Hið almenna bréf Jakobs

1

Jakob, þjónn Guðs og drottins Jesú Krists, heilsar hinum tólf kynkvíslum í dreifingunni.

2 Álítið það, bræður mínir, eingöngu gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir, 3 með því að þér vitið að reynsla trúar yðar verkar þolgæði, 4 en þolgæðið á að hafa fullkomið verk, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörðir og yður sé í engu ábótavant.

5 En ef einhvern yðar brestur vizku, þá biðji hann Guð um hana, hann sem gefur öllum örlátlega og án brigzlyrða, og hún mun honum gefast; 6 en hann á að biðja með trú, án þess að efast, því að sá sem efast, er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi. 7 Sá maður má eigi ætla, að hann fái nokkuð hjá drotni, 8 hann sem er tvílyndur maður, reikull á öllum vegum sínum.

9 En hinn lágt setti bróðir hrósi sér af upphefð sinni, 10 en hinn auðugi af lægingu sinni, því hann mun líða undir lok eins og blóm á grasi; 11 því að sólin kemur upp með steikjandi hita og brennir grasið, og blóm þess dettur af og fegurð útlits þess verður að engu; þannig mun og hinn auðugi maður visna upp á vegum sínum.

12 Sæll er sá maður, sem stenzt freistingu, því að þegar búið er að reyna hann, þá mun hann meðtaka kórónu lífsins, sem hann hefir heitið þeim, er elska hann. 13 Enginn má segja, er hann freistast: eg freistast af Guði, því að Guð getur eigi freistast af hinu illa og sjálfur freistar hann einskis manns; 14 en sérhver freistast við það, að hann er dreginn og tældur af sinni eigin girnd; 15 þegar girndin síðan er orðin þunguð, elur hún synd, og þegar syndin er orðin fullþroskuð, fæðir hún dauða. 16 Villist ekki, bræður mínir elskaðir! 17 Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að og kemur niður frá föður ljósanna, hjá hverjum hvorki er umbreyting né umhverfingarskuggi. 18 Eftir ráðsályktun sjálfs sín fæddi hann oss með sannleiksorði, til þess að vér skyldum vera nokkurs konar frumgróði skepna hans.

19 Vitið, bræður mínir elskaðir: hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði, 20 því að reiði manns vinnur ekki réttlæti Guðs; 21 afleggið því hvers konar saurugleik og vonzkugnægð og meðtakið með hógværð hið gróðursetta orð, er frelsað getur sálir yðar. 22 En verðið gjörendur orðsins, og eigi aðeins heyrendur, svíkjandi sjálfa yður. 23 Því að ef einhver er heyrandi orðsins og ekki gjörandi, þá er hann líkur manni, er skoðar sitt meðfædda andlit í skuggsjá; 24 því að hann skoðaði sjálfan sig, og fór burt og gleymdi jafnskjótt hvernig hann var. 25 En sá sem skygnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það, og ekki er orðinn gleyminn heyrandi, heldur gjörandi verksins, hann mun sæll verða í framkvæmdum sínum. 26 Ef einhver þykist vera guðrækinn, en hefir ekki taumhald á tungu sinni, heldur leiðir hjarta sitt afvega, þá er dýrkun hans fánýt. 27 Hrein og óflekkuð dýrkun fyrir Guði og föður er þetta, að vilja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig flekklausan af heiminum.


2

Bræður mínir, látið ekki trúna á drottin vorn Jesúm Krist dýrðarinnar vera samfara manngreinaráliti; 2 því að ef maður kemur inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skínandi klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum, 3 og yður verður starsýnt á þann, sem ber hin skínandi klæði, og þér segið: Set þig hér í gott sæti! en þér segið við fátæka manninn: Stattu þar, eða settu þig fyrir neðan fótskör mína! 4 hafið þér þá ekki gjört greinarmun með sjálfum yður, og eruð orðnir dómendur með vondum hugsunum? 5 Heyrið, bræður mínir elskaðir, hefir Guð ekki útvalið hina fátæku fyrir heiminum, til þess að þeir verði auðugir í trú og erfingjar þess ríkis, er hann hefir heitið þeim, sem elska hann? 6 En þér hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku, sem undiroka yður og draga fyrir dómstóla? 7 Eru það ekki þeir, sem lastmæla hinu góða nafni, sem nefnt hefir verið yfir yður? 8 Ef þér þá uppfyllið hið konunglega boðorð samkvæmt ritningunni: Elska skaltu náunga þinn sem sjálfan þig, þá gjörið þér vel; 9 en ef þér farið í manngreinarálit, þá drýgið þér synd, og það er sannað upp á yður af lögmálinu, að þér séuð yfirtroðslumenn. 10 Því hver sem kynni að halda alt lögmálið, en hrasar í einu, hann er orðinn sekur við öll boðorðin. 11 Því sá, sem sagði: Þú skalt ekki hórdóm drýgja, hann sagði líka: Þú skalt ekki mann vega. En þó að þú ekki drýgir hór, en þú vegur mann, þá ertu orðinn yfirtroðslumaður lögmálsins. 12 Talið þannig og breytið þannig, sem þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins. 13 Því að dómurinn verður miskunnarlaus þeim, sem ekki auðsýndi miskunn; miskunnsemin er óhrædd við dóm.

14 Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefir eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann? 15 Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi, 16 en einhver yðar segði við þau: Farið í friði, vermið yður og mettið! en þér gefið þeim ekki það sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það? 17 Eins er líka trúin, hafi hún ekki verk, þá er hún dauð í sjálfri sér. 18 En nú segir einhver: Þú hefir trú og eg hefi verk; sýn mér þá trú þína án verkanna, og eg skal sýna þér trúna af verkum mínum. 19 Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel; en illu andarnir trúa því líka og skelfast. 20 En fávísi maður, vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna? 21 Réttlættist ekki Abraham faðir vor af verkum, er hann hafði lagt son sinn Ísak upp á altarið? 22 Þú sér, að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist af verkunum, 23 og ritningin rættist, sem segir: Og Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað, og hann var kallaður Guðs vinur. 24 Þér sjáið, að maðurinn réttlætist af verkum, og ekki aðeins af trú. 25 Svo var og um skækjuna Rahab; réttlættist hún ekki af verkum, er hún hafði tekið við sendimönnunum og látið þá fara burt aðra leið? 26 Því að eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.


3

Gjörist eigi, bræður mínir, margir kennarar, með því að þér vitið, að vér munum fá þyngri dóm; 2 því að allir hrösum vér í mörgu. Hrasi einhver ekki í orði, þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn jafnvel á öllum líkama sínum. 3 Ef vér leggjum hestunum beizli í munn, til þess að þeir hlýði oss, þá getum vér stýrt öllum líkama þeirra. 4 Sjá einnig skipin, svo stór sem þau eru, og rekin af hörðum vindum; þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill. 5 Þannig er einnig tungan lítill limur, en lætur mikið yfir sér. Sjá, hversu lítill neisti getur kveikt í svo miklum skógi. — 6 Tungan er og eldur; tungan, ranglætisheimurinn, er meðal lima vorra; hún flekkar allan líkamann og kveikir í hjóli tilverunnar, en í henni er kveikt af helvíti. 7 Því að allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikinda og sjávardýra, temjast og hafa verið tamin af kyni mannanna; 8 en tunguna getur enginn af mönnunum tamið, þessa óhemju, sem full er með banvænt eitur. 9 Með henni vegsömum vér drottin og föðurinn, og með henni formælum vér mönnunum, sem skapaðir eru eftir líkingu Guðs. 10 Af sama munni gengur fram blessun og bölvun, þetta má ekki svo vera, bræður mínir. 11 Gefur lindin úr sama uppsprettuauga bæði sætt og beiskt vatn? 12 Mun fíkjutré, bræður mínir, geta af sér gefið olífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið sætt vatn. — 13 Hver er vitur og skynsamur yðar á meðal? Hann sýni af góðri hegðun verk sín í hógværð spekinnar. 14 En ef þér hafið beiskan ofsa og eigingirni í hjarta yðar, þá stærið yður ekki og ljúgið ekki gegn sannleikanum. 15 Sú speki kemur ekki ofan að, heldur er hún jarðnesk, náttúrleg, djöfulleg. 16 Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns ill háttsemi. 17 En sú speki, sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, þar næst friðsöm, ljúfleg, sannsýn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus; 18 en ávexti réttlætisins verður sáð í friði þeim til handa, sem frið semja.


4

Af hverju koma stríð og af hverju bardagar á meðal yðar? Af hverju öðru en af girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar? 2 Þér girnist og fáið ekki, þér drepið og öfundið, og getið þó ekki öðlast; þér berjist og stríðið; þér fáið ekki, af því að þér biðjið ekki. 3 Þér biðjið, og öðlist ekki, af því að þér biðjið illa, til þess að þér getið sóað því í munaði yðar. 4 Þér hórkonur, vitið þér ekki, að vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði? Hver sem því vill vera vinur heimsins, hann gjörir sig að óvini Guðs? 5 Eða haldið þér að ritningin fari með hégóma? Þráir hann ekki með vandlæti andann, sem hann gaf bústað í oss? En hann gefur meiri náð; 6 þess vegna segir hún: Guð stendur í gegn dramblátum, en auðmjúkum gefur hann náð. 7 Gjörist því undirgefnir Guði; standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja frá yður. 8 Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið flekklaus hjörtun, þér tvílyndu. 9 Berið yður illa, syrgið og grátið; hlátur yðar skal umbreytast í sorg og gleðin í dapurleik. 10 Auðmýkið yður fyrir drotni, og hann mun upphefja yður.

11 Talið ekki illa hver um annan, bræður. Sá sem talar illa um bróður sinn eða dæmir bróður sinn, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið; en ef þú dæmir lögmálið, þá ert þú ekki lögmálsins gjörandi, heldur dómari. 12 Einn er löggjafinn og dómarinn, sá sem getur frelsað og tortímt. En hver ert þú, sem dæmir náungann?

13 Heyrið, þér sem segið: Í dag eða á morgun skulum vér fara til þeirrar eða þeirrar borgar, dveljast þar eitt ár, og verzla og græða! 14 þér sem ekki vitið, hvað á morgun mun verða; hvílíkt er líf yðar? Því að þér eruð gufa, sem sést um stutta stund, en hverfur síðan. 15 Í stað þess ættuð þér að segja: Ef drottinn vill, þá bæði lifum vér og munum gjöra þetta eða hitt. 16 En nú stærið þér yður í yðar oflátungskap; alt slíkt stærilæti er vont. 17 Hver, sem því hefir vit á gott að gjöra og gjörir það ekki, honum er það synd.


5

Heyrið nú, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim eymdum, sem yfir yður munu koma. 2 Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin, 3 gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið, og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur; þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum. 4 Sjá, laun verkamannanna, sem hafa slegið lönd yðar, þau er þér hafið haft af þeim, hrópa, og köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna drottins hersveitanna. 5 Þér hafið lifað í sællífi á jörðunni og í óhófi; þér hafið alið hjörtu yðar á slátrunardegi. 6 Þér hafið sakfelt, þér hafið drepið hinn réttláta; hann stendur ekki í gegn yður.

7 Þreyið því, bræður, þangað til drottinn kemur. Sjá, akuryrkjumaðurinn bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum, þangað til hann hefir fengið haustregn og vorregn. 8 Þreyið og þér, styrkið hjörtu yðar, því að tilkoma drottins er í nánd. 9 Kvartið ekki hver yfir öðrum, bræður, til þess að þér verðið ekki dæmdir; sjá, dómarinn stendur fyrir dyrunum. 10 Bræður, takið spámennina, sem talað hafa í nafni drottins, til fyrirmyndar í að líða ilt og í þolinmæði. 11 Sjá, vér teljum þá sæla, sem þolgóðir hafa verið; þér hafið heyrt um þolgæði Jobs og vitið endalokin, sem drottinn gjörði, því að drottinn er mjög miskunnsamur og líknsamur.

12 En umfram alt, bræður mínir, sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina, né nokkurn annan eið, en yðar já sé já, yðar nei sé nei, til þess að þér fallið ekki undir dóm.

13 Líði nokkurum illa yðar á meðal, þá biðji hann; liggi vel á einhverjum, þá syngi hann lofsöng. 14 Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins, og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni drottins og biðjast fyrir yfir honum; 15 og trúarbænin mun gjöra hinn sjúka heilan og drottinn mun reisa hann á fætur, og þær syndir, sem hann kann að hafa drýgt, munu honum verða fyrirgefnar. 16 Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.

17 Elía var maður sama eðlis og vér, og hann bað þess heitt, að ekki skyldi rigna, og það rigndi ekki yfir landið í þrjú ár og sex mánuði; 18 og hann bað aftur, og himininn gaf regn og jörðin bar sinn ávöxt.

19 Bræður mínir, ef einhver meðal yðar villist frá sannleikanum, og einhver snýr honum, 20 þá viti hann, að hver, sem snýr syndara frá villu vegar hans, mun frelsa sálu frá dauða og hylja fjölda synda.