Svarfdæla saga

Svarfdæla saga„Svarfdæla saga (eða Svarfdæla) er fornsaga sem telst til Íslendingasagna. Hún segir frá landnámi í Svarfaðardal og deilum og vígaferlum í dalnum á landnámsöld. Þar áttust við Ljótólfur goði á Hofi og Þorsteinn svörfuður á Grund og þeirra menn. Frásögnin er allstórbrotin þar sem berserkurinn og skáldið Klaufi Hafþórsson kemur mikið við sögu bæði lífs og liðinn og hin skapmikla Ingveldur fagurkinn. Þótt margt sé heldur ótrúlegt í frásögninni hafa fornminjar þótt benda til þess að í henni sé sannsögulegur kjarni. Skáldsögur, leikrit og söngvar hafa verið samin upp úr Svarfdælu.“#

Epub / Kindle