Síðara almenna bréf Péturs

1

Símon Pétur, þjónn og postuli Jesú Krists, til þeirra, sem hlotið hafa jafndýrmæta trú og vér fyrir réttlæti Guðs vors og frelsara Jesú Krists; 2 náð og friður margfaldist yður til handa með þekkingu á Guði og Jesú drotni vorum. 3 Þar eð hans guðdómlegi máttur hefir veitt oss alt, sem heyrir til lífs og guðrækni með þekkingunni á þeim, sem kallaði oss með sinni eigin dýrð og dáð, 4 og með því hefir hann veitt oss hin dýrmætu og stórmiklu fyrirheit, til þess að þér fyrir þau skylduð verða hluttakandi í guðlegu eðli, er þér hafið komist undan girndaspillingunni, sem er í heiminum, 5 þá leggið einmitt þessa vegna alla stund á þetta, og auðsýnið í trú yðar dygðina, en í dygðinni þekkinguna, 6 en í þekkingunni bindindið, en í bindindinu þolgæðið, en í þolgæðinu guðræknina, 7 en í guðrækninni bróðurelskuna, en í bróðurelskunni kærleikann. 8 Því að ef þessir hlutir eru hjá yður og fara vaxandi, munu þeir ekki láta yður vera iðjulausa né ávaxtarlausa í þekkingu drottins vors Jesú Krists; 9 því að sá, sem ekki hefir þessa hluti, er blindur í skammsýni sinni, er hann hefir gleymt hreinsun hinna fyrri synda sinna. 10 Kostið þess vegna því fremur kapps um, bræður, að gjöra köllun yðar og útvalningu vissa; því ef þér gjörið þetta, munuð þér ekki nokkuru sinni hrasa; 11 því að á þann hátt mun yður ríkulega veitast inngangur í hið eilífa ríki drottins vors og frelsara Jesú Krists.

12 Þess vegna ætla eg mér ávalt að áminna yður um þetta, þótt þér vitið það og þér standið stöðugir í þeim sannleika, sem hjá yður er. 13 Og eg álít það rétt, á meðan eg er í þessari tjaldbúð, að vekja yður með áminningu, 14 því að eg veit, að þess er skamt að bíða að tjaldbúð minni verði svift, eins og sjálfur drottinn vor Jesús Kristur birti mér; 15 og eg vil einnig leggja kapp á, að þér ætíð eftir burtför mína getið minst þessara hluta. 16 Því að ekki fylgdum vér spaklega uppspunnum skröksögum, er vér kunngjörðum yður mátt og tilkomu drottins vors Jesú Krists, heldur vorum vér sjónarvottar að hátign hans, 17 því að hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð, þá er þvílík raust barst honum frá hinni hátignarfullu dýrð: »Þessi er sonur minn, hinn elskaði, sem eg hefi velþóknun á«. 18 Og þessa raust heyrðum vér sjálfir koma frá himni, þá er vér vorum með honum á fjallinu helga. 19 Og vér höfum því meiri vissu fyrir hinu spámannlega orði, og þér breytið vel, ef þér gefið gaum að því eins og lampa, sem skín á myrkum stað, þangað til dagur ljómar og morgunstjarna rennur upp í hjörtum yðar. 20 Vitið það umfram alt, að enginn ritningar-spádómur verður þýddur af sjálfum sér. 21 Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn frá Guði bornir af heilögum anda.


2

En falsspámenn komu einnig upp meðal lýðsins, eins og falskennendur munu líka verða á meðal yðar, er smeygja munu inn háskalegum flokkum og jafnvel afneita herra sínum, sem keypti þá, og leiða yfir sig sjálfa bráða glötun, 2 og margir munu fylgja ólifnaði þeirra, og sakir þeirra mun vegi sannleikans verða lastmælt, 3 og af ágirnd munu þeir með uppspunnum orðum hafa yður fyrir fé; en dómurinn yfir þeim frá fyrri tíð dvelur ekki, og glötun þeirra blundar ekki. 4 Því að ef Guð þyrmdi ekki englum, er þeir syndguðu, heldur steypti þeim niður í undir-djúpin og setti þá í myrkra-gryfjur, til þess að þeir varðveittust til dóms, 5 og ekki þyrmdi hann hinum forna heimi, en varðveitti Nóa, prédikara réttlætisins, við áttunda mann, er hann lét vatnsflóð koma yfir heim hinna óguðlegu, 6 og brendi borgirnar Sódómu og Gómorru til ösku og dæmdi þær til eyðileggingar, er hann hafði sett þær þeim til dæmis, sem mundu lifa óguðlega, 7 og frelsaði hinn réttláta Lot, er kvaldist af svívirðilegum lifnaði hinna guðlausu, — 8 því að hinn réttláti maður, sem bjó á meðal þeirra, kvaldist í sinni réttlátu sálu dag frá degi af þeim ólöglegu verkum, er hann sá og heyrði, — 9 þannig veit drottinn, hvernig hann á að hrífa hina guðhræddu úr freistingu, en geyma hina ranglátu, undirorpna hegningu, til dómsdags, 10 en einkum þá, sem ganga eftir holdinu í saurlífisfýsn og fyrirlíta herradóma. Sem fífldjarfir sjálfbirgingar skelfast þeir ekki við að lastmæla tignum, 11 þar sem englar, þótt meiri séu að mætti og valdi, eigi kveða upp löstunardóm gegn þeim hjá drotni. 12 En eins og skynlausar skepnur, sem fæddar eru með líkamseðli til að veiðast og fyrirfarast, lastmæla þessir menn því, sem þeir ekki þekkja, og munu einnig verða eyðilagðir á sama hátt sem þær, 13 og verða fyrir ranglæti að ranglætis-verðlaunum. Munað að degi til meta þeir sem nautn, þeir, blettirnir og ósóminn, lifa svallsamlega við kærleiksmáltíðir sínar, þegar þeir sitja að veizlum með yður; 14 þeir hafa augu full hórdóms, og þeir eru sísyndgandi og fleka óstyrkar sálir; þeir hafa hjarta æft í ágirnd; þeir eru bölvunarinnar börn; 15 þeir hafa yfirgefið réttan veg og hafa vilst, þar sem þeir hafa fylgt vegi Bíleams, sonar Beórs, sem elskaði ranglætislaun, 16 en hann varð að sæta ávítun fyrir glæp sinn. Mállaus eykurinn talaði manna-máli og aftraði fásinnu spámannsins. 17 Þessir menn eru vatnslausir brunnar og þoka, hrakin af hvassviðri, og er þeim geymd dimma myrkursins. 18 Því að þegar þeir láta klingja drembileg hégómaorð, tæla þeir með holdlegum girndum, með svívirðilegum lifnaði þá, sem fyrir skömmu hafa sloppið frá þeim, sem ganga í villu; 19 þeir heita þeim frelsi, þótt þeir séu sjálfir þrælar spillingarinnar, því að sérhver verður þræll þess, sem hann hefir beðið ósigur fyrir. 20 Því að ef þeir, sem með þekking drottins vors og frelsara Jesú Krists voru slopnir frá saurugleika heimsins, flækja sig í honum af nýju og bíða ósigur, þá er hið síðara orðið fyrir þá verra en hið fyrra. 21 Því að betra hefði þeim verið að hafa ekki gjörþekt veg réttlætisins, heldur en að hafa gjörþekt hann og snúa síðan aftur frá hinu heilaga boðorði, sem þeim hafði verið gefið. 22 Fram á þeim hefir komið sannmæli þetta: Hundur snýr aftur til spýju sinnar, og þvegið svín, til að velta sér í saur.


3

Þetta er nú annað bréfið, sem eg skrifa yður, þér elskaðir, og í þeim báðum er eg með áminningu að vekja hið hreinskilna hugskot yðar, 2 til þess að þér minnist orða þeirra, er hinir heilögu spámenn hafa áður talað, og skipunar drottins vors og frelsarans, er postular yðar hafa flutt, 3 og þetta skuluð þér þá fyrst vita, að á hinum síðustu dögum munu koma spottarar með spotti, er framganga eftir eigin girndum 4 og segja: Hvað verður úr fyrirheitinu um tilkomu hans? Því að frá því feðurnir sofnuðu stendur alt við sama eins og frá upphafi hins skapaða. 5 Því að viljandi gleyma þeir því, að himnar voru til forðum og jörð mynduð af vatni og með vatni fyrir orð Guðs, 6 og við það gekk vatnsflóðið yfir þann heim, sem þá var, svo að hann fórst; 7 en þeir himnar, sem nú eru, og jörðin geymast eldinum fyrir hið sama orð, og varðveitast til þess dags, er hinir óguðlegu menn munu dæmast og tortímast.

8 En þetta eitt má yður ekki gleymast, þér elskuðu, að einn dagur er hjá drotni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9 Ekki er drottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar. 10 En dagur drottins mun koma sem þjófur, og þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin sundurleysast í brennandi hita, og jörðin og þau verk, sem á henni eru, uppbrenna. 11 Þar eð alt þetta ferst þannig, hvílíkum mun yður þá byrja að vera, með heilagri breytni og guðrækni, 12 þannig að þér væntið eftir og þráið innilega tilkomu Guðs dags, en vegna þess dags munu himnarnir sundurleysast í eldi og frumefni bráðna af brennandi hita. 13 En vér væntum eftir fyrirheiti hans nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr.

14 Fyrir því stundið, þér elskuðu, með því að þér væntið slíkra hluta, að vera í friði flekklausir og lýtalausir frammi fyrir honum, 15 og álitið langlyndi drottins vors vera hjálpræði, eins og hinn elskaði bróðir vor Páll hefir ritað yður, eftir þeirri speki, sem honum er gefin, 16 eins og einnig í öllum bréfum hans, er hann í þeim talar um þetta; en í þeim er sumt þungskilið, er fáfróðir og staðfestulausir menn rangsnúa, eins og öðrum ritum, sér sjálfum til tortímingar. 17 Gætið yðar þess vegna, þér elskaðir, með því að þér vitið þetta fyrirfram, til þess að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá yðar eigin staðfestu. 18 En vaxið í náð og þekkingu drottins vors og frelsara Jesú Krists. Honum sé dýrðin bæði nú og til eilífrar tíðar. Amen.