan sig: Þótt eg óttist ekki Guð né skeyti um nokkurn mann, 5 þá vil eg samt láta ekkju þessa ná rétti sínum, vegna þess að hún gjörir mér ónæði, til þess að hún sé ekki ávalt að koma og kvelja mig. 6 Og drottinn sagði: Heyrið, hvað rangláti dómarinn segir. 7 Og mun þá Guð ekki láta sína útvöldu ná rétti sínum, þá er hrópa til hans dag og nótt, og er hann seinlátur við þá? 8 Eg segi yður: hann mun láta þá ná rétti sínum skjótlega. Alt um það, mun þá mannsins sonur finna trúna á jörðunni, er hann kemur?

9 En hann sagði líka dæmisögu þessa við nokkura, sem treystu sjálfum sér, að þeir væru réttlátir, og fyrirlitu aðra: 10 Tveir menn gengu upp í helgidóminn, til að biðjast fyrir; annar var Farísei og hinn tollheimtumaður. 11 Faríseinn stóð og baðst þannig fyrir með sjálfum sér: Guð, eg þakka þér, að eg er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, óráðvandir, hórkarlar eða jafnvel eins og þessi tollheimtumaður. 12 Eg fasta tvisvar í viku, eg geld tíund af öllu, sem eg eignast. 13 En tollheimtumaðurinn stóð langt frá, og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins, heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, ver þú mér syndugum líknsamur! 14 Eg segi yður: þessi maður fór réttlættur heim til sín fremur en hinn; því að sérhver sem upp hefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en sá sem niðurlægir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.

15 Og menn færðu jafnvel ungbörnin til hans, til þess að hann snerti þau. En er lærisveinarnir sáu það, ávítuðu þeir þá. 16 En Jesús kallaði þau til sín og mælti: Leyfið börnunum að koma til mín, og bannið þeim það eigi; því að slíkra er guðsríkið. 17 Sannlega segi eg yður: hver sem ekki meðtekur guðsríkið eins og barn, mun alls eigi inn í það koma.

18 Og höfðingi nokkur spurði hann og sagði: Góði meistari, hvað á eg að gjöra, til þess að eg erfi eilíft líf? 19 En Jesús sagði við hann: Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður, nema einn, það er Guð. 20 Þú þekkir boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór; þú skalt ekki morð fremja; þú skalt ekki stela; þú skalt ekki bera ljúgvitni; heiðra föður þinn og móður. 21 En hann sagði: Alls þessa hefi eg gætt frá æsku minni. 22 En er Jesús heyrði það, sagði hann við hann: Enn er þér eins vant: sel þú allar eigur þínar og skift þeim meðal fátækra, og munt þú fjársjóð eiga á himnum; og kom og fylg mér. 23 En er hann heyrði þetta, varð hann mjög hryggur, því að hann var auðugur mjög. 24 En er Jesús sá hann, sagði hann: Hversu torvelt mun verða fyrir þá, sem auðæfin hafa, að ganga inn í guðsríkið! 25 Því að auðveldara er fyrir úlfaldann að ganga gegnum nálaraugað en fyrir ríkan mann að ganga inn í guðsríkið. 26 En þeir er heyrðu það, sögðu: Hver getur þá orðið hólpinn? 27 En hann mælti: Það sem ómögulegt er fyrir mönnum, er mögulegt fyrir Guði. 28 Og Pétur sagði: Sjá, vér höfum yfirgefið vort eigið og fylgt þér. 29 En hann sagði við þá: Sannlega segi eg yður, að enginn er sá, sem hefir yfirgefið heimili eða konu eða bræður eða foreldra eða börn vegna guðsríkisins, 30 að hann fái það ekki margfalt aftur á þessum tíma og í hinum komandi heimi eilíft líf.

31 En hann tók þá tólf til sín og sagði við þá: Sjá, vér förum upp til Jerúsalem, og mun þá alt það, sem skrifað er af spámönnunum, fullgjörast á mannsins syni. 32 Því að hann mun verða framseldur heiðingjunum, og hann mun verða hæddur, og honum mun verða misþyrmt, og það mun verða hrækt á hann; 33 og þeir munu húðstrýkja hann og lífláta, og á þriðja degi mun hann upp rísa. — 34 Og þeir skildu ekkert af þessu, og þetta orð var þeim hulið, og þeir skynjuðu ekki það, sem sagt hafði verið.

35 En svo bar við, er hann nálgaðist Jeríkó, að blindur maður nokkur sat við veginn og beiddist ölmusu. 36 Og er hann heyrði, að fjöldi fólks fór fram hjá, spurði hann, hvað þetta væri. 37 En honum var sagt, að Jesús frá Nazaret færi hjá. 38 Og hann hrópaði og sagði: Jesú, sonur Davíðs, miskunna mér! 39 En þeir sem á undan fóru, höstuðu á hann, til þess að hann skyldi þegja; en hann hrópaði því meir: Sonur Davíðs, miskunna mér! 40 Og Jesús nam staðar og bauð að leiða hann til sín. Og er hann nálgaðist, spurði hann hann: 41 Hvað vilt þú að eg gjöri við þig? Og hann mælti: Herra, það, að eg fái aftur sjón mína. 42 Og Jesús sagði við hann: Verð þú aftur sjáandi! trú þín hefir gjört þig heilan. 43 Og jafnskjótt fékk hann aftur sjónina og fylgdi honum, lofandi Guð; og fólkið alt, er sá þetta, vegsamaði Guð.


19

Og hann fór inn í Jeríkó og gekk í gegnum hana. 2 Og sjá, þar var maður nokkur, er Zakkeus hét, og hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. 3 Og hann leitaðist við að sjá Jesúm, hver hann væri, og hann gat það ekki fyrir mannfjöldanum, því að hann var lítill vexti. 4 Og hann hljóp fram fyrir og steig upp í mórberjatré, til þess að hann gæti séð hann, því að leið hans lá þar fram hjá. 5 Og er Jesús kom þangað, leit hann upp og sagði við hann: Zakkeus, flýt þér ofan, því að í dag ber mér að dvelja í húsi þínu. 6 Og hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. 7 Og er þeir sáu þetta, mögluðu þeir allir og sögðu: Hann er farinn inn, til að gista hjá bersyndugum manni. 8 En Zakkeus gekk fram og sagði við drottin: Sjá, herra, helming eigna minna gef eg fátækum, og hafi eg haft nokkuð af nokkurum, gef eg ferfalt aftur. 9 Og Jesús sagði við hann: Í dag hefir heill hlotnast húsi þessu, þar eð einnig þessi maður er Abrahams sonur. 10 Því að mannsins sonur er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það.

11 En er þeir hlýddu á þetta, bætti hann við og sagði dæmisögu, því að hann var í nánd við Jerúsalem, og þeir ætluðu, að guðsríki mundi nú þegar birtast. 12 Hann sagði þá: Maður nokkur göfugur að ætt ferðaðist í fjarlægt land, til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur. 13 Og hann kallaði til sín tíu þjóna, seldi þeim í hendur tíu mínur og sagði við þá: Verzlið með þetta, þangað til eg kem. 14 En landar hans hötuðu hann og sendu erindreka á eftir honum og sögðu: Vér viljum ekki að þessi maður sé konungur yfir oss. 15 Og svo bar við, er hann var kominn aftur og hafði tekið við konungdómnum, að hann bauð að kalla til sín þjóna þá, er hann hafði selt silfrið í hendur, til þess að hann fengi að vita, hvað þeir hefðu grætt. 16 Kom þá hinn fyrsti og sagði: Herra, mína þín hefir ávaxtast um tíu mínur. 17 Og hann sagði við hann: Gott, þú góði þjónn, af því að þú varst trúr í mjög litlu, þá skaltu hafa yfirráð yfir tíu borgum. 18 Og hinn annar kom og sagði: Mína þín, herra, hefir gefið af sér fimm mínur. 19 Og hann sagði sömuleiðis við hann: Þú skalt og ráða yfir fimm borgum. 20 Og enn annar kom og sagði: Herra, sjá, hér er mína þín, sem eg hefi haft geymda í sveitadúki; 21 því að eg óttaðist þig, þar eð þú ert maður strangur; þú tekur það, sem þú ekki niður lagðir, og upp sker það, sem þú ekki sáðir. 22 Hann segir við hann: Eftir þínum eigin orðum dæmi eg þig, þú illi þjónn; þú vissir að eg er maður strangur, sem tek það, sem eg hefi ekki niður lagt, og upp sker það, sem eg ekki hefi sáð. 23 Og hvers vegna lézt þú þá ekki fé mitt í banka, og þá hefði eg getað fengið það með vöxtum, er eg kom heim. 24 Og hann sagði við þá, er viðstaddir voru: Takið mínuna frá honum og fáið hana þeim, sem hefir tíu mínurnar. 25 Og þeir sögðu við hann: Herra, hann hefir tíu mínur. 26 Eg segi yður, að sérhverjum sem hefir, mun verða gefið, en frá þeim sem ekki hefir, mun jafnvel það, sem hann hefir, tekið verða. 27 En þessa óvini mína, sem ekki vildu að eg yrði konungur yfir sér, færið þá hingað og höggvið þá fyrir augum mér.

28 Og er hann hafði þetta sagt, hélt hann áfram og fór upp til Jerúsalem.

29 Og svo bar við, er hann nálgaðist Betfage og Betaníu hjá Olíufjallinu, sem svo er nefnt, að hann sendi tvo af lærisveinunum og mælti: 30 Farið þið í þorpið þar yfir frá, og er þið komið þangað, munuð þið finna fola bundinn, sem enginn hefir nokkurn tíma komið á bak; leysið hann og komið með hann. 31 Og ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna leysið þið hann? þá segið á þessa leið: Herrann þarf hans við. 32 Þeir fóru, sem sendir voru, og fundu eins og hann hafði sagt þeim. 33 En er þeir leystu folann, sögðu eigendur hans við þá: Hvers vegna leysið þið folann? 34 Þeir mæltu: Herrann þarf hans við, og færðu hann til Jesú. 35 Síðan köstuðu þeir klæðum sínum yfir folann og settu Jesúm á bak. 36 En er hann var kominn á stað, breiddu menn yfirhafnir sínar á veginn. 37 En er hann nú nálgaðist og kom þangað sem farið er ofan af Olíufjallinu, tók allur flokkur lærisveina hans að lofa Guð, fagnandi með hárri raustu, fyrir öll þau kraftaverk, er þeir höfðu séð, og mæltu: 38 Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni drottins. Friður á himni og dýrð í upphæðum! 39 Og nokkurir af Faríseunum í flokknum sögðu við hann: Meistari, hasta þú á lærisveina þína. 40 En hann svaraði og sagði: Eg segi yður, að ef þessir þegðu, mundu steinarnir hrópa.

41 Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni og mælti: 42 Ef einnig þú hefðir á þessum degi vitað það sem til friðar heyrir! en nú er það hulið fyrir augum þínum. 43 Því að þeir dagar munu koma yfir þig, að óvinir þínir munu gjöra hervirki um þig og setjast um þig og þröngva þér á alla vegu; 44 og þeir munu leggja þig að velli og börn þín, sem í þér eru, og ekki skilja eftir stein yfir steini í þér, vegna þess að þú þektir ekki tíma vitjunar þinnar.

45 Og hann gekk inn í helgidóminn, og tók að reka út þá, er voru að selja, 46 og sagði við þá: Ritað er: Og hús mitt á að vera bænahús, en þér hafið gjört það að ræningjabæli.

47 Og daglega var hann að kenna í helgidóminum, en æðstu prestarnir og fræðimennirnir og hinir helztu menn þjóðarinnar leituðust við að ráða hann af dögum. 48 Og þeir gátu eigi séð, hvað þeir gætu gjört, því að allur lýðurinn hélt sér fast að honum og hlýddi á hann.


20

Og svo bar við einhvern daginn, er hann var að kenna lýðnum í helgidóminum og boða fagnaðarerindið, að æðstu prestarnir

og fræðimennirnir ásamt öldungunum gengu að honum. 2 Og þeir töluðu til hans og sögðu: Seg þú oss, með hvaða valdi gjörir þú þetta, eða hver hefir gefið þér þetta vald? 3 En hann svaraði og sagði við þá: Eg vil og leggja spurningu fyrir yður. Segið mér: 4 Var skírn Jóhannesar frá himnum eða frá mönnum? 5 En þeir hugleiddu þetta með sér og sögðu: Ef vér segjum: frá himnum, mun hann segja: Hví trúðuð þér honum þá ekki? 6 En ef vér segjum: frá mönnum, mun allur lýðurinn grýta oss; því að hann er sannfærður um að Jóhannes sé spámaður. 7 Og þeir svöruðu, að þeir vissu eigi hvaðan hún væri. 8 Og Jesús sagði við þá: Þá segi eg yður ekki heldur, með hvaða valdi eg gjöri þetta.

9 En hann tók til að segja lýðnum dæmisögu þessa: Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann á leigu víngarðsmönnum og fór úr landi til langdvala. 10 Og á réttum tíma sendi hann þjón til víngarðsmannanna, til þess að þeir fengju honum nokkuð af ávexti víngarðsins; en víngarðsmennirnir börðu hann og sendu hann burt tómhentan. 11 Og aftur sendi hann annan þjón, en þeir börðu hann einnig og svívirtu og sendu hann burt tómhentan. 12 Og enn sendi hann hinn þriðja, en þeir veittu honum einnig áverka og köstuðu honum út. 13 En herra víngarðsins sagði: Hvað á eg að gjöra? Eg ætla að senda son minn hinn elskaða; þeir munu þó bera virðingu fyrir honum. 14 En er víngarðsmennirnir sáu hann, báru þeir ráð sín saman og sögðu: Þetta er erfinginn; drepum hann, til þess að vér fáum arfinn. 15 Og þeir köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann. Hvað mun nú herra víngarðsins gjöra við þá? 16 Hann mun koma og tortíma víngarðsmönnum þessum og gefa öðrum víngarðinn. En er þeir heyrðu þetta, sögðu þeir: Verði það aldrei. 17 En hann leit til þeirra og mælti: Hvað er þá þetta, sem ritað er: Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, sá hinn sami er orðinn að hyrningarsteini? 18 Hver sem fellur á þennan stein, mun sundurmolast, en þann, sem hann fellur yfir, mun hann sundur merja.

19 Og fræðimennirnir og æðstu prestarnir vildur leggja hendur á hann á þeirri stundu, en þeir voru hræddir við lýðinn, því að þeir skildu, að hann talaði dæmisögu þessa til þeirra. 20 Og þeir höfðu gætur á honum og sendu út njósnarmenn, er láta skyldu sem væru þeir réttlátir, til þess að þeir gætu haft á orðum hans og selt hann í hendur yfirvaldinu og á vald landstjórans. 21 Og þeir spurðu hann og mæltu: Vér vitum, meistari, að þú segir og kennir svo sem rétt er og gjörir þér engan mannamun, heldur kennir þú í sannleika Guðs veg. 22 Leifist oss að gjalda keisaranum skatt, eða ekki? 23 En hann merkti flærð þeirra og sagði við þá: 24 Sýnið mér denar. Hvers mynd og yfirskrift hefir hann? En þeir sögðu: Keisarans. 25 Og hann sagði við þá: Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er. 26 Og þeir gátu ekki haft neitt á orðum hans í viðurvist lýðsins, og þeir undruðust svar hans og þögðu.

27 Og nokkurir af Saddúkeum, sem segja, að eigi sé til upprisa, komu til hans og spurðu hann og sögðu: 28 Meistari, Móse reit oss það boð, að ef kvæntur bróðir einhvers deyr, og hann er barnlaus, þá gangi bróðir hans að eiga konu hans og geti bróður sínum afkvæmi. 29 Nú voru sjö bræður; hinn fyrsti tók sér konu og dó barnlaus; 30 og hinn annar 31 og hinn þriðji gengu að eiga hana; og sömuleiðis einnig þeir sjö; þeir létu engin börn eftir sig og dóu. 32 Síðast dó og konan. 33 Kona hvers þeirra verður hún nú í upprisunni, því að þeir sjö áttu hana fyrir konu? 34 Og Jesús sagði við þá: Börn þessarar aldar kvænast og giftast; 35 en þeir, sem álítast verðir að fá hlutdeild í hinni öldinni og upprisunni frá dauðum, kvænast hvorki né giftast; 36 því að þeir geta alls ekki framar dáið, þar eð þeir eru englum líkir og þeir eru Guðs börn, þar sem þeir eru synir upprisunnar. 37 En að dauðir upprísi, það hefir jafnvel Móse sýnt, þar sem talað er um þyrnirunninn, er hann kallar drottin Guð Abrahams og Guð Ísaks og Guð Jakobs. 38 En ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda, því að honum lifa allir. 39 En nokkurir af fræðimönnunum svöruðu og sögðu: Meistari, vel mæltir þú. 40 Því að þeir dirfðust ekki framar að spyrja hann nokkurs.

41 En hann sagði við þá: Hvernig geta menn sagt, að Kristur sé sonur Davíðs? 42 Því að sjálfur Davíð segir í sálmabókinni: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, 43 þangað til eg gjöri óvini þína að skör fóta þinna. 44 Davíð kallar hann þá drottin, og hvernig er hann þá sonur hans?

45 En í áheyrn alls lýðsins sagði hann við lærisveina sína: 46 Varið yður á fræðimönnunum, sem vilja ganga í dragkyrtlum og hafa mætur á að láta heilsa sér á torgum og á efstu sætunum í samkundunum og helztu sætunum í veizlunum, 47 þeir er eta upp heimili ekknanna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá þyngri dóm.


21

En er hann leit upp, sá hann hina ríku, er voru að leggja gjafir sínar í fjárhirzluna. 2 Og hann sá ekkju eina fátæka, er lagði í hana tvo smápeninga. 3 Og hann sagði: Sannlega segi eg yður, að þessi fátæka ekkja hefir meira lagt en hinir allir; 4 því að þessir hafa allir lagt fram til gjafanna af nægtum sínum, en hún lagði af skorti sínum alla þá björg, er hún átti.

5 Og er nokkurir sögðu um helgidóminn, að hann væri prýddur með fögrum steinum og heitgjöfum, sagði hann: 6 Þetta, sem þér sjáið — þeir dagar munu koma, að hér mun ekki verða skilinn eftir steinn yfir steini, er eigi mun verða rifinn niður. 7 En þeir spurðu hann og sögðu: Meistari, hve nær mun þá þetta verða og hvert verður táknið, er þetta á að fara að koma fram. 8 Og hann sagði: Gætið þess, að þér verðið ekki leiddir í villu, því að margir munu koma í mínu nafni, segjandi: Það er eg, og: Tíminn er nálægur, en farið ekki á eftir þeim. 9 En er þér heyrið um hernað og upphlaup, þá skelfist ekki, því að þetta hlýtur fyrst að koma fram, en endirinn er ekki þá þegar kominn.

10 Þá sagði hann við þá: Þjóð mun rísa gegn þjóð og konungsríki gegn konungsríki, 11 og miklir landskjálftar munu verða og á ýmsum stöðum hungursneyð og drepsóttir; og verða munu voðafyrirburðir og tákn mikil af himni. 12 En á undan öllu þessu munu þeir leggja hendur á yður og ofsækja yður og framselja yður til samkundnanna og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja, fyrir sakir nafns míns. 13 Og þetta mun verða yður til vitnisburðar. 14 Látið það því vera fast í huga yðar, að þér ekki fyrirfram séuð að íhuga, hvernig þér eigið að verja yður. 15 Því að eg mun gefa yður talanda og vizku, sem allir mótstöðumenn yðar munu ekki megna að standa á móti eða mótmæla. 16 En þér munuð framseldir verða jafnvel af foreldrum og bræðrum og frændum og vinum, og nokkura af yður munu þeir lífláta. 17 Og þér munuð verða hataðir af öllum vegna nafns míns; 18 en ekkert hár af höfði yðar skal þó farast. 19 Með stöðuglyndi yðar munuð þér ávinna sálir yðar.

20 En er þér sjáið Jerúsalem umkringda af herfylkjum, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd. 21 Þá skulu þeir, sem eru í Júdeu, flýja til fjallanna, og þeir, sem eru inni í borginni, flytji sig burt; og þeir sem eru á sveitabýlunum, fari ekki inn í hana. 22 Því að þetta eru refsingardagar, til þess að uppfyllist alt það, sem ritað er. 23 Vei þeim, sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti á þeim dögum, því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir lýð þessum. 24 Og þeir munu falla fyrir sverðseggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem mun verða fótum troðin af heiðingjum, þangað til tímar heiðingjanna eru fullnaðir. 25 Og tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðunni angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur hafs og sjávar; 26 og menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbygðina, því að kraftar himnanna munu bifast. 27 Og þá munu menn sjá mannsins son komandi í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28 En þegar þetta tekur að koma fram, þá lítið upp og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd.

29 Og hann sagði þeim líkingu: Gætið að fíkjutrénu og öllum trjám; 30 þegar þau fara að skjóta frjóöngum, þá sjáið þér og vitið af sjálfum yður, að sumarið er í nánd. 31 Þannig skuluð þér og vita, að þá er þér sjáið þetta fram koma, er guðsríki í nánd. 32 Sannlega segi eg yður, að þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, unz þetta alt kemur fram. 33 Himinn og jörð munu líða undir lok, en mín orð munu ekki undir lok líða.

34 En gætið sjálfra yðar, að hjörtu yðar ekki ofþyngist við svall og drykkjuskap og áhyggju fyrir þessu lífi, og komi svo þessi dagur skyndilega yfir yður eins og snara; 35 því að koma mun hann yfir alla þá, sem búa á öllu yfirborði jarðarinnar. 36 Verið því ávalt vakandi og biðjandi, til þess að þér megnið að umflýja alt þetta, sem fram mun koma, og að standast frammi fyrir mannsins syni.

37 Á daginn var hann að kenna í helgidóminum, en á næturnar gekk hann út og hafði náttstað á Olíufjallinu, sem svo er nefnt. 38 Og alt fólkið flyktist að honum hvern morgun í helgidóminum, til að hlýða á hann.


22

En hátíð ósýrðu brauðanna nálgaðist, sú er nefnist páskar. 2 Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir velktu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn.

3 En Satan fór í Júdas, er kallaður var Ískaríot, er var einn í tölu þeirra tólf. 4 Og hann fór og kom að máli við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann ætti að framselja þeim hann. 5 Og þeir urðu glaðir og ákváðu að gefa honum fé. 6 Og hann gekk að því og leitaði færis til að framselja þeim hann, án þess að uppþot yrði.

7 En dagur ósýrðu brauðanna kom, þá er slátra átti páskalambinu. 8 Og hann sendi Pétur og Jóhannes og sagði: Farið þið og búið fyrir oss páskamáltíðina, til þess að vér getum matast. 9 En þeir sögðu við hann: Hvar vilt þú að við búum hana? 10 En hann sagði við þá: Sjá, þegar þið komið inn í borgina, mun ykkur mæta maður, sem ber vatnskrús; fylgið honum til þess húss, er hann fer inn í, 11 og segið við húsráðandann: Meistarinn segir við þig: Hvar er herbergið, þar sem eg megi neyta páskalambsins með lærisveinum mínum? 12 Og hann mun sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum; gjörið þar fyrirbúnað. 13 Og þeir fóru og hittu fyrir alt eins og hann hafði sagt þeim, og efndu til páskamáltíðarinnar.

14 Og er stundin var komin, gekk hann undir borð og postularnir með honum. 15 Og hann sagði við þá: Hjartanlega hefi eg þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en eg líð; 16 því að eg segi yður: Eg mun ekki neyta hennar, unz hún fullkomnast í guðsríki. 17 Og hann tók bikar, gjörði þakkir og mælti: Takið þetta og skiftið því á meðal yðar; 18 því að eg segi yður, að eg mun ekki upp frá þessu drekka af ávexti vínviðarins, unz guðsríki kemur. 19 Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það og gaf þeim og sagði: Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn; gjörið þetta í mína minningu. 20 Og á sama hátt tók hann eftir kvöldmáltíðina bikarinn og mælti: Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthelt. 21 En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu með mér.22 Því að mannsins sonur fer að sönnu héðan, eftir því sem ákveðið er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur. 23 Og þeir tóku að spyrjast á, hver þeirra það mundi vera, er þetta mundi gjöra.

24 En það hófst líka deila meðal þeirra um það, hver þeirra væri talinn mestur. 25 Og hann sagði við þá: Konungar þjóðanna drotna yfir þeim, og þeir, sem láta þær kenna á valdi sínu, eru nefndir velgjörðamenn. 26 En eigi skuluð þér svo vera, heldur verði sá, sem mestur er yðar á meðal, eins og hinn yngsti, og foringinn eins og sá er þjónar. 27 Því að hvor er meiri, sá sem situr til borðs, eða sá sem þjónar? Er það ekki sá, sem situr til borðs? En eg er meðal yðar eins og sá, er þjónar. 28 En þér eruð þeir, sem stöðugir hafið verið með mér í freistingum mínum. 29 Og eg fæ yður ríki í hendur, eins og faðir minn hefir fengið mér, 30 til þess að þér getið etið og drukkið við borð mitt í ríki mínu; og þér skuluð sitja í hásætum og dæma hinar tólf ættkvíslir Ísraels. 31 Símon, Símon, sjá, Satan krafðist yðar, til að sælda yður eins og hveiti; 32 en eg hefi beðið fyrir þér, til þess að trú þín þrjóti ekki, og styrk þú bræður þína, þegar þú síðar ert snúinn við. 33 En hann sagði við hann: Herra, með þér er eg reiðubúinn að fara bæði í fangelsi og dauða. 34 Og hann mælti: Eg segi þér, Pétur: haninn mun ekki gala í dag, fyr en þú hefir þrisvar neitað því, að þú þekkir mig.

35 Og hann sagði við þá: Þegar eg sendi yður út án pyngju, mals og skóa, brast yður þá nokkuð? Og þeir sögðu: Nei, ekkert. 36 Og hann sagði við þá: En nú skal sá, sem hefir pyngju, taka hana með sér, sömuleiðis einnig mal, og sá, sem ekki hefir sverð, skal selja yfirhöfn sína og kaupa það. 37 Því eg segi yður, að þetta, sem ritað er, hlýtur að rætast á mér: og með lögbrotsmönnum var hann talinn, því að það, er mig snertir, uppfyllist. 38 En þeir sögðu: Herra, sjá, hér eru tvö sverð. Og hann sagði við þá: Það er nóg.

39 Og hann gekk út og fór eftir venju sinni til Olíufjallsins, og lærisveinarnir fylgdust og með honum. 40 Og þegar hann var kominn á staðinn, sagði hann við þá: Biðjið, að þér fallið ekki í freistingu. 41 Og hann fór frá þeim hér um bil steinsnar og féll á kné og baðst fyrir, segjandi: 42 Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan bikar frá mér! En verði þó ekki minn, heldur þinn vilji! 43 Og honum birtist engill af himni, sem styrkti hann. 44 Og er hann var í dauðans angist, baðst hann enn ákafar fyrir; en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina. 45 Og er hann stóð upp frá bæninni og kom til lærisveinanna, fann hann þá sofandi af hrygð. 46 Og hann sagði við þá: Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, til þess að þér fallið ekki í freistingu.

47 Meðan hann enn var að tala, sjá, þá kom flokkur manna, og sá sem Júdas hét, einn af þeim tólf, gekk á undan þeim. Og hann gekk að Jesú til að kyssa hann. 48 En Jesús sagði við hann: Júdas, svíkur þú mannsins son með kossi? 49 En er þeir, er hjá honum voru, sáu hvað verða mundi, sögðu þeir: Herra, eigum vér að slá með sverði? 50 Og einn af þeim hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. 51 En Jesús svaraði og sagði: Látið hér við staðar nema. Og hann snart eyrað og læknaði hann. 52 Og Jesús sagði við æðstu prestana og varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: Lögðuð þér af stað eins og móti ræningja með sverðum og bareflum? 53 Þegar eg daglega var hjá yður í helgidóminum, þá réttuð þér ekki út hendur gegn mér, en þetta er yðar tími og vald myrkursins.

54 Og þeir handtóku hann og fóru burt með hann, og þeir fóru með hann inn í hús æðsta prestsins; en Pétur fór á eftir álengdar. 55 Og er þeir höfðu kveikt eld í miðjum hallargarðinum og sezt við hann, settist Pétur meðal þeirra. 56 En þerna nokkur sá hann sitja við eldsbirtuna og starði á hann og mælti: Þessi maður var líka með honum. 57 En hann neitaði og sagði: Kona, eg þekki hann ekki. 58 Litlu síðar sá annar hann og sagði: Þú ert og einn af þeim. En Pétur sagði: Maður, eg er það ekki. 59 Og að liðinni hér um bil einni stundu fullyrti og annar maður þetta og sagði: Í sannleika var þessi maður einnig með honum, því að hann er og Galíleumaður. 60 En Pétur mælti: Eg skil ekki, maður, hvað þú segir. Og í sama bili, áður en hann hafði slept orðinu, gól haninn. 61 Og drottinn sneri sér við og leit til Péturs, og Pétur mintist orðs drottins, er hann mælti við hann: Áður en haninn galar í dag, muntu þrisvar afneita mér. 62 Og hann gekk út fyrir og grét sáran.

63 En þeir menn, sem héldu honum, hæddu hann og börðu hann. 64 Og þeir byrgðu fyrir augu hans og spurðu hann og sögðu: Spá þú, hver er það, sem sló þig? 65 Og margt annað sögðu þeir við hann lastmælandi.

66 Og er dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og færðu hann á ráðsamkomu sína, 67 og sögðu: Ef þú ert Kristur, þá seg oss það. En hann sagði við þá: Þótt eg segi yður það, þá munuð þér ekki trúa; 68 og ef eg spyr yður, þá svarið þér ekki. 69 En upp frá þessu mun mannsins sonur sitja til hægri handar Guðs kraftar. 70 Og þeir sögðu allir: Ert þú þá sonur Guðs? Og hann sagði við þá: Þér segið það, því að eg er það. 71 En þeir sögðu: Hvað þurfum vér nú framar vitnis við, því að sjálfir höfum vér heyrt það af munni hans?


23

Og þeir stóðu upp, allur hópurinn, og færðu hann til Pílatusar. 2 Og þeir tóku að ákæra hann, segjandi: Vér höfum komist að raun um, að þessi maður leiðir þjóð vora afvega og bannar að gjalda keisaranum skatt, og segist sjálfur vera Kristur konungur. 3 Og Pílatus spurði hann og sagði: Ertu konungur Gyðinga? En hann svaraði honum og sagði: Þú segir það. 4 Og Pílatus sagði við æðstu prestana og fólkið: Eg finn enga sök hjá þessum manni. 5 En þeir urðu því ákafari og sögðu: Hann æsir upp lýðinn, með því að hann kennir um alla Júdeu, alt frá Galíleu, þar sem hann byrjaði, og hingað. 6 En er Pílatus heyrði það, spurði hann, hvort maðurinn væri Galílei. 7 Og er hann varð þess vís, að hann var úr umdæmi Heródesar, sendi hann hann til Heródesar, sem þessa daga var einnig í Jerúsalem.

8 En er Heródes sá Jesúm, varð hann næsta glaður, því að lengi hafði hann langað til að sjá hann, þar eð hann hafði heyrt um hann; og hann gjörði sér von um, að sjá eitthvert tákn gjört af honum. 9 Og hann spurði hann með mörgum orðum, en hann svaraði honum engu. 10 En æðstu prestarnir og fræðimennirnir stóðu hjá og ákærðu hann harðlega. 11 En Heródes, ásamt hermönnum sínum, óvirti hann og spottaði, og lagði um hann ljómandi klæði og sendi hann aftur til Pílatusar. 12 Og þennan dag urðu þeir Pílatus og Heródes vinir sín á milli, því að áður hafði verið fjandskapur með þeim.

13 Nú kallaði Pílatus saman æðstu prestana og höfðingjana og fólkið 14 og sagði við þá: Þér hafið fært mér þennan mann, svo sem þann, er leiddi lýðinn afvega; og sjá, eg hefi í viðurvist yðar yfirheyrt hann og enga sök fundið hjá manni þessum í því, er þér ákærið hann fyrir. 15 Ekki heldur Heródes, því að hann sendi hann aftur til vor. Og sjá, ekkert er það af honum drýgt, sem dauða sé vert. 16 Ætla eg því að refsa honum og láta hann lausan. 18 En þeir kölluðu upp allir í einu hljóði og sögðu: Burt með þennan mann, en gef oss Barrabas lausan! 19 en hann var maður, sem varpað hafði verið í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt, er orðið hafði í borginni, og manndráp. 20 Og Pílatus talaði aftur til þeirra, því að hann vildi láta Jesúm lausan. 21 En þeir æptu og sögðu: Krossfestu, krossfestu hann! 22 Og í þriðja sinn sagði hann við þá: Hvað ilt hefir þá þessi maður aðhafst? Eg hefi enga dauðasök fundið hjá honum; eg ætla því að refsa honum og láta hann lausan. 23 En þeir sóttu á með ópi miklu og beiddu um, að hann yrði krossfestur; og hróp þeirra tóku yfir. 24 Og Pílatus lagði þann úrskurð á, að beiðni þeirra skyldi verða fullnægt. 25 Og hann gaf lausan manninn, sem fyrir upphlaup og manndráp hafði verið settur í fangelsi, þann er þeir báðu um, en Jesúm framseldi hann vilja þeirra.

26 Og er þeir leiddu hann út, tóku þeir Símon nokkurn frá Kýrene, sem kom utan af landsbygð, og lögðu krossinn á hann, til þess að hann bæri hann eftir Jesú.

27 En honum fylgdi mikill fjöldi af fólkinu og af konum, sem hörmuðu og grétu yfir honum. 28 En Jesús sneri sér til þeirra og mælti: Jerúsalemdætur, grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og yfir börnum yðar. 29 Því að sjá, þeir dagar munu koma, að menn munu segja: Sælar eru óbyrjur og þau móðurlíf, er ekki hafa barn alið, og þau brjóst, er ekki hafa gefið að sjúga. 30 Þá munu menn taka að segja við fjöllin: Hrynjið yfir oss! og við hálsana: Hyljið oss! 31 Því að ef menn gjöra þetta við hið græna tréð, hvernig mun þá fara fyrir hinu visna?

32 Með honum voru og færðir til lífláts tveir menn aðrir, og voru það illvirkjar.

33 Og er þeir komu til þess staðar, sem kallaður er Hauskúpa, krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, en hinn til vinstri. 34 En Jesús sagði: Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra. Og þeir skiftu klæðum hans milli sín og köstuðu hlutum um. 35 Og fólkið stóð og horfði á; en höfðingjarnir gjörðu og gys að honum og sögðu: Öðrum bjargaði hann; bjargi hann nú sjálfum sér, ef hann er hinn smurði Guðs, hinn útvaldi. 36 Sömuleiðis hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik og sögðu: 37 Ef þú ert konungur Gyðinganna, þá bjargaðu sjálfum þér.38 Yfirskrift var og yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGANNA.

39 En annar af illvirkjunum, sem upp voru hengdir, lastmælti honum og sagði: Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur. 40 En hinn svaraði, ávítaði hann og sagði: Hræðist þú ekki einu sinni Guð, þar sem þú ert þó undir sama dómi? 41 Og við erum það með réttu, því að við fáum makleg gjöld fyrir það, sem við höfum gjört, en þessi hefir ekkert rangt aðhafst. 42 Og hann sagði: Jesú, minst þú mín, þegar þú kemur í ríki þínu! 43 Og hann sagði við hann: Sannlega segi eg þér: í dag skaltu vera með mér í Paradís.

44 Og nú var hér um bil sétta stund, og myrkur kom yfir alt landið alt til níundu stundar, 45 við það að sólin misti birtu sinnar. Og fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju. 46 Og Jesús kallaði hárri raustu og sagði: Faðir, í þínar hendur fel eg anda minn! Og er hann hafði þetta mælt, gaf hann upp andann. 47 Og er hundraðshöfðinginn sá það, er við bar, vegsamaði hann Guð og sagði: Sannlega var þessi maður réttlátur. 48 Og er alt fólkið, sem komið hafði saman til að sjá þetta, sá það, er gjörðist, barði það sér á brjóst og sneri aftur. 49 En allir þeir, sem honum voru kunnugir, og konur þær, er honum höfðu fylgt úr Galíleu, stóðu langt frá og sáu þetta.

50 Og sjá, maður er nefndur Jósef; hann var ráðherra, góður maður og réttvís, 51 og hafði hann ekki samþykt ráð og athafnir þeirra; hann var frá Arímaþeu, borg Gyðinga, og vænti guðsríkisins. 52 Þessi maður gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú. 53 Og hann tók hann ofan, sveipaði hann í línklæði og lagði hann í gröf, högna út í stein, sem enginn hafði áður legið í. 54 Og það var aðfangadagur, og hvíldardagurinn fór í hönd. 55 Og konur þær, er komið höfðu með Jesú úr Galíleu, fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður. 56 Og þær sneru aftur og bjuggu út ilmjurtir og smyrsl.


24

Og hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir, samkvæmt boðorðinu. 1 En í birtingu hinn fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar með ilmjurtirnar, er þær höfðu út búið. 2 Og þær fundu steininn veltan frá gröfinni. 3 Og er þær gengu inn, fundu þær ekki líkama drottins Jesú. 4 Og svo bar við, er þær skildu ekkert í þessu, sjá, þá stóðu tveir menn hjá þeim í skínandi klæðum. 5 Og er þær urðu mjög hræddar og hneigðu andlit sín til jarðar, sögðu þeir við þær: Hví leitið þér hins lifanda meðal hinna dauðu? 6 Hann er ekki hér, heldur er hann upprisinn; minnist þess, hvernig hann talaði við yður, meðan hann enn var í Galíleu, og sagði, 7 að mannsins sonur ætti að verða framseldur í hendur syndugra manna og verða krossfestur og upprísa á þriðja degi. 8 Og þær mintust orða hans, 9 og sneru aftur frá gröfinni og kunngjörðu alt þetta þeim ellefu og öllum hinum. 10 En það voru þær María Magdalena og Jóhanna og María, móðir Jakobs; og hinar með þeim sögðu postulunum þetta. 11 Og orð þessi voru í augum þeirra eins og hégómi, og þeir trúðu konunum ekki. 12 En Pétur stóð upp og hljóp til grafarinnar, og er hann gægðist inn, sá hann líkblæjurnar einar; og hann fór heim, undrandi yfir því sem við hafði borið.

13 Og sjá, þennan sama dag voru tveir af þeim á ferð til þorps nokkurs, sem er hér um bil sextíu skeiðrúm frá Jerúsalem, að nafni Emmaus, 14 og voru þeir að tala sín í milli um alt þetta, er við hafði borið. 15 Og svo bar við, er þeir voru að tala saman og ræða um þetta, að sjálfur Jesús nálgaðist þá og slóst í ferð með þeim. 16 En augu þeirra voru haldin, svo að þeir þektu hann ekki. 17 Og hann sagði við þá: Hvaða samræður eru þetta, sem þið hafið ykkar á milli á leið ykkar? Og þeir námu staðar, daprir í bragði. 18 Og annar þeirra, að nafni Kleófas, svaraði og sagði við hann: Ert þú eini aðkomumaðurinn í Jerúsalem og veizt ekki það, sem gjörst hefir í henni á þessum dögum? 19 Og hann sagði við þá: Hvað þá? En þeir sögðu við hann: Það um Jesúm frá Nazaret, sem var spámaður, máttugur í verki og orði fyrir Guði og öllum lýðnum; 20 hvernig æðstu prestarnir og höfðingjar vorir framseldu hann til dauðadóms og krossfestu hann. 21 En vér vonuðum, að hann væri sá, er frelsa mundi Ísrael; já, og auk alls þessa er í dag þriðji dagurinn síðan þetta bar við. 22 Enn fremur hafa og konur nokkurar úr vorum flokki, er árla voru við gröfina, gjört oss forviða; 23 þær fundu ekki líkamann, og komu og sögðu, að þær hefðu jafnvel séð engla í sýn, sem hefðu sagt hann lifa. 24 Og nokkurir af þeim, sem með oss voru, fóru til grafarinnar og fundu alt eins og konurnar höfðu sagt, en hann sáu þeir ekki. 25 Og hann sagði við þá: Ó, þér heimskir og í hjartanu tregir til að trúa öllu því, sem spámennirnir hafa talað! 26 Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga inn í dýrð sína? 27 Og hann byrjaði á Móse og á öllum spámönnunum, og útlagði fyrir þeim í öllum ritningunum það, er hljóðaði um hann. 28 Og þeir nálguðust nú þorpið, sem þeir ætluðu til, og hann lét sem hann ætlaði að fara lengra. 29 Og þeir lögðu fast að honum og sögðu: Vertu hjá oss, því að kvelda tekur og liðið er á daginn. Og hann fór inn, til að vera hjá þeim. 30 Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, blessaði og braut það og fékk þeim. 31 Þá opnuðust augu þeirra, og þeir þektu hann, og þá varð hann þeim ósýnilegur. 32 Og þeir sögðu hvor við annan: Brann ekki hjartað í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritningunum? 33 Og þeir stóðu samstundis upp og fóru aftur til Jerúsalem og fundu þá ellefu samansafnaða og þá, sem með þeim voru, sem sögðu: 34 Sannarlega er drottinn upprisinn og hefir birzt Símoni. 35 Og hinir sögðu frá því, sem við hafði borið á veginum, og hvernig þeir hefðu þekt hann í því er brauðið var brotið.

36 En þegar þeir voru að tala um þetta, stóð hann sjálfur meðal þeirra og segir við þá: Friður sé með yður! 37 En þeir urðu skelfdir og hræddir og hugðust sjá anda. 38 Og hann sagði við þá: Hví eruð þér óttaslegnir? og hvers vegna vakna efasemdir í hjarta yðar? 39 Lítið á hendur mínar og fætur, að það er eg sjálfur. Þreifið á mér og lítið á; því að andi hefir ekki hold og bein, eins og þér sjáið mig hafa. 40 Og er hann hafði þetta mælt, sýndi hann þeim hendur sínar og fætur. 41 En er þeir enn þá trúðu ekki fyrir fögnuði og voru fullir undrunar, sagði hann við þá: Hafið þér hér nokkuð til matar? 42 Og þeir lögðu fyrir hann stykki af steiktum fiski. 43 Og hann tók það og neytti þess frammi fyrir þeim.

44 En hann sagði við þá: Þetta eru þau orð mín, sem eg talaði við yður, meðan eg enn var með yður, að rætast ætti alt það, sem ritað er í lögmáli Móse og spámönnunum og sálmunum um mig. 45 Síðan lauk hann upp hugskoti þeirra, til þess að þeir skildu ritningarnar, 46 og sagði við þá: Svo er skrifað, að Kristur mundi líða og upp rísa frá dauðum á þriðja degi, 47 og að boðað skyldi verða í nafni hans öllum þjóðum iðrun og syndafyrirgefning, sem byrja skyldi í Jerúsalem. 48 Þér eruð vottar þessara hluta. 49 Og sjá, eg sendi fyrirheit föður míns yfir yður; en þér skuluð vera kyrrir í borginni, unz þér íklæðist krafti frá hæðum.

50 Og hann fór með þá út í nánd við Betaníu, og hann hóf upp hendur sínar og blessaði þá. 51 Og svo bar við, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og varð upp numinn til himins. 52 Og þeir tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. 53 Og þeir voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.

* þeirra