Postulasagan

1

Fyrri frásöguna samdi eg, Þeófílus, um alt sem Jesús hóf að gjöra og kenna, 2 til þess dags er hann var upp numinn, eftir að hann hafði fyrir heilagan anda boðorð gefið postulunum, er hann hafði valið, 3 sem hann og sýndi sig lifandi eftir písl sína með mörgum órækum kennimerkjum, er hann lét þá sjá sig í fjörutíu daga, og talaði um það, sem guðsríki heyrir til; 4 og er hann kom saman við þá, bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem, heldur bíða eftir fyrirheiti föðurins, sem þér — sagði hann — hafið heyrt mig tala um, 5 því að Jóhannes skírði með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga.

6 Og er þeir nú komu saman, spurðu þeir hann og sögðu: Herra, endurreisir þú á þessum tíma ríkið handa Ísrael? 7 Og hann sagði við þá: Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs síns valdi; 8 en þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir bæði í Jerúsalem og í allri Júdeu og Samaríu og til yztu endimarka jarðarinnar. 9 Og er hann hafði talað þetta, varð hann upp numinn, að þeim ásjáandi, og ský nam hann frá augum þeirra. 10 Og er þeir störðu til himins, þegar hann fór burt, sjá, þá stóðu tveir menn hjá þeim í hvítum klæðum, 11 er sögðu: Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem var upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.

12 Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem frá Olíufjallinu, sem svo er nefnt og er í nánd við Jerúsalem, hvíldardagsleið þaðan. 13 Og er þeir voru inn komnir, fóru þeir upp í loftstofuna, þar sem þeir héldu til, þeir Pétur og Jóhannes og Jakob og Andrés, Filippus og Tómas, Bartólómeus og Matteus, Jakob Alfeusson og Símon vandlætari og Júdas Jakobsson. 14 Allir þessir voru með einum huga stöðugir í bæninni, ásamt konunum og Maríu, móður Jesú, og ásamt bræðrum hans.

15 Og á þessum dögum stóð Pétur upp á meðal bræðranna — og þar var saman kominn flokkur manna, hér um bil eitt hundrað og tuttugu að tölu — og mælti: 16 Þér bræður, rætast hlaut ritning sú, er heilagur andi hafði fyrir sagt, fyrir munn Davíðs um Júdas, sem gjörðist leiðtogi þeirra, er höndluðu Jesúm; 17 því að hann var talinn í vorum hóp og honum hlotnaðist hlutdeild í þessari þjónustu; — 18 þessi maður hefir nú eignast reit fyrir laun ranglætisins, og hann steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju, og iðrin öll féllu út; 19 og það varð kunnugt öllum, sem í Jerúsalem búa, svo að reitur sá var kallaður á tungu þeirra Akeldama, það er: blóðreitur. — 20 Því að ritað er í sálmabókinni: Bústaður hans skal í eyði verða, og enginn skal í honum búa, og annar taki embætti hans. 21 Því hæfir að einhver þeirra manna, sem með oss hafa verið allar stundir, meðan drottinn Jesús gekk inn og út vor á meðal, 22 síðan er skírn Jóhannesar hófst, til þess dags er hann var upp numinn frá oss, verði vottur upprisu hans ásamt oss. 23 Og þeir tóku tvo til, Jósef, kallaðan Barsabas, að auknefni Jústus, og Mattías; 24 og þeir báðust fyrir og sögðu: Drottinn, þú sem þekkir hjörtu allra, sýn þú, hvorn af þessum tveimur þú hefir valið 25 til að taka sæti þjónustu þessarar og postuladóms, er Júdas varð fráskila, til að fara til síns eigin staðar. 26 Og þeir hlutuðu um þá, og hluturinn féll á Mattías, og var hann talinn með postulunum ellefu.


2

Og er nú var kominn hvítasunnudagurinn, voru þeir allir saman komnir á einum stað; 2 og skyndilega varð gnýr af himni, eins og aðdynjanda sterkviðris, og fylti alt húsið, sem þeir sátu í; 3 og þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á einn og sérhvern þeirra; 4 og þeir urðu allir fullir af heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.

5 En þar voru Gyðingar búsettir í Jerúsalem, guðræknir menn, af öllum þjóðum undir himninum. 6 En er þetta hljóð heyrðist, kom mannfjöldinn saman, og honum brá mjög við, því að þeir heyrðu, hver og einn, þá mæla á sína tungu. 7 Og allir urðu forviða og undruðust, segjandi: Sjá, eru ekki allir þessir, sem tala, Galíleumenn? 8 Og hvernig heyrum vér, hver og einn, talað á eigin tungu vorri, er vér erum fæddir með: 9 Partar og Medar og Elamítar, og vér sem heima eigum í Mesopótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu; 10 í Frýgíu og Pamfýlíu, Egiptalandi og Líbýubygðum við Kýrene, og vér Rómverjar, sem hér höfum sezt að, 11 bæði Gyðingar, og þeir, sem gjörst hafa Gyðingar, Kríteyingar og Arabar, vér heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs? 12 En þeir urðu allir frá sér og forviða, og sögðu hver við annan: Hvað ætlar úr þessu að verða? 13 En aðrir höfðu að spotti og sögðu: Þeir eru druknir af sætu víni.

14 Og Pétur reis upp ásamt þeim ellefu, hóf upp rödd sína og ávarpaði þá: Þér Gyðingar, og allir þér, sem í Jerúsalem búið, þetta sé yður vitanlegt, og ljáið eyru orðum mínum; 15 því að eigi eru þessir menn druknir, svo sem þér ætlið, því að nú er þriðja stund dags; 16 heldur er þetta það, sem sagt hefir verið fyrir Jóel spámann: 17 Og það mun verða á hinum efstu dögum, segir Guð, að eg mun úthella af anda mínum yfir alt hold; synir yðar og dætur yðar munu spá, og ungmenni yðar munu sjá sjónir, og gamalmenni yðar mun drauma dreyma. 18 Já, einnig yfir þræla mína og yfir ambáttir mínar mun eg á þeim dögum úthella af anda mínum, og þau munu spá. 19 Og eg mun láta undur verða á himnum uppi og tákn á jörðu niðri, blóð og eld og reykjarsvælu. 20 Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður en hinn mikli og dýrlegi dagur drottins kemur. 21 Og svo mun verða, að hver sem ákallar nafn drottins, mun frelsast. 22 Þér Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesúm frá Nazaret, mann þann, er Guð auðkendi fyrir yður með kraftaverkum og undrum og táknum, sem Guð gjörði fyrir hann yðar á meðal, svo sem þér sjálfir vitið, — 23 hann hafið þér, er hann var framseldur eftir fyrirhuguðu ráði Guðs og fyrirvitund, neglt á kross með höndum vondra manna og tekið af lífi, — 24 hann uppvakti Guð, er hann létti af kvölum dauðans, því að ekki var það mögulegt, að hann skyldi, af honum haldinn verða; 25 því að Davíð segir með tilliti til hans: Ávalt hafði eg drottin fyrir augum mér, því að hann er mér til hægri hliðar, til þess að eg bifist ekki. 26 Fyrir því gladdist hjarta mitt, og tunga mín fagnaði, og meira að segja mun og hold mitt hvíla í von. 27 Því að ekki munt þú eftir skilja sálu mína í helju, og eigi heldur munt þú láta þinn heilaga sjá rotnun. 28 Kunna gjörðir þú mér lífsins vegu; þú munt mig með fögnuði fylla fyrir þínu augliti. 29 Þér bræður, skorinort get eg við yður talað um ættföðurinn Davíð, að hann er bæði dáinn og grafinn, og leiði hans er til hjá oss alt til þessa dags. 30 Af því að hann nú var spámaður, og vissi að Guð hafði með eiði svarið honum, að setja í hásæti hans mann af ávexti lendar hans, 31 sá hann það fyrir og talaði um upprisu Krists, því að hvorki var hann eftir skilinn í helju, og eigi heldur sá hold hans rotnun; — 32 þennan Jesúm uppvakti Guð, og erum vér allir vottar þess. 33 Þegar hann því nú með Guðs hægri hendi er upp hafinn, og hefir af föðurnum fengið fyrirheitið um heilagan anda, hefir hann úthelt honum, sem þér sjáið og heyrið. 34 Því að ekki sté Davíð til himna, en hann segir sjálfur: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, 35 þangað til eg gjöri óvini þína að fótaskör þinni. 36 Með óbrigðanlegri vissu viti þá alt Ísraels hús, að Guð hefir gjört hann bæði að drotni og að Kristi, þennan Jesúm, sem þér krossfestuð.

37 En er þeir heyrðu þetta, stungust þeir í hjörtun og sögðu við Pétur og hina postulana: Hvað eigum vér að gjöra, bræður? 38 En Pétur sagði við þá: Gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar, og þér munuð öðlast gjöf heilags anda; 39 því að yður er ætlað fyrirheitið og börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru — öllum þeim, sem drottinn Guð vor kallar til sín. 40 Og með öðrum fleiri orðum bar hann vitni, og áminti þá, segjandi: Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð. 41 Þeir, sem þá meðtóku orð hans, voru skírðir, og á þeim degi bættust við hér um bil þrjú þúsund sálir. 42 Og þeir héldu sér stöðuglega við kenningu postulanna og samfélagið og brotning brauðsins og bænirnar.

43 En ótti kom yfir sérhverja sál, og mörg undur og tákn gjörðust af postulunum. 44 En allir þeir sem trúðu voru saman og höfðu alt sameiginlegt, 45 og þeir seldu eignir sínar og fjármuni, og skiftu því meðal allra, eftir því sem hver hafði þörf til. 46 Og daglega héldu þeir sér með einum huga stöðugt í helgidóminum og brutu brauð í heimahúsum, og neyttu fæðu með fögnuði og einfaldleik hjartans, 47 og lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum lýð. En drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.


3

En Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn um bænastundina, níundu stund. 2 Og þangað var borinn maður, er haltur var frá móðurlífi, og menn lögðu hann daglega við þær dyr helgidómsins, er nefndar eru hinar fögru, svo að hann bæðist ölmusu af þeim, er inn gengu í helgidóminn. 3 Er hann sá þá Pétur og Jóhannes ætla að ganga inn í helgidóminn, beiddist hann ölmusu; 4 en Pétur horfði á hann ásamt Jóhannesi og sagði: Líttu á okkur. 5 En hann blíndi á þá í þeirri von að fá eitthvað hjá þeim. 6 En Pétur sagði: Silfur og gull á eg ekki, en það sem eg hefi, það gef eg þér: Í nafni Jesú Krists frá Nazaret, þá gakk þú! 7 Og hann tók í hægri hönd hans og reisti hann á fætur. 8 En jafnskjótt urðu fætur hans og öklar styrkir, og hann spratt upp, stóð og gekk, og fór með þeim inn í helgidóminn og gekk um kring og hljóp og lofaði Guð, 9 og alt fólkið sá hann ganga um kring og lofa Guð. 10 Og þeir könnuðust við hann, að þetta var maðurinn, sem sat við fögru dyrnar á helgidóminum, til að beiðast ölmusu, og þeir undruðust og furðuðu sig stórlega á því, sem fram við hann hafði komið.

11 En er hann hélt sér að Pétri og Jóhannesi, flyktist alt fólkið forviða til þeirra í súlnagöngin, sem kend eru við Salómon. 12 En er Pétur sá það, ávarpaði hann fólkið: Þér Ísraelsmenn, hví furðar yður á þessu? eða hví starið þér á okkur, eins og við hefðum af eigin mætti eða guðhræðslu komið því til leiðar, að hann gengur? 13 Guð Abrahams og Ísaks og Jakobs, Guð feðra vorra, hefir dýrðlegan gjört þjón sinn Jesúm, sem þér framselduð og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi, er hann hafði ályktað að láta hann lausan. 14 En þér afneituðuð hinum heilaga og réttláta og beiddust að manndrápari yrði gefinn yður; 15 en líflétuð höfðingja lífsins, sem Guð uppvakti frá dauðum, og að því erum vér vottar. 16 Og við trúna á nafn hans hefir nafn hans gjört þennan mann, er þér sjáið og þekkið, styrkan, og trúin, sem er fyrir hann, hefir gefið honum þennan albata, fyrir allra yðar augum. 17 Og nú veit eg, bræður, að þér gjörðuð það af vanþekkingu, eins og höfðingjar yðar; 18 en Guð lét þannig rætast það, sem hann hafði boðað fyrirfram fyrir munn allra spámannanna, að hans smurði skyldi pínast. 19 Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar, til þess að endurlífgunartímar komi frá augliti drottins, 20 og hann sendi Krist, sem yður var fyrirhugaður, Jesúm. 21 Við honum á himininn að taka alt til endurreisnartíma allra hluta, sem Guð hefir talað um fyrir munn sinna heilögu spámanna frá upphafi. 22 Móse hefir sagt: Spámann mun drottinn Guð uppvekja yður af bræðrum yðar eins og mig. Hlýðið honum í öllu, er hann talar til yðar. 23 Og svo mun verða, að sérhver sál, sem ekki hlýðir þessum spámanni, skal gjöreyðast úr lýðnum. 24 Og allir spámennirnir frá Samúel og þeir sem á eftir komu, svo margir sem talað hafa, þeir boðuðu og þessa daga. 25 Þér eruð synir spámannanna og sáttmálans, sem Guð gjörði við feður yðar, er hann sagði við Abraham: Og af þínu afkvæmi skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta. 26 Fyrir yður hefir Guð fyrst uppvakið þjón sinn, og hefir sent hann, til þess að blessa yður, með því að hver og einn yðar snúi sér frá illverkum sínum.


4

En meðan þeir voru að tala til fólksins, komu að þeim prestarnir og varðforingi helgidómsins og Saddúkearnir, 2 sem voru sárgramir af því, að þeir kendu fólkinu og boðuðu upprisu dauðra í Jesú. 3 Og þeir lögðu hendur á þá og settu þá í varðhald til næsta morguns, því að kveld var komið. 4 En margir þeirra, er heyrt höfðu orðið, tóku trú, og tala karlmanna varð um fimm þúsundir.

5 Næsta morgun var það, að höfðingjarnir, öldungarnir og fræðimennirnir komu saman í Jerúsalem, 6 og Annas, æðsti presturinn, og Kaífas og Jóhannes og Alexander og allir, sem voru af æðsta prests ætt. 7 Og þeir leiddu þá fram fyrir sig, og spurðu þá: Með hvaða krafti, eða í hvað nafni hafið þið gjört þetta? 8 Þá sagði Pétur við þá, fyltur heilögum anda: Þér höfðingjar lýðsins og öldungar! 9 Úr því að í dag er haldin rannsókn yfir oss vegna góðverks við sjúkan mann, um það, við hvað þessi maður er heill orðinn, 10 þá sé yður öllum vitanlegt og öllum Ísraelslýð, að í nafni Jesú Krists frá Nazaret, sem þér krossfestuð og Guð uppvakti frá dauðum, einmitt fyrir hann stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum yðar. 11 Hann er steinninn, sem einskis var virtur af yður, húsasmiðunum, hann er orðinn að hyrningarsteini. 12 Og ekki er hjálpræðið í neinum öðrum, því að eigi er heldur annað nafn undir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað að verða hólpnir í.

13 En er þeir sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og komust að því, að þeir voru ólærðir menn og leikmenn, undruðust þeir. Og þeir könnuðust við þá, að þeir höfðu verið með Jesú. 14 Og er þeir sáu manninn, sem læknaður hafði verið, standa hjá þeim, höfðu þeir ekkert í móti að mæla. 15 Og þeir skipuðu þeim að ganga út frá ráðinu, báru sig saman og sögðu: 16 Hvað eigum vér að gjöra við þessa menn? Því að augljóst er öllum, sem í Jerúsalem búa, að vitanlegt tákn er orðið af völdum þeirra, og vér getum ekki neitað því. 17 En til þess að það berist ekki frekar út meðal lýðsins, þá skulum vér hóta þeim hörðu, tali þeir framar í þessu nafni við nokkurn mann. 18 Síðan kölluðu þeir þá fyrir sig og bönnuðu þeim algjörlega að tala eða kenna í Jesú nafni. 19 En Pétur og Jóhannes svöruðu þeim og sögðu: Dæmið sjálfir, hvort það sé rétt fyrir augum Guðs, að hlýðnast yður fremur en Guði; 20 því að vér getum ekki annað en talað það, sem vér höfum

séð og heyrt. 21 En þeir ógnuðu þeim enn frekar, og sleptu þeim, því þeim hugsaðist ekkert ráð til að hegna þeim vegna fólksins, því að allir lofuðu Guð fyrir þennan atburð; 22 því að maðurinn var yfir fertugt, sem þetta lækningartákn hafði komið fram við.

23 En er þeim var slept, fóru þeir til félaga sinna og greindu þeim frá öllu því, sem æðstu prestarnir og öldungarnir höfðu við þá talað. 24 En þegar þeir heyrðu það, hófu þeir með einum huga raust sína til Guðs og sögðu: Herra, þú ert sá, sem gjört hefir himininn og jörðina og hafið og alt, sem í þeim er, 25 þú sem fyrir heilagan anda hefir fyrir munn Davíðs, föður vors, þjóns þíns, sagt: Hví æddu heiðingjarnir, og hví tóku lýðirnir saman hégómleg ráð? 26 Konungar jarðarinnar risu upp og höfðingjarnir tóku sig saman gegn drotni og gegn hans smurða. 27 Því að sannarlega tóku sig saman í borg þessari gegn hinum heilaga þjóni þínum Jesú, er þú smurðir, þeir Heródes og Pontíus Pílatus, ásamt heiðingjunum og lýðum Ísraels, 28 til að gjöra alt það, er hönd þín og ráð þitt hafði fyrirhugað að verða skyldi. 29 Og nú, drottinn, lít á hótanir þeirra og veit þjónum þínum með allri djörfung að tala orð þitt, 30 er þú réttir út hönd þína til lækninga, og til þess að tákn og undur verði fyrir nafn þíns heilaga þjóns Jesú. 31 Og er þeir höfðu beðist fyrir, hrærðist staðurinn, þar sem þeir voru saman komnir, og þeir fyltust allir heilögum anda, og töluðu orð Guðs með djörfung.

32 En í hinum fjölmenna hóp þeirra, sem trú höfðu tekið, var eitt hjarta og ein sál, og enginn þeirra taldi neitt vera sitt, er hann átti, heldur var þeim alt sameiginlegt. 33 Og með miklum krafti báru postularnir vitni um upprisu drottins Jesú, og mikil náð var yfir þeim öllum; 34 því að eigi var heldur neinn þurfandi meðal þeirra, því að allir landeigendur og húseigendur seldu, og komu með andvirði hins selda, 35 og lögðu fyrir fætur postulanna, og sérhverjum var úthlutað eftir því sem hann hafði þörf til.

36 Og Jósef, sem kallaður var af postulunum að viðurnefni Barnabas, — það er útlagt: huggunar sonur, — Levíti, ættaður frá Kípur, átti sáðland og seldi, og kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna.


5

En maður nokkur, Ananías að nafni, seldi, ásamt Saffíru konu sinni, eign, 2 og dró undan af verðinu með vitund konu sinnar, og kom með nokkuð af því og lagði fyrir fætur postulanna. 3 En Pétur mælti: Ananías, hví fylti Satan hjarta þitt, svo að þú skyldir ljúga að heilögum anda og draga undan af jarðarverðinu? 4 Var hún ekki þín, á meðan hún var í eign þinni, og var ekki söluverðið á þínu valdi? Hvernig gaztu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefir þú logið að mönnum, heldur að Guði. 5 Og er Ananías heyrði orð þessi, féll hann niður og gaf upp andann, og miklum ótta sló yfir alla þá, sem heyrðu þetta. 6 Og ungu mennirnir stóðu upp og bjuggu um hann, og báru hann í burt og jörðuðu.

7 Að liðnum svo sem þrem stundum atvikaðist það, að kona hans kom inn, og vissi eigi hvað við hafði borið. 8 Og Pétur tók til máls við hana: Seg mér, selduð þið jörðina fyrir þetta verð? En hún sagði: Já, fyrir þetta verð. 9 Pétur mælti þá til hennar: Hvernig gátuð þið orðið samþykk um að freista anda drottins? Sjá, fætur þeirra, sem greftruðu mann þinn, eru við dyrnar, og þeir munu bera þig út. 10 En hún féll jafnskjótt niður fyrir fætur honum, og gaf upp andann, og er ungu mennirnir komu inn, fundu þeir hana dauða, og þeir báru hana út og grófu hjá manni hennar. 11 Og miklum ótta sló yfir allan söfnuðinn og yfir alla þá sem heyrðu þetta.

12 En fyrir hendur postulanna gjörðust mörg tákn og undur meðal lýðsins, og þeir voru allir með einum huga í súlnagöngum Salómons. 13 En af hinum dirfðist enginn að samlagast þeim, en lýðurinn miklaði þá. 14 Og því fremur bættust trúaðir drotni, fjöldi bæði karla og kvenna; 15 svo að þeir jafnvel báru sjúka menn út á strætin og lögðu þá á legubekki og í burðarrekkjur, til þess að, þótt ekki væri meira en að skuggann af Pétri, er hann gekk um, skyldi bera á einhvern þeirra. 16 En einnig streymdi að mannfjöldinn úr borgunum umhverfis Jerúsalem, og höfðu með sér sjúka menn og þjáða af óhreinum öndum, og hlutu þeir allir lækningu.

17 En æðsti presturinn reis upp, og allir þeir, sem með honum voru — sem voru flokkur Saddúkeanna — og þeir fyltust vandlæti; 18 og þeir lögðu hendur á postulana, og settu þá í almennings-varðhald. 19 En engill drottins opnaði um nótt dyr fangelsisins, og leiddi þá út og sagði: 20 Farið og gangið fram, og talið í helgidóminum til lýðsins öll þessi lífsins orð. 21 Og er þeir höfðu heyrt þetta, gengu þeir í dögun inn í helgidóminn og kendu. En æðsti presturinn kom, og þeir sem með honum voru, og kölluðu saman ráðið og alla öldunga Ísraelssona, og sendu til varðhaldsins, til að láta sækja þá. 22 En þjónarnir komu og fundu þá ekki í fangelsinu, og þeir sneru aftur og sögðu frá, svo mælandi: 23 Varðhaldið fundum vér að öllu leyti tryggilega læst, og varðmennina standandi fyrir dyrunum, en er vér lukum upp, fundum vér engan inni. 24 En er þeir heyrðu þessi orð, bæði varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir, urðu þeir ráðþrota með þá, og vissu ekki hvað úr þessu ætlaði að verða. 25 En þá kom maður og bar þeim þá frétt: Sjá, mennirnir sem þér settuð í fangelsið, standa í musterinu og eru að kenna lýðnum. 26 Þá fór varðforinginn með þjónunum og sótti þá, þó án ofbeldis, því að þeir óttuðust fólkið, að þeir yrðu grýttir. 27 Og er þeir voru komnir með þá, leiddu þeir þá fram fyrir ráðið, og æðsti presturinn spurði þá, og sagði: 28 Stranglega buðum vér yður, að kenna ekki í þessu nafni, og sjá, þér hafið fylt Jerúsalem með kenningu yðar, og viljið leiða yfir oss blóð þessa manns. 29 En Pétur og postularnir svöruðu og sögðu: Framar ber að hlýða Guði en mönnum. 30 Guð feðra vorra hefir uppvakið Jesúm, sem þér hengduð upp á tré og tókuð af lífi; 31 þennan hefir Guð upp hafið með hægri hendi sinni, til að vera foringi og frelsari, til að veita Ísrael afturhvarf og syndafyrirgefningu. 32 Og vér erum vottar að þessum atburðum, og heilagur andi, sem Guð hefir gefið þeim, er honum hlýða.

33 En er þeir heyrðu þetta, fyltust þeir bræði og voru ráðnir í að deyða þá. 34 En í ráðinu stóð þá upp Farísei nokkur, Gamalíel að nafni, lögfróður maður, vel metinn af öllum lýðnum; hann bauð að mennirnir væru látnir fara út stundarkorn. 35 Og hann sagði við þá: Þér Ísraelsmenn, athugið vel, hvað þér gjörið við þessa menn, 36 því að fyrir skömmu var það, að Þevdas reis upp, og lét ekki svo lítið yfir sér. Til hans hyltust nær fjögur hundruð manns; en hann var drepinn, og allir þeir sem að honum hnigu, tvístruðust og urðu að engu. 37 Eftir hann reis upp Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og fékk fólk til fylgis við sig. Hann fyrirfórst líka, og allir þeir dreifðust sem að honum hnigu. 38 Og nú segi eg yður: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim, því að ef þetta ráð eða verk þetta er af mönnum, verður það að engu; 39 en ef það er af Guði, þá megnið þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má yður það henda, að þér jafnvel berjist gegn Guði. 40 Og þeir samsintu honum og kölluðu á postulana og húðstrýktu þá, og fyrirbuðu þeim að tala í Jesú nafni, og létu þá lausa. 41 Þeir fóru nú burt úr augsýn ráðsins, glaðir yfir því að þeir höfðu verið virtir þess að líða háðung vegna nafnsins, 42 og létu eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og heima, og boða fagnaðarerindið um Krist Jesúm.


6

En á þessum dögum, er vaxa tók fjöldi lærisveinanna, kom upp kurr hjá Hellenistum gegn Hebreum út af því, að ekkjur þeirra væru settar hjá við hina daglegu þjónustu. 2 Og þeir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: Ekki hæfir að vér yfirgefum Guðs orð, til að þjóna fyrir borðum. 3 Komið því, bræður, auga á sjö vel kynta menn í yðar hóp, sem fullir eru af anda og vizku, og munum vér setja þá yfir þetta starf; 4 en vér munum halda oss stöðugt að bæninni og þjónustu orðsins. 5 Og allri samkomunni líkaði talið vel, og þeir kusu Stefán, mann fullan af trú og heilögum anda, og Filippus og Prokórus og Níkanor og Tímon og Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu, sem tekið hafði Gyðinga trú. 6 Og þeir leiddu þá fram fyrir postulana, og þeir báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá.

7 Og orð Guðs efldist og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi, og mikill fjöldi presta gekk til hlýðni við trúna.

8 En Stefán gjörði, fullur af náð og krafti, undur og tákn mikil meðal fólksins. 9 Þá risu upp nokkurir menn úr samkundunni, sem kend er við Líbertína og Kýreninga og Alexandríumenn, og úr flokki Kilikíu- og Asíumanna, og þráttuðu við Stefán. 10 Og þeir gátu ekki staðið í gegn vizkunni og andanum, sem hann talaði af. 11 Þá settu þeir út menn, er sögðu: Vér höfum heyrt hann tala lastmælisorð gegn Móse og Guði. 12 Og þeir æstu upp fólkið og öldungana og fræðimennina, og veittust að honum og gripu hann og fóru með hann til ráðsins. 13 Og þeir leiddu fram ljúgvotta, er sögðu: Þessi maður lætur ekki af að tala orð gegn þessum heilaga stað og lögmálinu, 14 því að vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nazaret muni niðurbrjóta stað þennan og breyta þeim siðum, sem Móse hefir sett oss. 15 Og öllum, sem í ráðinu sátu, varð starsýnt á hann, og virtist þeim ásjóna hans vera sem engils ásjóna.


7

Og æðsti presturinn sagði: Er þessu svo varið? 2 Og hann mælti: Heyrið mig, bræður og feður! Guð dýrðarinnar birtist föður vorum Abraham, er hann var í Mesópótamíu, áður en hann bjó í Haran, 3 og sagði við hann: Far þú burt úr landi þínu og frá ættfólki þínu og far til landsins, sem eg mun vísa þér á. 4 Þá fór hann burt úr Kaldealandi og bjó í Haran. Og eftir að faðir hans var látinn, lét Guð hann flytja sig búferlum þaðan til þessa lands, sem þér nú byggið. 5 Og eigi gaf hann honum erfð í landinu, ekki svo mikið sem eitt fótmál, en hann hét honum að gefa honum það til eignar og niðjum hans eftir hann, er hann enn var barnlaus. 6 Og Guð talaði á þá leið, að niðjar hans mundu búa sem útlendingar í landi, sem þeir ættu ekki, og menn mundu þá undir þrældóm leggja og þjá þá í fjögur hundruð ár. 7 Og þjóðina, sem þeir munu vera í þrælkun hjá, mun eg dæma, sagði Guð. Og eftir það munu þeir í burt fara og þjóna mér á þessum stað. 8 Og hann gaf honum umskurnar-sáttmála. Og síðan gat Abraham Ísak og umskar hann á áttunda degi, og Ísak gat Jakob og Jakob þá tólf ættfeður. 9 Og ættfeðurnir öfunduðu Jósef og seldu hann til Egiptalands, en Guð var með honum 10 og frelsaði hann úr öllum þrengingum hans, og gaf honum hylli og vizku fyrir augum Faraós, Egiptalands konungs, og hann skipaði hann höfðingja yfir Egiptaland og yfir alt sitt hús. 11 Nú kom hallæri yfir alt Egiptaland og Kanaan og mikil þrenging, og feður vorir höfðu ekki lífsbjörg. 12 En er Jakob heyrði að korn væri til í Egiplalandi, sendi hann feður vora af stað í fyrra skiftið. 13 Og í seinna skiftið sagði Jósef til sín við bræður sína, og Faraó varð kunn ætt Jósefs. 14 En Jósef sendi menn eftir Jakob föður sínum og öllu ættfólki sínu, sjötíu og fimm sálum. 15 Og Jakob fór niður til Egiptalands og andaðist, hann og feður vorir. 16 Og þeir voru fluttir þaðan til Sikem og lagðir í grafreitinn, er Abraham hafði keypt fyrir silfur af sonum Hemors í Sikem. 17 En er nálgast tók tími fyrirheitisins, sem Guð hafði heitið Abraham, óx fólkið og margfaldaðist í Egiptalandi, 18 þangað til annar konungur tók völd yfir Egiptalandi, er eigi vissi skyn á Jósef. 19 Hann beitti slægð við kyn vort og lék feður vora svo illa, að þeir urðu að bera út ungbörn sín, til þess að þau skyldu eigi lífi halda. 20 Um þessar mundir fæddist Móse og var frábærlega fríður; þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns. 21 Og er hann var út borinn, tók dóttir Faraós hann upp og fóstraði hann sem sinn son. 22 Og Móse var fræddur í allri speki Egipta, og hann var máttugur í orðum sínum og verkum. 23 Og er Móse var fertugur að aldri, kom honum í hug að vitja bræðra sinna, Ísraels sona. 24 Og er hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði, rétti hann hluta hans, hefndi þess sem meingjörðina þoldi, og drap egipzka manninn. 25 Og hann hugði að bræður sínir mundu skilja, að fyrir hans hönd gæfi Guð þeim frelsi, en þeir skildu það ekki. 26 Og næsta dag kom hann að þeim, er þeir voru að berjast, og vildi stilla til friðar með þeim, og sagði: Góðir menn, þið eruð bræður, hví beitið þið ójöfnuði hvor við annan? 27 En sá sem ójöfnuði beitti við náunga sinn, hratt honum frá sér, og sagði: Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? 28 Þú munt þó ekki vilja drepa mig, eins og þú drapst egipzka manninn í gær? 29 Við þessi orð flýði Móse og hafðist við sem útlendingur í Midíanslandi og gat þar tvo sonu. 30 Og að fjörutíu árum liðnum birtist honum engill í eyðimörku Sínaí-fjalls, í eldsloga í runni. 31 Og er Móse sá það, undraðist hann sýnina, og er hann gekk til og vildi hyggja að, hljómaði rödd drottins: 32 Eg er Guð feðra þinna, Guð Abrahams og Ísaks og Jakobs. En Móse skelfdist og þorði ekki að að hyggja. 33 En drottinn sagði við hann: Leys af þér skó þína, því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. 34 Gjörla hefi eg séð þjáningu lýðs míns, sem er á Egiptalandi, og hefi heyrt andvörp þeirra, og eg er nú ofan kominn til að frelsa þá. Og kom nú, eg vil senda þig til Egiptalands. 35 Þennan Móse, er þeir afneituðu, segjandi: Hver skipaði þig höfðingja og dómara? — þann hinn sama sendi Guð bæði sem höfðingja og frelsara, með fulltingi engilsins, er honum birtist í runninum. 36 Þessi maður leiddi þá út, er hann hafði gjört undur og tákn á Egiptalandi og á Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár. 37 Þetta er sá Móse, sem sagði við sonu Ísraels: Spámann mun Guð uppvekja yður af bræðrum yðar, líkan mér. 38 Þessi er sá sem var í söfnuðinum á eyðimörkinni með englinum, er við hann talaði á Sínaí-fjalli, og með feðrum vorum, hann sem tók á móti lifandi boðum, til að gefa oss. 39 Og eigi vildu feður vorir hlýðnast honum, heldur hrundu þeir honum frá sér og sneru sér í hjörtum sínum til Egiptalands og sögðu við Aron: 40 Gjör oss guði, er fari fyrir oss, því að vér vitum ekki, hvað af Móse þeim er orðið, sem oss leiddi brott af Egiptalandi. 41 Og á þeim dögum smíðuðu þeir kálf og færðu skurðgoðinu fórn, og voru kátir yfir sínum handaverkum. 42 En Guð sneri sér frá þeim og ofurseldi þá til þess að þjóna her himinsins, eins og ritað er í bók spámannanna: Færðuð þér mér, Ísraels hús, sláturdýr og fórnir í fjörutíu ár á eyðimörkinni? 43 Og þér báruð búð Móloks og stjörnu guðsins Refans, myndirnar, sem þér smíðuðuð, til þess að tilbiðja þær; og eg mun flytja yður búferlum austur fyrir Babýlon. 44 Feður vorir höfðu vitnisburðar-tjaldbúðina á eyðimörkinni, eins og hann hafði fyrir skipað, er mælti við Móse, að hann skyldi gjöra hana eftir þeirri fyrirmynd, sem hann hafði séð. 45 Við henni tóku og feður vorir og fluttu hana með Jósúa inn í landið, — er var í eignarhaldi heiðingjanna, en þá rak Guð út frá augsýn feðra vorra, — alt til daga Davíðs. 46 Hann fann náð hjá Guði og bað að hann mætti koma upp bústað fyrir Jakobs Guð. 47 En Salómon bygði honum hús. 48 En eigi býr hinn hæsti í því, sem með höndum er gjört, eins og spámaðurinn segir: 49 Himininn er mitt hásæti og jörðin skör fóta minna; hvaða hús munuð þér mér reisa, segir drottinn, eða hver er hvíldarstaður minn? 50 Hefir ekki hönd mín gjört alla þessa hluti? 51 Þér harðsvíraðir og óumskornir í hjörtum og á eyrum, þér standið ávalt í gegn heilögum anda, þér eins og feður yðar. 52 Hver var sá af spámönnunum, er feður yðar ofsóttu eigi? Og þá drápu þeir, er fyrirboðuðu tilkomu hins réttláta, en hans framseljendur og banamenn hafið þér nú orðið, 53 þér sem lögmálið fenguð við umsýslan engla, og hafið eigi varðveitt það.

54 En er þeir heyrðu þetta, fyltust þeir bræði í hjörtum sínum og gnístu tönnum gegn honum. 55 En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda, og leit dýrð Guðs og Jesúm standandi við hægri hönd Guðs, 56 og sagði: Sjá, eg sé himnana opna og mannsins son standandi til hægri handar Guði. 57 En þeir æptu hárri röddu og byrgðu fyrir eyru sér og réðust að honum samhuga, 58 og þeir hröktu hann út úr borginni og grýttu hann. Og vottarnir lögðu yfirhafnir sínar að fótum ungum manni, er Sál hét. 59 Og þeir grýttu Stefán, sem ákallaði og sagði: Herra Jesú, meðtak þú anda minn. 60 Og hann féll á kné og æpti hárri röddu: Drottinn, lát þá ekki gjalda þessarar syndar. Og er hann hafði þetta mælt, þá sofnaði hann.


8

Og Sál lét sér vel líka líflát hans. En mikil ofsókn hófst á þeim degi gegn söfnuðinum í Jerúsalem, og allir tvístruðust út um bygðir Júdeu og Samaríu, nema postularnir. 2 En guðhræddir menn greftruðu Stefán og gjörðu kveinan mikla yfir honum. 3 En Sál eyddi söfnuðinum; hann óð inn í hvert hús og dró þaðan bæði karla og konur og seldi í varðhald.

4 En þeir sem nú tvístraðir voru, fóru víðsvegar og boðuðu orð fagnaðarerindisins. 5 En Filippus fór norður til borgarinnar í Samaríu og prédikaði þeim Krist. 6 Og fólkið gaf samhuga gaum orðum Filippusar, er það heyrði þau og sá táknin, sem hann gjörði; 7 því að margir voru þeir, er höfðu óhreina anda; fóru þeir út af þeim, hrópandi hárri röddu, og margir lama menn og haltir læknuðust. 8 Og mikill fögnuður varð í þeirri borg.

9 En maður nokkur, Símon að nafni, var fyrir í borginni, hann var töframaður og vakti undrun Samaríuþjóðarinnar, og þóttist vera eitthvað stórt. 10 Til hans hnigu allir, smáir sem stórir, segjandi: Þessi maður er kraftur Guðs, er mikill nefnist. 11 En þeir hnigu að honum, af því að hann hafði í langa tíð vakið undrun þeirra með töfrum. 12 Nú sem menn trúðu Filippusi, er hann boðaði þeim fagnaðarerindið um guðsríki og nafn Jesú Krists, létu bæði karlar og konur skírast. 13 En Símon tók líka trú, og er hann var skírður, hélt hann sér stöðugt til Filippusar, og hann undraðist, er hann sá tákn og mikil kraftverk gjörast.

14 En er postularnir, þeir er í Jerúsalem voru, heyrðu að Samaría hefði tekið við orði Guðs, sendu þeir til þeirra þá Pétur og Jóhannes. 15 Þeir fóru norður þangað og báðu fyrir þeim, að þeir mættu öðlast heilagan anda; 16 því að hann hafði alls eigi enn komið yfir neinn þeirra, aðeins voru þeir skírðir til nafns drottins Jesú. 17 Síðan lögðu þeir hendur yfir þá, og meðtóku þeir heilagan anda. 18 En er Símon sá, að heilagur andi veittist fyrir yfirlagning handa postulanna, færði hann þeim fé og sagði: 19 Gefið mér einnig þetta vald, til þess að hver sá, er eg legg hendur yfir, meðtaki heilagan anda. 20 En Pétur sagði við hann: Þrífist aldrei silfur þitt, né sjálfur þú, af því að þú hugðist að eignast gjöf Guðs fyrir fé; 21 hvorki átt þú hlut né arf í orði þessu, því að hjarta þitt er ekki rétt fyrir augum Guðs. 22 Snú því huga þínum frá þessari ilsku þinni, og bið drottin, ef þér kynni að fyrirgefast hugsun hjarta þíns; 23 því að eg sé að þú ert í beiskju-galli og ranglætis- fjötri. 24 En Símon svaraði og sagði: Biðjið þér fyrir mér til drottins, að ekkert komi yfir mig af því, sem þér hafið mælt.

25 Er þeir nú höfðu vitnað og talað orð drottins, sneru þeir aftur til Jerúsalem, og boðuðu fagnaðarerindið í mörgum þorpum Samverja.

26 En engill drottins talaði til Filippusar og sagði: Stattu upp og gakk suður á veginn, sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa. — Hann liggur um óbygðir. — 27 Og hann stóð upp og fór. Og sjá, þar var etíópskur maður, hirðmaður og höfðingi hjá Kandake Etíópa-drotningu, sem settur var yfir alla fjárhirzlu hennar; hafði hann komið til Jerúsalem til að biðjast fyrir. 28 Og hann var á heimleið, og sat í vagni sínum, og las Jesaja spámann. 29 En andinn sagði við Filippus: Gakk að og halt þér að vagni þessum. 30 Og Filippus skundaði þangað, og heyrði hann vera að lesa Jesaja spámann, og sagði: Hvort skilur þú það sem þú ert að lesa? 31 En hann sagði: Hvernig ætti eg reyndar að geta það, nema einhver leiðbeindi mér? Og hann bað Filippus stíga upp og setjast hjá sér. 32 En innihald ritningar þeirrar, er hann las, var þetta: Eins og sauður var hann til slátrunar leiddur, og eins og lambið þegir hjá þeim, er klippir það, eins lýkur hann ekki upp munni sínum. 33 Í niðurlægingunni endaði dómur hans; hver getur útmálað kynslóð hans, því að líf hans er hrifið burt af jörðunni? 34 En hirðmaðurinn tók til máls og sagði við Filippus: Eg bið þig, um hvern segir spámaðurinn þetta? um sjálfan sig, eða um einhvern annan? 35 Og Filippus lauk upp munni sínum, og tók til á ritning þessari, og boðaði honum fagnaðarerindið um Jesúm. 36 En er þeir fóru áfram veginn, komu þeir að vatni nokkuru, og hirðmaðurinn segir: Sjá, hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast? 38 Og hann lét vagninn standa við. Og þeir stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og hann skírði hann. 39 En er þeir stigu upp úr vatninu, hreif andi drottins Filippus burt, og hirðmaðurinn sá hann alls ekki framar, heldur fór hann leiðar sinnar fagnandi. 40 En Filippus kom fram í Asdód, og fór hann um og boðaði öllum borgunum fagnaðarerindið, unz hann kom til Sesareu.


9

En Sál, sem enn þá blés ógnum og manndrápum gegn lærisveinum drottins, gekk til æðsta prestsins 2 og beiddist bréfa af honum til Damaskus, til samkundanna, til þess, ef hann fyndi einhverja þessa vegar, hvort heldur karla eða konur, þá mætti hann fara með þá í böndum til Jerúsalem. 3 En er hann á ferðinni var kominn í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega um hann ljós af himni, 4 og hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? 5 En hann sagði: Hver ert þú, herra? Og hann sagði: Eg er Jesús, sem þú ofsækir. 6 En statt upp og gakk inn í borgina, og þér mun verða sagt, hvað þú átt að gjöra. 7 En mennirnir, sem voru samferða honum, stóðu mállausir; heyrðu þeir að vísu raustina, en sáu engan. 8 Og Sál stóð upp af jörðinni, en þegar hann lauk upp augunum, sá hann ekkert, og þeir leiddu hann við hönd sér og fóru með hann inn í Damaskus. 9 Og þrjá daga var hann sjónlaus, og át hvorki né drakk.

10 En lærisveinn nokkur var í Damaskus, sem hét Ananías, og drottinn sagði við hann í sýn: Ananías! En hann sagði: Sjá, hér er eg, drottinn. 11 En drottinn sagði við hann: Statt upp og gakk í stræti það, sem kallast hið beina, og spyr þú uppi í húsi Júdasar mann frá Tarsus, er Sál heitir. Því, sjá, hann biðst fyrir, 12 og hann hefir séð mann, Ananías að nafni, koma og leggja hendur yfir sig, til þess hann fengi aftur sýn. 13 En Ananías svaraði: Drottinn, eg hefi heyrt af mörgum um mann þennan, hversu mikið ilt hann hefir gjört þínum heilögu í Jerúsalem. 14 Og hér hefir hann umboð frá æðstu prestunum til að leggja í bönd alla þá, sem ákalla nafn þitt. 15 En drottinn sagði við hann: Far þú, því að þessi maður er mér útvalið ker til að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja og konunga og Ísraels sonu; 16 því að eg mun sýna honum, hversu mikið honum ber að líða fyrir míns nafns sakir. 17 Og Ananías fór af stað og gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: Sál, bróðir, drottinn hefir sent mig, Jesús, sá er birtist þér á veginum, sem þú komst, til þess að þú fengir aftur sýn þína og fyltist heilögum anda. 18 Og jafnskjótt féll eins og hreistur af augum hans, og hann fékk sýn sína. Og hann stóð upp og lét skírast, 19 og hann neytti matar og styrktist.

Og hann var nokkura daga hjá lærisveinunum í Damaskus. 20 Og strax prédikaði hann í samkunduhúsunum um Jesúm, að hann væri Guðs son. 21 En allir þeir sem heyrðu það, undruðust stórum og sögðu: Er þetta ekki maðurinn, sem í Jerúsalem eyddi þeim, er ákölluðu þetta nafn, og kom hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna? 22 En Sál styrktist æ betur, og hnekti Gyðingum þeim, sem bjuggu í Damaskus, er hann sannaði, að sá hinn sami væri Kristur.

23 En að allmörgum dögum liðnum tóku Gyðingar ráð sín saman að taka hann af lífi. 24 En Sál fékk vitneskju um svikráð þeirra. Og þeir gættu enda borgarhliðanna nótt og dag, til þess að þeir gætu tekið hann af lífi, 25 en lærisveinarnir tóku hann um nótt og hleyptu honum út um borgarvegginn, með því að láta hann síga ofan í vandlaupi.

26 Og er hann kom til Jerúsalem, reyndi hann til að samlaga sig lærisveinunum; og allir hræddust hann, og trúðu því ekki, að hann væri lærisveinn. 27 En Barnabas tók hann að sér, og fór með hann til postulanna, og skýrði þeim frá, hvernig hann hafði á veginum séð drottin, og að hann hafði talað við hann, og hversu einarðlega hann hafði talað í Jesú nafni í Damaskus. 28 Og hann gekk út og inn hjá þeim í Jerúsalem og talaði einarðlega í nafni drottins. 29 Og hann talaði bæði og þráttaði við Hellenistana, en þeir höfðu með höndum að ráða hann af dögum. 30 En er bræðurnir urðu þess vísir, fóru þeir með hann niður til Sesareu, og sendu hann áfram til Tarsus.

31 Nú hafði söfnuðurinn frið um alla Júdeu og Galíleu og Samaríu, uppbygður og framgangandi í ótta drottins, og jókst við uppörvun heilags anda.

32 En svo bar til, er Pétur ferðaðist um kring, allra að vitja, að hann kom einnig niður til hinna heilögu, sem bjuggu í Lýdda. 33 Og þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur, og var hann lami. 34 Og Pétur sagði við hann: Eneas, Jesús Kristur læknar þig; statt upp og bú um þig; og jafnskjótt stóð hann upp. 35 Og allir þeir, sem áttu heima í Lýdda og Saron, sáu hann, og þeir hinir sömu sneru sér til drottins.

36 En í Joppe var lærisveinn, kona, Tabíta að nafni, sem útlagt heitir Dorkas; hún var auðug af góðum verkum og ölmusugjörðum, sem hún veitti; 37 en á þeim dögum bar svo til, að hún tók sótt og andaðist, og menn lauguðu hana og lögðu í loftstofu. 38 Nú er Lýdda í grend við Joppe, og höfðu lærisveinarnir heyrt, að Pétur var þar, og sendu tvo menn til hans með þeirri bæn: Dvel eigi að koma alla leið til vor! 39 Og Pétur tók sig upp og fór með þeim, og er hann var kominn, fóru þeir með hann inn í loftstofuna, og allar ekkjurnar flyktust að honum grátandi, og sýndu kyrtla og yfirhafnir, sem Dorkas hafði gjört, meðan hún var hjá þeim. 40 En Pétur lét þær allar út fara, og féll á kné og baðst fyrir, og hann sneri sér að líkinu og sagði: Tabíta, rís upp! Og hún lauk upp augunum, og er hún sá Pétur, settist hún upp. 41 En hann rétti henni hönd sína og reisti hana á fætur, og hann kallaði á hina heilögu og ekkjurnar, og leiddi hana fram lifandi. 42 En þetta varð hljóðbært um alla Joppe, og margir trúðu á drottin. 43 Og það fór svo, að hann dvaldist allmarga daga í Joppe hjá Símoni nokkurum sútara.


10

Maður nokkur var í Sesareu, Kornelíus að nafni, hundraðshöfðingi í hersveitinni, er heitir hin ítalska. 2 Hann var ráðvandur maður og óttaðist Guð, og alt hans heimili, og gaf hann lýðnum miklar ölmusur, og var jafnan á bæn til Guðs. 3 Hann sá berlega í sýn, hér um bil um níundu stundu dags, engil Guðs koma inn til sín og segja við sig: Kornelíus! 4 En hann starði á hann og varð mjög hræddur og sagði: Hvað er það, herra? En hann sagði við hann: Bænir þínar og ölmusugjörðir eru stignar upp til minningar fyrir Guði. 5 Og send þú nú menn til Joppe, og lát sækja Símon nokkurn, að viðurnefni Pétur; 6 hann gistir hjá Símoni nokkurum sútara, sem á hús við sjóinn. 7 En er engillinn, sem til hans talaði, var farinn, kallaði hann á tvo af heimamönnum sínum og ráðvandan hermann, af þeim er honum voru handgengnastir. 8 Og hann sagði þeim frá öllu og sendi þá til Joppe.

9 En daginn eftir, er þeir voru á leiðinni og nálguðust bæinn, sté Pétur upp á húsþakið til að biðjast fyrir, um séttu stund. 10 Og hann hungraði og vildi matast, en meðan menn voru að matreiða, varð hann frá sér numinn, 11 og hann sér himininn opinn, og hlut nokkurn koma niður, eins og stóran dúk, er á fjórum skautum var látinn síga niður til jarðar; 12 og voru þar á öll ferfætt dýr og skriðdýr jarðarinnar og fuglar himinsins, 13 og honum barst rödd: Rís upp, Pétur, slátra og et! 14 En Pétur sagði: Nei, drottinn, engan veginn, því að aldrei hefi eg etið neitt vanheilagt og óhreint. 15 Og aftur kom rödd til hans í annað sinn: Það sem Guð hefir gjört hreint, skalt þú ekki meta vanheilagt. 16 Þetta gjörðist þrem sinnum, og jafnskjótt var hluturinn upp numinn til himins.

17 En er Pétur var nú í mestu óvissu um, hvað sýnin, sem hann sá, mundi þýða, sjá, þá höfðu mennirnir, sem sendir voru af Kornelíusi, spurt uppi hús Símonar og stóðu við fordyrið, 18 kölluðu þeir og spurðu, hvort Símon, að viðurnefni Pétur, væri þar gestkomandi. 19 En er Pétur var að hugsa um sýnina, sagði andinn við hann: Sjá, þrír menn leita þín. 20 Rís nú upp og stíg ofan, og far hiklaust með þeim, því að eg hefi sent þá. 21 En Pétur gekk niður til mannanna og sagði: Sjá, eg er sá, sem þér leitið að. Hvers vegna eruð þér hér komnir? 22 En þeir sögðu: Kornelíus hundraðshöfðingi, réttlátur maður og guðhræddur, sem hefir góðan orðstír hjá allri þjóð Gyðinganna, fékk bendingu af heilögum engli að láta sækja þig heim til sín og heyra orð af þér. 23 Síðan bauð hann þeim inn og veitti þeim beina.

En daginn eftir tók hann sig upp og fór burt með þeim, og nokkurir af bræðrunum frá Joppe fóru með honum. 24 En daginn eftir komu þeir inn í Sesareu. En Kornelíus bjóst við þeim og hafði boðið til sín frændum sínum og virktavinum. 25 En er svo bar til að Pétur gekk inn, kom Kornelíus á móti honum og féll til fóta honum og veitti honum lotningu. 26 En Pétur reisti hann upp og sagði: Statt upp, eg er maður sem þú. 27 Og hann ræddi við hann, og gekk inn, og finnur þar marga menn saman komna. 28 Og hann sagði við þá: Þér vitið, hvílík óhæfa það er fyrir mann, sem er Gyðingur, að samlaga sig eða koma til manns af annari þjóð, og þó hefir Guð sýnt mér, að eg á engan mann að kalla vanheilagan eða óhreinan; 29 fyrir því kom eg og mótmælalaust, er eftir mér var sent. Nú spyr eg, í hvaða skyni þér hafið sent eftir mér. 30 Og Kornelíus mælti: Fyrir réttum fjórum dögum var eg að biðjast fyrir, um níundu stund, í húsi mínu, og sjá, maður stóð frammi fyrir mér í skínandi klæðum 31 og mælir: Kornelíus, bæn þín er heyrð, og þinna ölmusugjörða er minst fyrir Guði. 32 Nú skalt þú senda menn til Joppe og boða á fund þinn Símon, að viðurnefni Pétur, hann gistir í húsi Símonar sútara við sjóinn. 33 Fyrir því sendi eg jafnskjótt til þín, og gjörðir þú vel, er þú komst. Nú erum vér þá allir hér við fyrir augsýn Guðs, til að heyra alt sem þér er af drotni um boðið. 34 En Pétur lauk upp munni sínum og mælti:

Sannlega skil eg nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit, 35 heldur er honum þóknanlegur í hverri þjóð sá er hann óttast og stundar réttlæti. 36 Orðið, sem hann sendi Ísraels sonum, er hann boðaði fagnaðarerindið um frið fyrir Jesúm Krist — hann er drottinn allra —, 37 erindið þekkið þér, sem flutt var um alla Júdeu, er hann byrjaði í Galíleu eftir skírnina, sem Jóhannes prédikaði — 38 um Jesúm frá Nazaret, hversu Guð smurði hann heilögum anda og krafti; hann gekk í kring, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir, því að Guð var með honum, 39 og vér erum vottar alls þess, er hann gjörði, bæði í landi Gyðinganna og í Jerúsalem; hann deyddu þeir jafnvel, er þeir festu hann á tré. — 40 Þann hinn sama uppvakti Guð á þriðja degi, og lét hann birtast, 41 ekki öllum lýðnum, heldur vottunum, sem áður voru af Guði kjörnir, oss sem átum og drukkum með honum, eftir að hann var risinn upp frá dauðum. 42 Og hann bauð oss að prédika lýðnum og vitna, að hann er sá af Guði fyrirhugaði dómari lifenda og dauðra. 43 Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn synda-fyrirgefning.

44 Meðan Pétur var enn að mæla þessi orð, féll heilagur andi yfir alla þá, er orðið heyrðu, 45 og hinir trúuðu, sem umskornir voru, urðu forviða, — allir þeir sem komið höfðu með Pétri, — að gjöf heilags anda skyldi einnig vera úthelt yfir heiðingjana; 46 því að þeir heyrðu þá tala tungum og mikla Guð. 47 Þá tók Pétur til máls: Getur nokkur varnað þeim vatnsins, svo að þeir ekki skírist, er þeir hafa fengið heilagan anda eins og vér? 48 Og hann bauð að þeir skyldu skírðir verða í nafni Jesú Krists. Síðan báðu þeir hann að standa við nokkura daga.


11

En postularnir og bræðurnir, sem voru í Júdeu, heyrðu að heiðingjarnir hefðu einnig tekið við orði Guðs. 2 Og er Pétur var kominn upp til Jerúsalem, átöldu hinir umskornu hann og sögðu: 3 Þú hefir farið inn til óumskorinna manna og samneytt þeim.4 En Pétur tók til frá upphafi og skýrði þeim frá öllum málavöxtum og mælti: 5 Eg var í borginni Joppe að biðjast fyrir og sá frá mér numinn sýn, hlut nokkurn koma niður, eins og stór dúkur væri látinn síga niður á fjórum skautum frá himninum, og hann kom til mín, 6 og eg starði á hann og athugaði, og sá ferfætt dýr jarðarinnar og villidýr og skriðdýr og fugla himinsins, 7 og eg heyrði einnig rödd segja við mig: Rís upp, Pétur, slátra og et! 8 En eg sagði: Nei, drottinn, engan veginn, því að aldrei hefir neitt vanheilagt eða óhreint komið mér í munn. 9 En í annað sinn svaraði rödd af himni: Það sem Guð hefir gjört hreint, skalt þú ekki meta vanheilagt. 10 Þetta gjörðist þrem sinnum, og aftur var alt dregið upp til himins. 11 Og sjá, samstundis stóðu þrír menn við húsið, sem eg var í, sendir frá Sesareu til mín, 12 og andinn sagði mér að fara með þeim, án alls greinarmunar. Samferða mér urðu og þessir sex bræður, og vér gengum inn í hús mannsins, 13 og hann sagði oss, hvernig hann hefði séð engilinn í húsi sínu, er stóð þar og sagði: Send þú til Joppe og lát sækja Símon, að viðurnefni Pétur. 14 Hann mun orð til þín mæla, og fyrir þau munt þú hólpinn verða og alt heimili þitt. 15 En jafnskjótt og eg fór að tala, féll heilagur andi yfir þá, eins og yfir oss í upphafi, 16 og eg mintist orða drottins, er hann sagði: Jóhannes skírði að vísu með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda. 17 Ef Guð hefir þá gefið þeim sömu gjöf og oss, er vér tókum trú á drottin Jesúm Krist, hvernig var eg þess þá umkominn að standa í gegn Guði? 18 En er þeir heyrðu þetta, þögnuðu þeir og vegsömuðu Guð, segjandi: Guð hefir þá einnig gefið heiðingjunum afturhvarf til lífs.

19 Þeir sem nú höfðu tvístrast vegna þrengingarinnar, sem reis út af Stefáni, fóru alla leið til Fönikíu og Kípur og Antíokkíu og töluðu ekki orðið við neinn mann nema Gyðinga eina. 20 En nokkurir þeirra voru menn frá Kípur og Kýrene, og er þeir hinir sömu komu til Antíokkíu, töluðu þeir og til Grikkja og boðuðu fagnaðarerindið um drottin Jesúm. 21 Og hönd drottins var með þeim, og mikill fjöldi, sem tók trú, sneri sér til drottins. 22 Og fregnin um þá barst til eyrna safnaðarins, sem var í Jerúsalem, og þeir sendu Barnabas til Antíokkíu. 23 Þegar hann kom og sá náðina Guðs, gladdist hann, og áminti hann alla um að halda sér við drottin með eindregnu hjarta; 24 því að hann var góður maður, fullur af heilögum anda og trú, og allmikill fjöldi bættist drotni. 25 Og hann fór til Tarsus til að leita Sál uppi, og er hann hafði fundið hann, fór hann með hann til Antíokkíu, 26 og varð það af, að þeir voru saman heilt ár í söfnuðinum og kendu fjölda fólks, og í Antíokkíu voru lærisveinarnir fyrst kallaðir kristnir.

27 En á þessum dögum komu spámenn frá Jerúsalem niður til Antíokkíu; 28 gekk einn þeirra fram, Agabus að nafni, og af andanum boðaði hann fyrir, að koma mundi yfir alla heimsbygðina mikil hungursneyð; kom hún fram á dögum Kládíusar. 29 En lærisveinarnir kváðu svo á, að hver og einn af þeim skyldi senda nokkuð, eftir efnum sínum, til hjálpar bræðrunum, sem bjuggu í Júdeu, 30 sem þeir og gjörðu, og sendu Barnabas og Sál með það til öldunganna.


12

En um þessar mundir hóf Heródes konungur handa til að misþyrma nokkurum af söfnuðinum, 2 og lét hann höggva Jakob, bróður Jóhannesar, með sverði. 3 En er hann sá að Gyðingum líkaði það vel, hélt hann áfram og lét einnig taka Pétur, en þá voru dagar ósýrðu brauðanna, 4 og er hann hafði handtekið hann, lét hann setja hann í fangelsi og fékk hann til gæzlu fjórum ferningum hermanna, og ætlaði hann sér eftir páskana að leiða hann fram fyrir lýðinn. 5 Pétur var þá haldinn í fangelsi, og stöðug bænagjörð til Guðs var af söfnuðinum haldin fyrir honum. 6 En er Heródes ætlaði að fara að leiða hann fram, svaf Pétur þá nótt milli tveggja hermanna, bundinn með tveim fjötrum, og varðmenn fyrir dyrum úti gættu fangelsisins. 7 Og sjá, þá kom engill drottins, og ljós skein í klefanum, og hann laust á síðu Pétri og vakti hann, svo mælandi: Rís upp skjótt; og fjötrarnir féllu af höndum honum. 8 Og engillinn sagði við hann: Gyrð þig og bind á þig ilskó þína; og hann gjörði svo. Og hann segir við hann: far þú í yfirhöfn þína og fylg mér. 9 Og hann gekk út og fylgdi honum, og ekki vissi hann, að þetta, sem engillinn gjörði, væri svo í raun og veru, heldur hugðist hann sjá sýn. 10 Og er þeir höfðu gengið fram hjá innri og ytri verðinum, komu þeir til járnhliðsins, er liggur til borgarinnar, og laukst það upp af sjálfu sér fyrir þeim, og fóru þeir út um það og gengu áfram eitt stræti, og þá skildi engillinn alt í einu við hann. 11 Og þegar Pétur kom til sjálfs sín, sagði hann: Nú veit eg sannlega að drottinn hefir sent engil sinn og hrifið mig úr hendi Heródesar og frá allri eftirvænting Gyðingalýðs. 12 Og er hann hafði komið þessu fyrir sig, gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar — að viðurnefni Markús, — en þar voru allmargir saman komnir og báðust fyrir. 13 En er hann knúði hurð fordyrisins, gekk stúlka fram, að nafni Róde, til að vita hver þar væri, 14 og er hún þekti málróm Péturs, gáði hún eigi fyrir fögnuði að ljúka upp fordyrinu, heldur hljóp hún inn og sagði, að Pétur stæði fyrir utan fordyrið. 15 En þeir sögðu við hana: Þú ert frávita. En hún stóð fast á því, að svo væri. En þeir sögðu: Það er þá engill hans. 16 En Pétur hélt áfram að berja að dyrum, og er þeir luku upp, sáu þeir hann og urðu forviða. 17 En hann benti þeim með hendinni að þegja, og skýrði þeim frá, hvernig drottinn hefði leyst sig út úr fangelsinu, og mælti: Segið Jakob og bræðrunum frá þessu. Og hann gekk út og fór í annan stað. 18 En er dagur rann, varð meira en lítið uppþot hjá hermönnunum út af því, hvað af Pétri væri orðið. 19 En er Heródes hafði látið leita hans, og fann hann ekki, hélt hann rannsókn yfir varðmönnunum og bauð að fara með þá til lífláts, og fór úr Júdeu niður til Sesareu og sat þar um kyrt.

20 En hann var harla gramur Týringum og Sídóningum, og komu þeir með einu ráði til hans, og fengu í fylgi með sér Blastus stallara konungsins, og báðust friðar, af því að land þeirra fékk vistir frá landi konungsins. 21 Og á ákveðnum degi klæddist Heródes konungsskrúða og settist í hásætið og hélt ræðu til þeirra; 22 en lýðurinn kallaði: Guðs rödd er þetta, en eigi manns. 23 En þegar í stað sló engill drottins hann, sökum þess að hann gaf ekki Guði dýrðina, og var hann etinn upp af möðkum og dó.

24 En orð Guðs efldist og útbreiddist.

25 En Barnabas og Sál sneru aftur frá Jerúsalem að afloknu erindi sínu, og tóku með sér Jóhannes, að viðurnefni Markús.


13

En í Antíokkíu voru í söfnuðinum þar spámenn og kennarar, þeir Barnabas og Símeon, er Níger nefnist, og Lúkíus frá Kýrene og Manaen, samfóstri Heródesar fjórðungsstjóra, og Sál. 2 Og er þeir voru að þjóna drotni og föstuðu, sagði heilagur andi: Takið frá, mér til handa, þá Barnabas og Sál, til þess verks, sem eg hefi kallað þá til. 3 Síðan föstuðu þeir og báðust fyrir, og lögðu hendur yfir þá og létu þá fara.

4 Er þeir nú voru sendir út af heilögum anda, fóru þeir niður til Selevkíu og sigldu þaðan til Kípur. 5 Og er þeir voru komnir til Salamis, boðuðu þeir orð Guðs í samkunduhúsum Gyðinga. En þeir höfðu og Jóhannes að þjóni. 6 Og er þeir höfðu farið um alla eyna til Pafos, hittu þeir fyrir töframann nokkurn, falsspámann, Gyðing, Bar-Jesús að nafni. 7 Hann var hjá landstjóranum Sergíusi Páli, vitrum manni; hann boðaði þá Barnabas og Sál á fund sinn og girntist að heyra Guðs orð. 8 En í gegn þeim stóð Elýmas, töframaðurinn, — því að svo er útlagt nafn hans; reyndi hann að gjöra landstjórann fráhverfan trúnni. 9 En Sál, sem og er nefndur Páll, hvesti á hann augun og sagði, fyltur heilögum anda: 10 Þú sem fullur ert allra véla og hvers kyns illræðis, djöfuls sonurinn, óvinur alls réttlætis, lætur þú eigi af að rangsnúa réttum vegum drottins? 11 Og nú, sjá, hönd drottins kemur yfir þig, og þú munt verða blindur og ekki sjá sól um tíma. Og þegar í stað féll yfir hann þoka og myrkur, og hann gekk um kring og leitaði að mönnum til að leiða sig .12 Þá tók landstjórinn trú, er hann sá þennan atburð, og undraðist stórum kenningu drottins.

13 En þeir Páll lögðu út frá Pafos og komu til Perge í Pamfilíu, en Jóhannes skyldi við þá og sneri aftur til Jerúsalem. 14 En þeir héldu áfram frá Perge, og komu til Antíokkíu í Pisidíu og gengu inn í samkunduhúsið á hvíldardegi og tóku sér sæti. 15 En eftir upplestur lögmálsins og spámannanna sendu samkundustjórarnir til þeirra og sögðu: Þér bræður, ef þér hafið eitthvert ávarpsorð til fólksins, þá takið til máls. 16 Þá stóð Páll upp og benti til hljóðs með hendinni og sagði:

Þér Ísraelsmenn, og þér sem óttist Guð, hlýðið á: 17 Guð lýðs þessa, Ísraels, útvaldi feður vora og hóf veg lýðsins í útlegðinni á Egiptalandi og með uppréttum armlegg leiddi hann þá út úr því. 18 Og um fjörutíu ára skeið fóstraði hann þá í eyðimörkinni. 19 Og eftir að hann hafði eytt sjö þjóðum í Kanaanlandi, gaf hann þeim að erfðum land þeirra, 20 um fjögur hundruð og fimtíu ára skeið; og eftir þetta gaf hann þeim dómara, alt til Samúels spámanns. 21 Og síðan báðu þeir um konung, og Guð gaf þeim Sál Kísson, mann af Benjamíns ætt, í fjörutíu ár. 22 En er hann hafði afsett hann, hóf hann Davíð þeim til konungs, sem hann og vitnaði um, segjandi: Eg hefi fundið Davíð, son Ísaí, mann eftir mínu hjarta, er gjöra mun allan vilja minn. 23 Af þessa manns sæði lét Guð, samkvæmt fyrirheiti, Jesúm koma, Ísrael að frelsara, 24 er Jóhannes hafði á undan komu hans boðað iðrunarskírn öllum Ísraelslýð. 25 En er Jóhannes var að enda skeið sitt, sagði hann: Hvað hyggið þér mig vera? — Eg er það ekki; en sjá, annar kemur eftir mig, og er eg eigi verður þess, að leysa skó af fótum honum. 26 Þér bræður, synir af kynstofni Abrahams, og þér yðar á meðal, sem Guð óttist, oss er sent orð þessa hjálpræðis; 27 því að þeir sem í Jerúsalem búa og höfðingjar þeirra þektu hann eigi, og með því að dæma hann, uppfyltu þeir orð spámannanna, sem upp eru lesin hvern hvíldardag. 28 Og þó að þeir fyndu enga dauðasök hjá honum, báðu þeir Pílatus að hann yrði líflátinn. 29 En er þeir höfðu látið fram koma alt, sem um hann var ritað, tóku þeir hann ofan af trénu og lögðu í gröf. 30 En Guð reisti hann frá dauðum 31 og var hann séður marga daga af þeim, sem með honum höfðu farið frá Galíleu upp til Jerúsalem, og eru þeir hinir sömu nú vottar hans hjá fólkinu. 32 Og vér boðum yður fagnaðarerindið um fyrirheitið, sem feðrunum var gefið, að Guð hefir látið það rætast við börn vor, er hann uppreisti Jesúm, 33 eins og líka er ritað í öðrum sálminum: Þú ert sonur minn, í dag hefi eg getið þig. 34 En um það, að hann hefir uppreist hann frá dauðum, svo að hann mun eigi framar hverfa aftur til rotnunar, hefir hann talað svo: Eg mun gefa yður hið heilaga, óbrigðula, sem Davíð var heitið. 35 Fyrir því segir hann og í öðrum sálmi: Eigi munt þú láta þinn heilaga kenna rotnunar; 36 því að Davíð sofnaði, eftir að hann hafði þjónað Guðs ráði í sinni eigin kynslóð, og safnaðist til feðra sinna og kendi rotnunar, 37 en sá er Guð uppvakti, kendi ekki rotnunar. 38 Yður sé því vitanlegt, bræður mínir, að yður er fyrir hann boðuð synda-fyrirgefning, 39 og hver sá er trúir, réttlætist í honum af öllu því, er þér gátuð eigi réttlæst af við lögmál Móse. 40 Gætið nú þess, að eigi komi yfir yður það, sem sagt hefir verið hjá spámönnunum: 41 Sjáið, þér smáendur, og undrist og verðið að engu, því að verk vinn eg á dögum yðar, verk sem þér alls ekki munduð taka trúanlegt, þó að einhver segði yður frá því.

42 En er þeir gengu út, báðu menn að orð þessi væru til þeirra töluð næsta hvíldardag. 43 Og er samkomunni var slitið, fylgdu margir Gyðingar og guðræknir trúskiftingar þeim Páli og Barnabasi, og töluðu þeir til þeirra, og hvöttu þá til að halda sér stöðuglega við náð Guðs.

44 En á næsta hvíldardegi kom nálega allur bærinn saman til að heyra Guðs orð. 45 En er Gyðingar litu mannfjöldann, fyltust þeir vandlæti, og mæltu á móti ræðum Páls og lastmæltu. 46 En Páll og Barnabas töluðu einarðlega og sögðu: Svo hlaut að vera, að til yðar væri Guðs orð fyrst talað. Þar sem þér nú hrindið því burt og metið sjálfa yður ekki verða eilífs lífs, sjáið, þá snúum vér oss til heiðingjanna; 47 því að svo hefir drottinn boðið oss: Eg hefi sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða, að þú værir hjálpræði alt til yztu endimarka jarðarinnar. 48 En er heiðingjarnir heyrðu þetta, glöddust þeir og vegsömuðu orð Guðs, og allir þeir, sem ætlaðir voru til eilífs lífs, tóku trú, 49 Og orð drottins breiddist út um alt héraðið. 50 En Gyðingarnir æstu upp guðræknar hefðarkonur og fyrirmenn borgarinnar, og vöktu ofsókn gegn Páli og Barnabasi, og ráku þá út fyrir landamæri sín. 51 En þeir hristu duftið af fótum sér í gegn þeim og fóru til Íkoníum. 52 En lærisveinarnir fyltust fögnuði og heilögum anda.


14

En svo bar við í Íkoníum, að þeir gengu saman inn í samkunduhús Gyðinganna og töluðu svo, að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú. 2 En Gyðingarnir, sem vantrúaðir voru, vöktu æsing og illan hug í sálum heiðingjanna gegn bræðrunum. 3 Dvöldust þeir þar nú alllangan tíma og töluðu einarðlega í drotni, sem bar orði náðar sinnar vitni, með því að láta tákn og undur gjörast fyrir hendur þeirra. 4 Skiftist nú allur borgarlýður í tvo flokka, og voru sumir með Gyðingunum, en aðrir með postulunum. 5 En er til þess var stofnað bæði af heiðingjunum og Gyðingunum, ásamt yfirmönnum þeirra, að smána þá og grýta, 6 þá flýðu þeir, er þeir komust að því, til borganna Lýstra og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins umhverfis, 7 og þar voru þeir að boða fagnaðarerindið.

8 En í Lýstra sat maður nokkur máttvana í fótum, haltur frá móðurlífi, er aldrei hafði gengið. 9 Maður þessi heyrði á mál Páls, og Páll festi augu á honum, og sá að hann hafði trú til þess að geta orðið heill, og sagði með hárri raustu: 10 Stattu uppréttur á fætur þína! og hann spratt upp og gekk. 11 En er múgurinn sá, hvað Páll gjörði, hófu þeir upp raust sína og sögðu á lýkaónsku: Guðirnir eru í manna líki stignir niður til vor. 12 Kölluðu þeir Barnabas Seif, en Pál kölluðu þeir Hermes, af því að hann hafði orð fyrir þeim. 13 Og presturinn í hofi Seifs, sem var fyrir utan borgina, kom með naut og kransa að hliðunum, og ætlaði hann og fólkið með honum að færa fórnir. 14 En er postularnir, þeir Barnabas og Páll, heyrðu þetta, rifu þeir klæði sín og stukku inn í mannþröngina og hrópuðu 15 og sögðu: Menn, hví gjörið þér slíkt? Menn erum vér sem þér, yður líkir, sem erum að boða yður fagnaðarerindið um að þér skulið hverfa frá þessum hégómlegu hlutum til lifandi Guðs, sem gjört hefir himininn, jörðina og hafið, og alt sem í þeim er, 16 hann sem um liðnar aldir hefir leyft öllum þjóðum að ganga þeirra vegu, 17 og þó hefir hann ekki látið sjálfan sig án vitnisburðar, þar sem hann gjörði gott, og gaf yður regn af himnum og frjóvsamar árstíðir, og fylti hjörtu yðar fæðu og fögnuði. 18 Og það var með naumindum að þeir gátu með þessum orðum fengið fólkið til að hætta við að færa þeim fórnir.

19 En þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum og fengu þeir fólkið á sitt mál, og menn grýttu Pál og drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn. 20 En er lærisveinarnir stóðu í kring um hann, reis hann upp og gekk inn í borgina, og morguninn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe. 21 Og er þeir höfðu boðað þeirri borg fagnaðarerindið og gjört allmarga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstra og til Íkóníum og til Antíokkíu, 22 og styrktu sálir lærisveinanna, og ámintu þá að vera staðfastir í trúnni, og að vér eigum að ganga inn í guðsríki í gegnum margar þrengingar. 23 Og er þeir höfðu látið þá kjósa sér öldunga í hverjum söfnuði, fólu þeir þá með föstum og bænahaldi drotni, sem þeir höfðu fest trú á. 24 Og þeir fóru um Pisidíu og komu til Pamfilíu, 25 og er þeir höfðu talað orðið í Perge, fóru þeir niður til Attalíu, 26 og sigldu þaðan til Antíokkíu; en þaðan höfðu þeir verið faldir náð Guðs til verksins, sem þeir nú höfðu fullnað. 27 Og er þeir voru komnir þangað og höfðu stefnt saman söfnuðinum, sögðu þeir frá, hversu mikið Guð hafði látið þá framkvæma, og að hann hefði lokið upp trúar-dyrum fyrir heiðingjunum. 28 Og þeir dvöldust alllengi hjá lærisveinunum.


15

Og nokkurir komu ofan frá Júdeu og kendu bræðrunum svo: Eigi getið þér hólpnir orðið, nema þér látið umskerast að sið Móse. 2 En er upp kom allmikil misklíð og þræta milli þeirra og Páls og Barnabasar, réðu menn af, að Páll og Barnabas og nokkurir aðrir af þeim skyldu fara á fund postulanna og öldunganna, upp til Jerúsalem, út af þessum ágreiningi. 3 Söfnuðurinn fylgdi þeim síðan á veg, og þeir fóru um Fönikíu og Samaríu og sögðu frá afturhvarfi heiðingjanna, og glöddu stórlega alla bræðurna. 4 En þegar þeir voru komnir til Jerúsalem, var þeim vel tekið af söfnuðinum og postulunum og öldungunum, og sögðu þeir frá, hversu mikið Guð hafði látið þá framkvæma. 5 En nokkurir risu upp af flokki Faríseanna, þeir er trú höfðu tekið, og sögðu: Þá ber að umskera og bjóða þeim að halda lögmál Móse.

6 En postularnir og öldungarnir komu saman til að líta á þetta mál. 7 En er mikið hafði verið um það þráttað, reis Pétur upp og sagði við þá:

Þér bræður, þér vitið að fyrir löngu kjöri Guð yðar á meðal, að heiðingjarnir skyldu fyrir munn minn heyra orð fagnaðarerindisins og taka trú. 8 Og Guð, sem hjörtun þekkir, bar þeim vitni, er hann gaf þeim heilagan anda eins og oss; 9 og engan mun gjörði hann á oss og þeim, er hann hafði hreinsað hjörtu þeirra með trúnni. 10 Hvað eruð þér þá nú að freista Guðs, með því að leggja ok á háls lærisveinanna, er hvorki feður vorir né vér megnuðum að bera? 11 En vér trúum því, að vér verðum hólpnir fyrir náðina drottins Jesú á sama hátt og þeir.

12 Og allur múgurinn þagði, og menn hlýddu á Barnabas og Pál, er þeir sögðu frá, hversu mörg tákn og undur Guð hafði látið þá framkvæma meðal heiðingjanna. 13 En er þeir voru þagnaðir, tók Jakob til máls og sagði:

Þér bræður, hlýðið á mig. 14 Símeon hefir skýrt frá hvernig Guð í fyrstu lét sér umhugað um að taka nafni sínu lýð á meðal heiðingjanna, 15 og í samræmi við þetta eru orð spámannanna, svo sem ritað er: 16 Eftir þetta mun eg aftur hverfa og endurreisa hina föllnu tjaldbúð Davíðs, og reisa við rústir hennar, og gjöra hana upp aftur, 17 svo að mennirnir, sem eftir eru leifðir, leiti drottins, og allir heiðingjarnir, sem nafn mitt hefir verið nefnt yfir, segir drottinn, sem gjörir þetta, 18 sem kunnugt er frá eilífð. 19 Fyrir því er það minn úrskurður, að ekki skuli íþyngja þeim, er af heiðingjunum snúa sér til Guðs, 20 heldur að vér ritum þeim, að þeir skuli halda sig frá allri flekkun af skurðgoðum, og frá frillulífi og frá köfnuðu og frá blóði; 21 því að Móse hefir frá fornu fari þá, er hann prédika í hverri borg, með því að hann er lesinn upp í samkundunum hvern hvíldardag.

22 Postulunum og öldungunum, ásamt öllum söfnuðinum, leizt þá að senda menn, til þess kjörna úr sínum hóp, með Páli og Barnabasi til Antíokkíu, þá Júdas, er kallaður var Barsabas, og Sílas, mikilsvirta menn meðal bræðranna, 23 og rituðu með þeim: Postularnir og öldungarnir, bræðurnir, senda bræðrunum í Antíokkíu, Sýrlandi og Kilikíu, er áður voru heiðnir, kveðju sína. 24 Með því að vér höfum heyrt að nokkurir, er út hafa gengið frá oss, hafi óróað yður með orðum sínum og truflað sálir yðar, án þess að vér hefðum þeim neitt um boðið, 25 þá hefir oss litist, er vér vorum orðnir samhuga, að senda til yðar til þess kjörna menn með vorum elskulegu Barnabasi og Páli, 26 mönnum, er lagt hafa líf sitt í hættu fyrir nafn drottins vors Jesú Krists. 27 Vér höfum því sent Júdas og Sílas, og boða þeir yður hið sama munnlega; 28 því að heilögum anda og oss hefir litist, að leggja eigi frekari byrðar á yður en þetta, sem nauðsynlegt er, 29 að þér haldið yður frá skurðgoðafórnum og frá blóði og frá köfnuðu og frá frillulífi. Ef þér varist þetta, mun yður vegna vel. Verið sælir.

30 Þeir voru þá látnir fara af stað og komu niður til Antíokkíu og kölluðu þá alla saman og skiluðu bréfinu. 31 En er menn lásu það, urðu þeir glaðir yfir þeirri huggun. 32 Og Júdas og Sílas, er sjálfir voru og spámenn, ámintu bræðurna með mörgum orðum og styrktu þá. 33 Og er þeir höfðu dvalist þar um hríð, létu bræðurnir þá fara í friði til þeirra, er höfðu sent þá. 35 En Páll og Barnabas héldu kyrru fyrir í Antíokkíu og kendu og boðuðu ásamt mörgum öðrum orð drottins.

36 En eftir nokkura daga sagði Páll við Barnabas: Hverfum aftur og vitjum bræðranna í sérhverri borg, þar sem vér höfum boðað orð drottins, hvernig þeim líður. 37 En Barnabas vildi líka taka með Jóhannes, er kallaður var Markús. 38 En Páli þótti eigi rétt að taka þann mann með, er hljóp frá þeim í Pamfilíu og fylgdist ekki með þeim til verksins. 39 Varð nú áköf deila, svo að þeir skildu hvorir við aðra, og tók Barnabas Markús með sér og sigldi til Kípur. 40 En Páll kaus sér Sílas og fór af stað, falinn náð drottins af bræðrunum. 41 Og hann fór um Sýrland og Kilikíu og styrkti söfnuðina.


16

Og hann kom líka til Derbe og Lýstra, og sjá, lærisveinn nokkur var þar, Tímóteus að nafni, sonur trúaðrar konu af Gyðinga ætt, en faðirinn var grískur. 2 Hann hafði góðan orðstír hjá bræðrunum í Lýstra og Íkóníum; 3 hann vildi Páll láta fara með sér, og tók hann og umskar hann sökum Gyðinga, er voru í þeim bygðum, því að allir vissu þeir, að faðir hans var grískur. 4 Og er þeir fóru um borgirnar, lögðu þeir fyrir menn að varðveita boð og úrskurði postulanna og öldunganna í Jerúsalem. 5 Styrktust nú söfnuðirnir í trúnni og fjölguðu dag frá degi.

6 Og þeir fóru um Frýgíu og Galataland, en heilagur andi varnaði þeim að tala orðið í Asíu. 7 Og sem þeir voru komnir að Mýsíu, gjörðu þeir tilraun til að fara til Bitýníu, en andi Jesú leyfði þeim það eigi. 8 Og þeir fóru fram hjá Mýsíu og komu niður til Tróas.9 Og um nótt vitraðist Páli sýn: Maður nokkur makedónskur stóð hjá honum, og bað hann segjandi: Kom yfir til Makedóníu og hjálpa oss. 10 En jafnskjótt og hann hafði séð þessa sýn, leituðumst vér við að komast af stað til Makedóníu, þar sem vér ályktuðum, að Guð hefði kallað oss, til þess að boða þeim fagnaðarerindið.

11 Nú lögðum vér út frá Tróas og sigldum beint til Samótrake, en næsta dag til Neapolis, 12 og þaðan til Filippí, sem er helzta borgin í þeim hluta Makedóníu, og er nýlenda. Í þeirri borg dvöldum vér nokkura daga, 13 og hvíldardaginn gengum vér út fyrir hliðið, fram með á, þar sem vér hugðum vera stað til bænahalds, og settumst niður og töluðum við konurnar, sem komu þar saman. 14 Og kona nokkur guðhrædd, Lýdía að nafni, úr Þýatíra-borg, er seldi purpura, hlýddi á, og opnaði drottinn hjarta hennar, svo að hún gaf gaum að ræðu Páls. 15 Og er hún var skírð og heimili hennar, bað hún oss og sagði: Ef þér álítið mig trúa drotni, þá gangið inn í hús mitt og takið þar dvöl. Og hún lagði fast að oss.

16 Og svo bar við, er vér vorum á leið til bænahaldsstaðarins, að oss mætti þerna nokkur, sem hafði spásagnaranda og ávann húsbændum sínum mikið fé með því að spá; 17 hún elti Pál og oss og hrópaði og sagði: Menn þessir eru þjónar Guðs hins hæsta, og boða þeir oss veg hjálpræðis. 18 Og þetta gjörði hún í marga daga. En Páli féll það illa, og hann sneri sér við og sagði við andann: Eg býð þér í nafni Jesú Krists að fara út af henni, og hann fór út á samri stundu.

19 En er húsbændur hennar sáu, að ábatavon þeirra var farin, handtóku þeir Pál og Sílas og drógu þá á torgið fyrir valdsmennina. 20 Og er þeir höfðu farið með þá til höfuðsmannanna, sögðu þeir: Menn þessir gjöra mestu óspektir í borg vorri, eru þeir Gyðingar, 21 og boða siði þá, sem oss, rómverskum mönnum, leyfist hvorki að þýðast né fylgja. 22 Og múgurinn reis og í gegn þeim, og höfuðsmennirnir flettu þá klæðum og skipuðu að berja þá með stöfum. 23 Og er þeir höfðu lostið þá mörgum höggum, vörpuðu þeir þeim í fangelsi, og buðu fangaverðinum að gæta þeirra vandlega. 24 Og er hann hafði fengið slíka skipun, varpaði hann þeim í innra fangelsið og feldi stokk á fætur þeim. 25 En um miðnætti báðust þeir Páll og Sílas fyrir, og lofsungu Guði, og bandingjarnir hlustuðu á þá. 26 Þá varð skyndilega landskjálfti mikill, svo að grundvöllur fangelsisins titraði, og jafnskjótt opnuðust allar dyr, og fjötrarnir féllu af öllum. 27 Og er fangavörðurinn hrökk upp úr svefni og sá fangelsisdyrnar opnar, dró hann sverð sitt og ætlaði að fyrirfara sér, af því að hann hugði, að bandingjarnir væru flúnir. 28 En Páll kallaði hárri raustu og sagði: Gjör þú sjálfum þér ekkert mein, því að vér erum hér allir. 29 Og hann bað um ljós og stökk inn, og féll óttasleginn til fóta Páli og Sílasi 30 og leiddi þá út og sagði: Herrar, hvað á eg að gjöra, til þess að eg verði hólpinn? 31 En þeir sögðu: Trú þú á drottin Jesúm, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt. 32 Og þeir fluttu honum orð drottins og öllum á heimili hans. 33 Og á þessari sömu næturstund tók hann þá með sér og þvoði benjar þeirra, og hann var skírður og alt fólk hans þegar í stað. 34 Og hann fór með þá upp í hús sitt, bar þeim mat, og var fagnandi, er hann hafði tekið trú á Guð með öllu heimafólki sínu.

35 En er dagur rann, sendu höfuðsmennirnir vandsveina og létu segja: Lát þú menn þessa lausa. 36 En fangavörðurinn flutti Páli þau orð: Höfuðsmennirnir hafa sent boð um, að þið skylduð lausir látast; gangið því nú út og farið í friði. 37 En Páll sagði við þá: Þeir hafa fyrir allra augum barið oss ódæmda, þó að vér séum rómverskir menn, og hafa varpað oss í fangelsi, og nú ætla þeir að hleypa oss út á laun. Ekki skal svo vera, heldur komi þeir sjálfir og leiði oss út. 38 Og vandsveinarnir fluttu höfuðsmönnunum þessi orð. En þeir urðu hræddir, er þeir heyrðu, að þeir væru menn rómverskir, 39 og þeir komu og friðmæltust við þá, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni. 40 Og er þeir voru gengnir út úr fangelsinu, fóru þeir heim til Lýdíu, fundu þar bræðurna og hughreystu þá, og héldu síðan af stað.


17

En er þeir höfðu farið um Amfípolis og Apollóníu, komu þeir til Þessalóníku, en þar áttu Gyðingar samkunduhús. 2 Og eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra og þrjá hvíldardaga átti hann tal við þá út af ritningunum, 3 lauk þeim upp fyrir þeim og setti þeim fyrir sjónir, að Kristur átti að líða og risa upp frá dauðum, og að Jesús — sem eg boða yður — hann er einmitt Kristur. 4 Og nokkurir af þeim létu sannfærast, og gengu í flokk með þeim Páli og Sílasi, svo og mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og mikilsháttar konur ekki allfáar. 5 En Gyðingarnir fyltust vandlæti og tóku með sér nokkura vonda menn af götuskrílnum, vöktu uppþot og hleyptu borginni í uppnám og þustu að húsi Jasons og gjörðu tilraun til að færa þá fyrir lýðinn. 6 En er þeir fundu þá ekki, drógu þeir Jason og nokkura bræður fyrir borgstjórana og hrópuðu: Mennirnir, sem vakið hafa óeirðir um alla heimsbygðina, þeir eru líka komnir hingað, 7 og Jason hefir tekið á móti þeim, og allir þessir menn breyta á móti boðum keisarans, þar sem þeir segja, að annar sé konungur, og það sé Jesús. 8 Og þeir æstu upp múginn og borgstjórana, er heyrðu þetta. 9 Og er þeir höfðu tekið vörzlu fyrir Jason og hina, sleptu þeir þeim.

10 Og jafnskjótt létu bræðurnir þá Pál og Sílas fara af stað um nótt til Beröu, og er þeir voru þangað komnir, gengu þeir inn í samkunduhús Gyðinga. 11 En þeir voru göfuglyndari en mennirnir í Þessaloníku, þar sem þeir tóku við orðinu með mjög fúsu geði, og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig varið. 12 Margir af þeim tóku nú trú og ekki allfátt af tignum grískum konum og karlmönnum. 13 En er Gyðingarnir í Þessaloníku fengu að vita, að í Beröu væri einnig orð Guðs boðað af Páli, komu þeir og hleyptu líka í múginn þar ólgu og æsingu. 14 En bræðurnir sendu þá jafnskjótt með Pál af stað, alla leið til sjávar, en Sílas og Tímóteus urðu þar eftir. 15 En þeir, sem fluttu Pál, fóru með hann alla leið til Aþenu, og er þeir höfðu tekið við skipun til Sílasar og Tímóteusar, að þeir kæmu hið bráðasta til hans, fóru þeir leiðar sinnar.

16 En meðan Páll beið þeirra í Aþenu, fyltist andinn í brjósti honum sárri gremju, er hann sá að borgin var full af skurðgoðum. 17 Í samkunduhúsinu átti hann því tal við Gyðingana og guðsdýrkendur, og á torginu dag hvern við þá, sem urðu á vegi hans. 18 En nokkurir Epíkúringar og stóiskir heimspekingar gáfu sig líka í orðakast við hann. Sögðu sumir: Hvað mun skraffinnur sá hafa að flytja? Aðrir sögðu: Hann virðist boða ókenda guði; af því að hann boðaði fagnaðarerindið um Jesúm og upprisuna. 19 Og þeir tóku hann og fóru með hann upp á Aresarhæð og sögðu: Getum vér fengið að vita, hver þessi nýja kenning er, sem þú fer með? 20 Því að eitthvað nýstárlegt flytur þú oss til eyrna; fýsir oss nú að vita, hvað þetta er. — 21 En allir Aþenumenn og gestir, sem sezt hafa þar að, gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra eitthvað nýtt. — 22 En Páll stóð á miðri Aresarhæð og tók til máls:

Aþenumenn, þér komið mér svo fyrir sjónir, að þér í öllum greinum séuð miklir trúmenn, 23 því er eg gekk hér um og skygndist eftir helgidómum yðar, fann eg meðal annars altari, sem á var ritað: »Ókunnum guði«. Það sem þér nú dýrkið óafvitandi, það boða eg yður: 24 Guð sem gjörði heiminn og alt sem í honum er, hann, sem er herra himins og jarðar, býr ekki í musterum, sem með höndum eru gjörð, 25 og ekki verður honum heldur þjónað af höndum manna, eins og hann þyrfti nokkurs við, þar sem hann sjálfur gefur öllum líf og anda og alla hluti; 26 og hann lét út frá einum sérhverja þjóð manna byggja alt yfirborð jarðarinnar, er hann hafði ákveðið fyrirsetta tíma og takmark bólstaða þeirra, 27 svo að þær skyldu leita Guðs, ef verða kynni, að þær mættu þreifa á honum og hann finna, enda þótt hann sé eigi langt frá hverjum og einum af oss, 28 því að í honum lifum, hrærumst og erum vér, eins og líka nokkur af skáldunum hjá yður hafa sagt: »Því að vér erum líka hans ættar«. 29 Fyrst vér erum nú Guðs ættar, megum vér ekki ætla að guðdómurinn sé líkur gulli eða silfri eða steini: mynd gjörðri af mannlegum hagleik og hugviti. 30 Guð hefir þá séð í gegnum fingur við tíðir vanvizkunnar, en nú boðar hann mönnunum, að þeir allir skuli alstaðar gjöra iðrun, 31 með því að hann hefir ákveðið dag, á hverjum hann mun láta mann, sem hann hefir fyrirhugað, dæma heimsbygðina með réttvísi, og hefir hann veitt öllum fullvissu um það, með því að hann reisti hann frá dauðum.

32 Er þeir nú heyrðu nefnda upprisu dauðra, gjörðu sumir gys að, en aðrir sögðu: Vér munum hlusta á þetta hjá þér í annað sinn. 33 Þannig skildi Páll við þá. 34 Og nokkurir menn, sem héldu sér til hans, tóku trú; á meðal þeirra var og Díónýsíus Areopagíti og kona, Damaris að nafni, og aðrir ásamt þeim.


18

Eftir þetta fór Páll úr Aþenu og kom til Korintu. 2 Og þar fann hann fyrir Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans, því að Kládíus hafði skipað svo fyrir, að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Hann fór til þeirra, 3 og af því að báðir stunduðu sömu iðn, settist hann að hjá þeim, og þeir unnu að verki sínu, því að iðn þeirra var tjaldgjörð. 4 En hann átti viðræður við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag, og sannfærði bæði Gyðinga og Grikki.

5 En er þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu, var Páll allur í orðinu, og vitnaði fyrir Gyðingum, að Jesús væri Kristur. 6 En er þeir stóðu í gegn og lastmæltu, hristi hann duftið af klæðum sínum og sagði við þá: Blóð yðar komi yfir höfuð yðar, eg er hreinn; upp frá þessu fer eg til heiðingjanna. 7 Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs, er hét Títus Jústus, sem dýrkaði Guð, og var hús hans rétt hjá samkunduhúsinu. 8 En Krispus samkundustjóri tók trú á drottin, og alt heimili hans, og margir Korintumenn, sem á hlýddu, tóku trú og létu skírast. 9 En drottinn sagði um nótt við Pál í sýn: Óttast þú eigi, heldur tala þú og þeg ekki; 10 því að eg er með þér, og enginn skal ráðast að þér til að vinna þér mein, því að eg á margt fólk í þessari borg. 11 Og hann sat þar um kyrt þrjú missiri, og kendi orð Guðs á meðal þeirra.

12 En þegar Gallíón var landstjóri í Akkeu, risu Gyðingar með einum huga gegn Páli og drógu hann fyrir dómstólinn og sögðu: 13 Maður þessi telur menn á að dýrka Guð gagnstætt lögmálinu. 14 En er Páll ætlaði að opna munninn, sagði Gallíón við Gyðingana: Ef hér væri um nokkuð saknæmt eða eitthvert ódæði að ræða, þá væri ástæða fyrir mig að sinna yður, Gyðingar; 15 en ef það eru deilur um orð og nöfn og lögmál það, sem þér hafið, þá ráðið sjálfir fram úr því; dómari í slíkum efnum vil eg ekki vera. 16 Og hann rak þá burt frá dómstólnum. 17 Og allur mannsöfnuðurinn tók Sóstenes, samkundustjórann, og þeir börðu hann fyrir framan dómstólinn, og alt þetta lét Gallíón sig engu skifta.

18 En Páll var þar enn um kyrt allmarga daga; síðan kvaddi hann bræðurna og sigldi til Sýrlands, og með honum Priskilla og Akvílas, eftir að hann hafði látið skera hár sitt í Kenkreu, — því að heit hvíldi á honum. — 19 Og þeir komu til Efesus og þar lét hann þau eftir, en sjálfur gekk hann inn í samkunduhúsið og átti samræður við Gyðinga. 20 En er þeir báðu hann að standa lengur við, samsinti hann því ekki, 21 heldur kvaddi þá og sagði: Eg skal hverfa aftur til yðar, ef Guð vill. Og hann lét í haf frá Efesus; 22 og er hann var kominn til Sesareu, fór hann upp eftir, og heilsaði söfnuðinum, og fór niður til Antíokkíu. 23 Og er hann hafði dvalið þar um hríð, hélt hann af stað, og fór eins og leið liggur um Galataland og Frýgíu og styrkti alla lærisveinana.

24 En Gyðingur nokkur, Apollós að nafni, ættaður frá Alexandríu, kom til Efesus; hann var maður vel máli farinn og fær í ritningunum; 25 hann var fræddur um veg drottins, og var brennandi í andanum, og talaði og kendi kostgæfilega um Jesúm, en þekti aðeins skírn Jóhannesar. 26 Þessi maður tók að tala djarflega í samkunduhúsinu, og er Priskilla og Akvílas höfðu hlustað á hann, tóku þau hann að sér og útlistuðu rækilegar fyrir honum Guðs veg. 27 En er hann fýsti að fara yfir um til Akkeu, hvöttu bræðurnir hann til þess og rituðu lærisveinunum að veita honum viðtöku. Og er hann var þangað kominn, varð hann fyrir náðina þeim til mikillar nytsemi, sem trú höfðu tekið; 28 því að harðlega hrakti hann Gyðingana í allra áheyrn, og sannaði af ritningunum, að Jesús væri Kristur.


19

En svo bar við, meðan Apollós var í Korintu, að Páll kom til Efesus, eftir að hann hafði farið um upplöndin, 2 og hitti þar fyrir nokkura lærisveina, og hann sagði við þá: Fenguð þér heilagan anda, er þér tókuð trú? En þeir sögðu við hann: Nei, vér höfum eigi svo mikið sem heyrt, að heilagur andi sé til. 3 Og hann sagði: Upp á hvað eruð þér þá skírðir? En þeir sögðu: Upp á skírn Jóhannesar. 4 En Páll sagði: Jóhannes skírði iðrunarskírn, er hann sagði lýðnum að trúa á þann, sem eftir sig kæmi, það er að segja á Jesúm. 5 En er þeir höfðu heyrt það, þá létu þeir skírast til nafns drottins Jesú. 6 Og er Páll hafði lagt hendur yfir þá, kom heilagur andi yfir þá, og þeir töluðu tungum og spáðu. 7 Og alls voru þeir sem næst tólf manns.

8 Og hann gekk inn í samkunduhúsið og talaði djarflega um þriggja mánaða tíma, og átti viðræður við menn og sannfærði um það, sem heyrir til guðsríki. 9 En er nokkurir forhertust og höfnuðu trúnni, og illmæltu veginum í áheyrn fólksins, sagði hann skilið við þá og greindi lærisveinana frá þeim, og hélt daglega samræður í skóla Týrannusar. 10 Og þessu fór fram í tvö ár, svo að allir þeir, sem í Asíu bjuggu, heyrðu orð drottins, bæði Gyðingar og Grikkir. 11 Og Guð gjörði óvenjuleg kraftaverk fyrir hendur Páls, 12 svo að jafnvel voru bornir út til sjúkra af líkama hans sveitadúkar eða forklæði, og sjúkdómarnir viku frá þeim og illir andar fóru út af þeim. 13 En nokkurir umrennandi Gyðingar, sem voru særingamenn, tóku sér og fyrir að nefna yfir þeim, er höfðu illa anda, nafn drottins Jesú, segjandi: Eg særi yður við Jesúm, sem Páll prédikar. — 14 En þeir, er þetta frömdu, voru sjö synir Skeva nokkurs æðsta prests, Gyðinga ættar. — 15 En illi andinn svaraði og sagði við þá: Jesúm kenni eg og Pál þekki eg; en hverjir eruð þið? 16 Og maðurinn, sem illi andinn var í, flaug á þá, keyrði þá báða undir sig og lék þá hart, svo að þeir flýðu naktir og særðir út úr húsinu. 17 En þetta varð kunnugt bæði öllum Gyðingum og Grikkjum, er búa í Efesus, og ótta sló yfir þá alla, og nafn drottins Jesú miklaðist. 18 Og margir þeirra, sem við trú höfðu tekið, komu og gjörðu játningu og sögðu frá athæfi sínu. 19 Og allmargir af þeim, er farið höfðu með kukl, báru bækurnar saman og brendu þær öllum ásjáandi, og þeir reiknuðu saman verð þeirra, og taldist það vera fimtíu þúsund silfurpeningar. 20 Svo kröftuglega óx og efldist orð drottins.

21 Eftir að þetta var um garð gengið, ásetti Páll sér í anda að ferðast um Makedóníu og Akkeu og fara síðan til Jerúsalem og sagði: Þegar eg hefi verið þar, ber mér líka að sjá Róm. 22 Og hann sendi til Makedóníu tvo af þeim, er honum þjónuðu, þá Tímóteus og Erastus. en dvaldi sjálfur um tíma í Asíu.

23 En í þann tíma hófst eigi lítið uppþot út af veginum; 24 því að maður nokkur var þar, Demetríus að nafni; hann var silfursmiður; bjó hann til Artemisar musteri úr silfri, og veitti smiðum eigi litla atvinnu. 25 Hann stefndi þeim saman og öðrum, sem að slíku unnu, og sagði: Góðir menn, þér vitið að á þessari atvinnu stendur velmegun vor; 26 og þér sjáið og heyrið, að ekki einungis í Efesus, heldur nær um gjörvalla Asíu, hefir Páll þessi með fortölum sínum snúið fjölda fólks, þar sem hann segir, að eigi séu þeir guðir, sem með höndum eru gjörðir. 27 Nú horfir þetta ekki einungis iðn vorri til smánar, heldur einnig til þess að helgidómur hinnar miklu gyðju Artemisar verði einskis virtur; já, jafnvel að hún, sem öll Asía og heimsbygðin dýrkar, verði svift tign sinni. 28 Og er þeir heyrðu þetta, urðu þeir afarreiðir, æptu upp og sögðu: Mikil er Artemis Efesusmanna! 29 Og öll borgin komst í uppnám, og þeir þustu með einum huga til leiksviðsins, og gripu og höfðu með sér þá Kajus og Aristarkus, menn frá Makedóníu, sem voru förunautar Páls. 30 En er Páll vildi ganga inn í mannþröngina, leyfðu lærisveinarnir honum það ekki. 31 En nokkurir af leikstjórunum, sem voru vinir hans, sendu jafnvel til hans og báðu hann að hætta sér ekki inn á leiksviðið. 32 Þeir hrópuðu nú sitt hver, því að mannsöfnuðurinn var í uppnámi, og flestir vissu ekki, hvers vegna þeir voru saman komnir. 33 Og menn drógu Alexander fram úr mannþrönginni, af því að Gyðingar ýttu honum fram; en Alexander bandaði með hendinni og vildi verja mál sitt fyrir fólkinu. 34 En er þeir urðu þess vísir, að hann var Gyðingur, æptu allir einum munni og hrópuðu í nærfelt tvær stundir: Mikil er Artemis Efesusmanna! 35 En ritarinn sefaði fólkið og mælti: Efesusmenn, hver er sá maður, er ekki viti, að borg Efesusmanna geymir musteris hinnar miklu Artemisar og hins himinfallna líkneskis? 36 Þar sem þetta er nú ómótmælanlegt, þá ber yður að vera stiltir og ekki hrapa að neinu, 37 því að þér hafið dregið þessa menn hingað, sem hvorki hafa rænt helgidóma né lastmælt gyðju vorri. 38 Hafi nú Demetríus og smiðirnir, sem honum fylgja, kærumál við nokkurn, þá eru þingdagar haldnir, og til eru landstjórar; eigist þeir lög við. 39 En ef þér hafið annars að krefja, þá má gjöra út um það á löglegri samkomu; 40 því að vér eigum jafnvel á hættu, að verða sakaðir um upphlaup fyrir þetta í dag, þar eð ekkert verður borið fyrir, sem vér getum mælt slíku uppþoti bót með. 41 Að svo mæltu lét hann mannsöfnuðinn skiljast að.


20

En eftir að uppþotið var hætt, sendi Páll eftir lærisveinunum, áminti þá og kvaddi þá og fór burt áleiðis til Makedóníu. 2 Og er hann hafði farið um þau héruð og hafði ámint þá með mörgum orðum, kom hann til Grikklands. 3 Og er hann hafði verið þar þrjá mánuði, og Gyðingar sátu á svikráðum við hann, er hann ætlaði að leggja af stað sjóveg til Sýrlands, tók hann það ráð að snúa aftur um Makedóníu. 4 En honum fylgdu alla leið til Asíu Sópater Pýrrusson frá Beröu og af Þessaloníkumönnum Aristarkus og Sekúndus, og Gajus frá Derbe og Tímóteus og Asíumennirnir Týkíkus og Trófímus. 5 En þeir fóru á undan og biðu vor í Tróas. 6 En vér sigldum eftir daga ósýrðu brauðanna burt frá Filippí, og komum til þeirra í Tróas á fimta degi, og þar stóðum vér við sjö daga.

7 En er vér vorum saman komnir fyrsta dag vikunnar, til þess að brjóta brauðið, átti Páll samræður við þá, með því að hann ætlaði að fara burt morguninn eftir, og teygði hann talið til miðnættis. 8 En mörg ljós voru í loftstofunni, þar sem vér vorum saman komnir. 9 En í glugganum sat ungmenni eitt, Evtýkus að nafni; á hann féll þungur svefn, og er Páll ræddi svo lengi, datt hann, yfirkominn af svefninum, ofan af þriðja lofti og var tekinn upp andvana. 10 Og Páll gekk ofan, lagðist niður að honum og tók utan um hann og sagði: Gjörið engan hávaða, því að líf er með honum. 11 Og hann fór upp og braut brauðið og neytti og talaði enn um hríð fram í dögun; síðan fór hann leiðar sinnar. 12 En þeir fóru með sveininn lifandi og hugguðust mikillega.

13 En vér, sem áður höfðum stigið á skip, sigldum til Assus og ætluðum þar að taka Pál á skip, því að svo hafði hann fyrir lagt, en sjálfur ætlaði hann að ganga. 14 Og er hann hafði hitt oss í Assus, tókum vér hann á skip og komum til Mitýlene. 15 Og þaðan sigldum vér og komum næsta dag á móts við Kíos. Og daginn eftir lögðumst vér undir Samos, og næsta dag komum vér til Míletus. 16 Því að Páll hafði ásett sér að sigla fram hjá Efesus, til þess að það kæmi ekki fyrir hann, að honum dveldist í Asíu, því að hann hraðaði ferð sinni, ef honum yrði auðið að komast til Jerúsalem hvítasunnudaginn.

17 En frá Míletus sendi hann til Efesus og boðaði til sín öldunga safnaðarins, 18 og er þeir voru komnir til hans, sagði hann við þá:

Þér vitið með hverjum hætti eg var hjá yður alla stund frá þeim fyrsta degi, er eg kom til Asíu, 19 að eg þjónaði drotni í allri auðmýkt og með tárum og í raunum, sem fyrir mig komu af svikráðum Gyðinganna, 20 og hversu eg hlífðist eigi við að boða yður og kenna alt nauðsynlegt, opinberlega og í heimahúsum, 21 er eg vitnaði bæði fyrir Gyðingum og Grikkjum um afturhvarfið til Guðs og trú á drottin vorn Jesúm Krist. 22 Og nú, sjá, bundinn í anda er eg á leið til Jerúsalem, vitandi eigi, hvað þar muni mæta mér, 23 nema hvað heilagur andi birtir mér í hverri borg og segir, að fjötrar og þrengingar bíði mín. 24 En eigi er orði að því eyðandi, að lífið sé dýrmætt fyrir mig sjálfan móts við það að fullna skeið mitt og þjónustuna, er eg tók við af drotni Jesú, að vitna um fagnaðarerindi Guðs náðar. 25 Og nú, sjá, eg veit, að eigi munuð þér framar sjá ásjónu mína, allir þér, er eg var á ferðinni hjá, boðandi ríkið; 26 þess vegna vitna eg fyrir yður, daginn þennan í dag, að eg er hreinn af blóði allra; 27 því að eigi hlífðist eg við að boða yður alt Guðs ráð. 28 Hafið gát á sjálfum yður og allri hjörðinni, þar sem heilagur andi setti yður biskupa, til þess að gæta safnaðar Guðs, sem hann hefir aflað sér með sínu eigin blóði. 29 Eg veit að inn muni koma til yðar eftir burtför mína ólmir vargar, sem eigi þyrma hjörðinni. 30 Og af yður sjálfum munu rísa upp menn, er fara með rangsnúna lærdóma, til þess að teygja lærisveinana á eftir sér. 31 Vakið því og verið þess minnugir, að í þrjú ár lét eg eigi af, nótt og dag, með tárum að áminna einn og sérhvern. 32 Og nú fel eg yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru. 33 Eg hefi eigi girnst silfur eða gull eða klæði nokkurs manns. 34 Sjálfir vitið þér, að hendur þessar unnu fyrir öllu því, er eg þurfti að hafa og þeir, er með mér voru. 35 Í öllu sýndi eg yður, að með því að vinna svo, verðum vér að taka að oss hina óstyrku og minnast orða drottins Jesú, að hann sjálfur sagði: Sælla er að gefa en þiggja.

36 Og er hann hafði þetta mælt, féll hann á kné og baðst fyrir ásamt þeim öllum. 37 Og allir tóku sáran að gráta og féllu um háls Páli og kystu hann, 38 og voru allra hryggastir yfir orði því, sem hann hafði mælt, að þeir mundu aldrei framar líta auglit hans. Og þeir fylgdu honum til skips.


21

Og er vér höfðum slitið oss frá þeim og höfðum siglt af stað, fórum vér beina leið lil Kos, og næsta dag til Ródus og þaðan til Patara. 2 Þar hittum vér skip, er var að fara yfir um til Fönikíu, stigum vér á það og sigldum af stað. 3 En er vér fengum landsýn af Kípur, létum vér hana á bakborða og sigldum til Sýrlands, og tókum höfn í Týrus, því að þar átti skipið að leggja upp farminn. 4 Og eftir að vér höfðum fundið lærisveinana, dvöldum vér þar sjö daga. Menn þessir sögðu Páli fyrir andann, að eigi skyldi hann stíga fæti í Jerúsalem. 5 En er svo kom, að vér höfðum fullnað dagana, fórum vér burt og héldum leiðar vorrar, og allir fylgdu þeir oss á veg, með konum og börnum, og alla leið út fyrir borgina, og vér féllum á kné í fjörunni og báðumst fyrir, 6 og kvöddum hverjir aðra og stigum á skip, en hinir sneru aftur heim til sín.

7 En þegar vér höfðum lokið sjóferðinni frá Týrus, komum vér til Tólemais, og vér heilsuðum bræðrunum og dvöldum hjá þeim einn dag. 8 Og daginn eftir fórum vér á burt og komum til Sesareu, og vér gengum inn í hús Filippusar trúboða, sem var einn af þeim sjö, og dvöldum hjá honum. 9 Hann átti fjórar dætur, meyjar, er spáðu. 10 Og er vér stóðum þar við ekki allfáa daga, kom spámaður nokkur ofan frá Júdeu, Agabus að nafni. 11 Og hann kom til vor, tók upp belti Páls, batt fætur sína og hendur og mælti: Þetta segir heilagur andi: Svo munu Gyðingar í Jerúsalem binda manninn, sem á þetta belti, og framselja hann í hendur heiðingjum. 12 En er vér heyrðum þetta, báðum bæði vér hann og þeir sem þar áttu heima, að fara ekki upp til Jerúsalem. 13 Þá tók Páll til máls: Hví gjörið þér þetta, að gráta og hrella hjarta mitt? Því að eg er eigi aðeins reiðubúinn til að láta binda mig í Jerúsalem, heldur og að deyja þar fyrir nafn drottins Jesú. 14 Og er hann lét eigi telja sér hughvarf, þögnuðum vér og sögðum: Verði drottins vilji.

15 Og að þessum dögum liðnum, bjuggumst vér til ferðar og fórum upp til Jerúsalem. 16 Og oss urðu samferða nokkurir af lærisveinunum frá Sesareu og fóru þeir með oss til Mnasons nokkurs frá Kípur, sem var gamall lærisveinn, og skyldum vér gista hjá honum.

17 Og er vér komum til Jerúsalem, tóku bræðurnir oss feginsamlega. 18 Og næsta dag gekk Páll með oss til Jakobs, og allir öldungarnir komu þangað. 19 Og er hann hafði heilsað þeim, inti hann þeim skilmerkilega hvað eina, sem Guð hafði gjört fyrir þjónustu hans meðal heiðingjanna. 20 Og þeir vegsömuðu Guð, er þeir heyrðu það, og sögðu við hann: Þú sér, bróðir, hve margir tugir þúsunda það eru meðal Gyðinga, sem trú hafa tekið, og allir eru þeir vandir að því að lögmálið sé haldið. 21 En þeim hefir verið sagt það um þig, að þú kennir öllum Gyðingum, er búa meðal heiðingja, fráhvarf frá Móse, þar sem þú segir, að þeir skuli hvorki umskera börn sín né fylgja siðunum. 22 Hvað á þá að gjöra? Víst munu þeir spyrja það, að þú ert kominn. 23 Gjör því nú þetta sem vér segjum þér. Hjá oss eru fjórir menn, sem bundnir eru heiti; 24 tak þú menn þessa að þér og lát hreinsast með þeim, og ber kostnaðinn fyrir þá, að þeir geti rakað höfuð sín, og mega þá allir sjá, að ekkert er til í því, sem þeim hefir verið sagt um þig, heldur gætir þú lögmálsins sjálfur í breytni þinni. 25 En að því er snertir heiðingjana, sem við trú hafa tekið, þá höfum vér gefið út bréf og úrskurðað, að þeir skuli varast bæði skurðgoðafórnir og blóð og það sem kafnað er og frillulífi. 26 Síðan tók Páll að sér mennina, og daginn eftir, er hann hafði hreinsast látið með þeim, gekk hann inn í helgidóminn og lét vita, að hann mundi enda út hreinsunardagana, þangað til fórnin væri framborin fyrir einn og sérhvern þeirra.

27 En er að því var komið að dagarnir sjö væru á enda, sáu Gyðingar frá Asíu hann í helgidóminum og komu öllu fólkinu í uppnám, og lögðu hendur á hann 28 og hrópuðu: Þér Ísraelsmenn, veitið nú lið. Þetta er maðurinn, sem alstaðar er öllum að kenna í gegn lýðnum og lögmálinu og stað þessum. Og nú hefir hann meira að segja farið með Grikki inn í helgidóminn og saurgað þennan heilaga stað. 29 Því að þeir höfðu áður séð Trófímus frá Efesus með honum í borginni, og hugðu að Páll hefði farið með hann inn í helgidóminn. 30 Og öll borgin varð uppvæg og fólkið þusti saman, og þeir tóku Pál og drógu hann út fyrir helgidóminn, og jafnskjótt var dyrunum læst. 31 En er þeir vildu lífláta hann, barst foringjanum yfir hersveitinni fregn um það, að öll Jerúsalem væri í uppnámi. 32 Hann tók þegar í stað með sér hermenn og hundraðshöfðingja og hljóp niður til þeirra; en er þeir sáu hersveitarforingjann og hermennina, hættu þeir að berja Pál. 33 Hersveitarforinginn kom þá að og tók hann og skipaði að binda hann með tveimur viðjum, og spurði hver hann væri og hvað hann hefði gjört. 34 En sitt kallaði hver úr mannfjöldanum, og er hann gat ekkert áreiðanlegt fengið að vita sökum óróans, bauð hann að fara skyldi með hann upp í kastalann. 35 Og er komið var á tröppurnar, urðu hermennirnir að bera hann vegna ofsans í fólkinu, 36 því að múgur manns fylgdi eftir, hrópandi: Burt með hann!

37 Og þegar fara átti með Pál inn í kastalann, segir hann við hersveitarforingjann: Leyfist mér að tala nokkur orð við þig? En hann sagði: Kant þú grísku? 38 Ekki ert þú þá egipzki maðurinn, sem fyrir nokkuru vakti styrjöld og fór með fjögur þúsund morðingja út á eyðimörkina. 39 En Páll sagði: Eg er Gyðingur, frá Tarsus í Kilikíu, borgari í alkunnum bæ; og eg bið þig, leyf mér að tala til fólksins. 40 Og er hann hafði veitt leyfið, nam Páll staðar á tröppunum og bandaði hendinni til fólksins, og er gott hljóð fékst, talaði hann til þeirra á hebreska tungu og sagði:


22

Þér bræður og feður, hlustið nú á málsvörn mína fyrir yður. 2 En er þeir heyrðu hann ávarpa sig á hebreska tungu, urðu þeir enn hljóðari, og hann segir:

3 Eg er Gyðingur, fæddur í Tarsus í Kilikíu, en alinn upp í borg þessari við fætur Gamalíels, fræddur í strangleika feðra-lögmálsins, og var Guðs vandlætari, eins og þér allir eruð í dag, 4 sá hinn sami, sem ofsótti þennan veg alt að dauða, færði í hlekki og seldi í fangelsi bæði karla og konur, 5 eins og æðsti presturinn mun bera mér vitni um og alt öldungaráðið; hjá þeim fékk eg enda bréf til bræðranna, og fór til Damaskus í þeim tilgangi, að flytja einnig þá, er þar væru, bundna til Jerúsalem, til þess að þeim yrði hegnt. 6 En svo bar við, er eg var á ferðinni og nálgaðist Damaskus, um hádegisbil, að um mig leiftraði skyndilega ljós mikið af himni. 7 Og eg féll til jarðar og heyrði raust, er sagði við mig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? 8 En eg svaraði: Hver ert þú, herra? Og hann sagði við mig: Eg er Jesús frá Nazaret, sem þú ofsækir. 9 Mennirnir, sem með mér voru, sáu að vísu ljósið, en heyrðu ekki raust þess, er við mig talaði. 10 En eg sagði: Hvað á eg að gjöra, herra? En drottinn sagði við mig: Rís upp og far til Damaskus, og þar mun þér verða sagt um alt það, sem þér er ætlað að gjöra. 11 En þar sem eg gat ekki séð vegna ljómans af ljósi þessu, kom eg til Damaskus, leiddur við hönd af samferðamönnum mínum. 12 En Ananías nokkur, maður guðrækinn eftir lögmálinu, sem hafði góðan orðstír hjá öllum Gyðingum, er þar bjuggu, 13 kom til mín, gekk að mér og sagði við mig: Sál bróðir, lít þú upp. Og eg leit upp á hann á sömu stundu. 14 En hann sagði: Guð feðra vorra hefir fyrirhugað þig til að þekkja vilja sinn og sjá hinn réttláta og heyra raust af munni hans; 15 því að þú skalt honum vottur vera hjá öllum mönnum um það, sem þú hefir séð og heyrt. 16 Og hvað dvelur þig nú? Rís upp og lát skírast og afþvo syndir þínar, ákallandi nafn hans. 17 En svo bar við, er eg var kominn aftur til Jerúsalem og baðst fyrir í helgidóminum, að eg varð frá mér numinn 18 og sá hann, segjandi við mig: Flýt þér og far sem skjótast burt úr Jerúsalem, því að þinn vitnisburð um mig munu þeir ekki meðtaka. 19 Og eg sagði: Drottinn, þeir vita sjálfir, að eg er maðurinn, sem hnepti í fangelsi og húðstrýkti í samkunduhúsunum þá sem trúðu á þig, 20 og þegar úthelt var blóði Stefáns, vottar þíns, stóð eg bæði sjálfur þar yfir og lét mér vel líka og varðveitti klæði þeirra, sem tóku hann af lífi. 21 Og hann sagði við mig: Far þú, því að eg mun senda þig til heiðingja, langt í burtu.

22 Alt að þessu orði hlýddu þeir á hann, en nú hófu þeir upp raust sína, segjandi: Burt með slíkan mann af jörðinni, því að eigi hæfir að hann lifi! 23 Og er þeir æptu upp og köstuðu af sér klæðum sínum og jusu mold í loft upp, 24 skipaði hersveitarforinginn að fara með hann inn í kastalann, og sagði að kúga skyldi hann til sagna með svipuhöggum, til þess að hann fengi að vita, fyrir hverja sök þeir hrópuðu svo gegn honum. 25 Og er þeir höfðu strengt hann undir svipuhöggin með taugum, sagði Páll við hundraðshöfðingjann, er hjá stóð: Leyfist yður að húðstýkja rómverskan mann, og það ódæmdan? 26 Og er hundraðshöfðinginn heyrði það, fór hann til hersveitarforingjans, inti honum frá og sagði: Hvað ert þú að gjöra? Því að maður þessi er rómverskur. 27 Hersveitarforinginn kom þá og sagði við hann: Seg mér, ert þú rómverskur? En hann sagði: Já. 28 Og hersveitarforinginn svaraði: Fyrir ærið fé keypti eg þennan borgarrétt. En Páll sagði: Eg er meira að segja með honum fæddur. 29 Og jafnskjótt viku þeir frá honum, er áttu að yfirheyra hann, og hersveitarforinginn varð hræddur, er hann varð þess vís, að hann var rómverskur, og af því að hann hafði látið binda hann.

30 Daginn eftir, er hann vildi vita með vissu, um hvað hann væri kærður af Gyðingum, leysti hann hann og bauð, að æðstu prestarnir og alt ráðið skyldi koma saman, og hann kom með Pál og leiddi hann fram fyrir þá.


23

En Páll hvesti augun á ráðið og mælti: Þér bræður, eg hefi hegðað mér fyrir Guði með góðri samvizku í sérhverri grein, alt til þessa dags. 2 En æðsti presturinn Ananías skipaði þeim, er hjá honum stóðu, að ljósta hann á munninn. 3 En þá sagði Páll við hann: Guð mun ljósta þig, þú kalkaði veggur! Og situr þú til að dæma mig samkvæmt lögmálinu, og skipar að eg sé lostinn á móti lögmálinu? 4 En þeir, sem hjá stóðu, sögðu: Atyrðir þú æðsta prest Guðs? 5 Og Páll sagði: Ekki vissi eg, bræður, að hann væri æðsti prestur; því að ritað er: Þú skalt ekki illmæla höfðingja lýðs þíns. 6 En með því að Páll vissi, að einn hluti þeirra voru Saddúkear, en annar hlutinn Farísear, þá hrópaði hann upp í ráðinu: Þér bræður, eg er Farísei, sonur Farísea. Eg er lögsóttur fyrir vonina og upprisu dauðra. 7 En er hann sagði þetta, varð deila milli Faríseanna og Saddúkeanna og þingheimurinn varð ósamþykkur; 8 því að Saddúkear segja, að ekki sé til upprisa og eigi heldur engill, né andi, en Farísear viðurkenna hvorttveggja. 9 Nú varð hávaði mikill, og nokkurir fræðimenn af flokki Faríseanna risu upp og fluttu mál sitt með kappi og sögðu: Ekkert ilt finnum vér hjá manni þessum. Ef nú andi skyldi hafa talað við hann eða engill! 10 En er nú varð mikil deila, óttaðist hersveitarforinginn, að Páll yrði slitinn í sundur af þeim, og skipaði herliðinu að fara niður, til að hrífa hann frá þeim og fara með hann í kastalann.

11 En nóttina eftir kom drottinn til hans og sagði: Vertu hughraustur, því að eins og þú hefir vitnað um mig í Jerúsalem, svo ber þér og að vitna í Róm.

12 En er dagur kom, gjörðu Gyðingar samtök og strengdu þess heit með formælingu, að þeir skyldu hvorki eta né drekka, fyr en þeir hefðu Pál af dögum ráðið, 13 og voru þeir yfir fjörutíu, sem þetta samsæri gjörðu. 14 Og menn þessir fóru til æðstu prestanna og öldunganna og sögðu: Með formælingu höfum vér fastlega strengt þess heit, að bergja einskis fyr en vér höfum Pál af dögum ráðið. 15 Nú skuluð þér ásamt ráðinu gjöra hersveitarforingjanum aðvart um það, að hann láti fara með hann niður til yðar, svo sem þér vilduð kynna yður mál hans enn rækilegar, en vér erum reiðubúnir til að vega hann, áður enn hann kemst alla leið. 16 En systursonur Páls heyrði um fyrirsátina og kom og fór inn í kastalann og sagði Páli frá. 17 En Páll kallaði til sín einn af hundraðshöfðingjunum og mælti: Far þú með þennan unga mann til hersveitarforingjans; því að hann hefir nokkuð að segja honum. 18 Hann tók hann þá og fór með hann til hersveitarforingjans og segir: Bandinginn Páll kallaði mig til sín og bað mig að fara með þennan unga mann til þín, sem hefir eitthvað að segja þér. 19 Og hersveitarforinginn tók í hönd honum og fór með hann afsíðis og spurði: Hvað er það, sem þú hefir að segja mér? 20 En hann sagði: Gyðingar hafa komið sér saman um að biðja þig, að þú á morgun látir fara með Pál niður í ráðið, og ætti það svo að heita, að þú ætlaðir ítarlegar að rannsaka mál hans. 21 En lát þú nú ekki að orðum þeirra, því að meira en fjörutíu menn úr þeirra flokki sitja fyrir honum, og hafa þeir hinir sömu strengt þess heit með formælingu, að eta hvorki né drekka, fyr en þeir hafi vegið hann, og eru þeir nú reiðubúnir og bíða eftir skeyti frá þér. 22 Hersveitarforinginn lét unga manninn þá fara burt og bauð honum: Engum mátt þú segja, að þú hafir gjört mér aðvart um þetta. 23 Og hann kallaði til sín tvo af hundraðshöfðingjunum og sagði: Búið tvö hundruð hermenn, sjötíu riddara og tvö hundruð skotmenn, að þeir fari til Sesareu, eftir þriðju stund nætur; 24 hafið og til reiðu fararskjóta handa Páli, til þess að þér komið honum heilum á hófi til Felix landstjóra. 25 Og hann ritaði bréf svo hljóðandi:

26 Kládíus Lýsías sendir kveðju hinum göfuga landstjóra Felix. 27 Þennan mann höfðu Gyðingar handtekið, og lá við, að þeir tækju hann af lífi; kom eg þá þar að með hermönnum og bjargaði honum, er eg komst að því, að hann var rómverskur. 28 Og er eg vildi vita, fyrir hverja sök þeir kærðu hann, fór eg með hann niður í ráð þeirra; 29 komst eg þá að raun um, að hann var kærður fyrir ágreining um lögmál þeirra, en engin sök var honum gefin, er dauða varðaði eða böndum. 30 En þar sem eg hefi fengið vísbendingu um, að setið væri á svikráðum við manninn, sendi eg hann tafarlaust til þín, og hefi eg jafnframt boðið kærendunum að flytja erindi sitt um hann fyrir þér.

31 Hermennirnir tóku þá Pál, eins og þeim var um boðið, og fóru með hann um nótt til Antípatris. 32 En daginn eftir sneru þeir aftur til kastalans, en létu riddarana fara með honum. 33 Þeir fóru inn í Sesareu og skiluðu bréfinu til landstjórans og færðu Pál fyrir hann. 34 En hann las bréfið og spurði, úr hverju skattlandi hann væri, og er hann fékk að vita, að hann var frá Kilikíu, sagði hann: 35 Eg mun prófa mál þitt, þegar kærendur þínir eru líka komnir. Og hann bauð að láta geyma hans í höll Heródesar.


24

En eftir fimm daga fór æðsti presturinn Ananías ofan þangað og voru með honum nokkurir öldungar og Tertúllus nokkur mælskumaður, og báru menn þessir fyrir landstjóranum sakir fram gegn Páli. 2 Og er hann var kallaður fyrir, hóf Tertúllus kæru sína og sagði:

3 Vér viðurkennum það mjög þakksamlega, göfugi Felix, að fyrir þitt tilstilli sitjum vér í góðum friði, og í öllum greinum og alstaðar hefir fólk þetta fengið réttarbætur fyrir þína forsjá. 4 En svo að eg tefji þig sem minst, bið eg að þú af mildi þinni viljir heyra oss stuttlega. 5 Svo er mál vaxið, að vér höfum gengið úr skugga um, að maður þessi er drepsótt og kveikir upphlaup hjá öllum Gyðingum um víða veröld, og er forsprakki villuflokks Nazareanna, 6 og gjörði hann meira að segja tilraun til að vanhelga musterið. Þennan mann tókum vér höndum. 8 Hjá honum getur þú, er þú prófar sjálfur, fengið að vita um alt þetta, sem vér kærum hann fyrir. 9 Og Gyðingar tóku undir sakargiftirnar og kváðu þetta satt vera.

10 Og Páll svaraði, er landstjórinn benti honum að taka til máls: Þar sem eg veit að þú hefir í mörg ár verið dómari þessa fólks, er mér ljúft að verja mál mitt, 11 með því að þú getur fengið að vita, að ekki eru meira en tólf dagar síðan eg kom upp til Jerúsalem að biðjast fyrir. 12 Og hvorki hittu þeir mig í helgidóminum í orðaþrætu við nokkurn mann, eða að eg væri að æsa fólk til óspekta, og eigi heldur í samkunduhúsunum, né út um bæinn, 13 og ekki geta þeir heldur sannað það fyrir þér, sem þeir nú kæra mig um. 14 En þetta játa eg þér, að eg þjóna Guði feðra vorra samkvæmt þeim vegi, sem þeir kalla villuflokk, og trúi eg öllu því sem í lögmálinu stendur, og því sem í spámönnunum er ritað, 15 og hefi þá von til Guðs, sem þeir og sjálfir hafa, að upp muni rísa bæði réttlátir og ranglátir. 16 Fyrir því tem eg mér og sjálfur að hafa jafnan góða samvizku gagnvart Guði og mönnum. 17 En eftir mörg ár kom eg til að færa fólki mínu ölmusugjafir og bera fram fórnir. 18 Er eg var að þessu og hafði látið hreinsast í helgidóminum, komu þeir að mér, og var þar enginn mannsöfnuður um mig og ekkert uppþot; en þar voru Gyðingar nokkurir frá Asíu, 19 og hefðu þeir átt að vera komnir fyrir þig, og bera fram kæru, ef þeir fyndu mér eitthvað til saka, 20 eða segi þessir menn sjálfir til, hvað saknæmt þeir hafi fundið, þegar eg stóð fyrir ráðinu. 21 Það skyldi þá vera þetta eina orð, er eg kvað upp með, þegar eg stóð meðal þeirra: Fyrir upprisu dauðra er eg í dag lögsóttur frammi fyrir yður.

22 Felix frestaði nú málinu fyrir þeim, af því að honum var allkunnugt um veginn, og mælti: Þegar Lýsías hersveitarforingi kemur ofan hingað, skal eg skera úr máli yðar. 23 Og hann bauð hundraðshöfðingjanum að láta hann vera í varðhaldi, og að vægilega væri með hann farið, og eigi skyldi hann meina neinum af vinum hans að veita honum þjónustu.

24 En nokkurum dögum seinna kom Felix með eiginkonu sinni Drúsillu, sem var Gyðinga ættar, og lét sækja Pál, og hlýddi á mál hans um trúna á Krist Jesúm. 25 En er hann talaði um réttlæti, bindindi og komandi dóm, skelfdist Felix og mælti: Far burt að sinni; en þegar eg fæ tóm, mun eg láta kalla þig. 26 Með fram gjörði hann sér og von um, að Páll mundi gefa sér fé; því var það líka, að hann lét alloft sækja hann og átti tal við hann. 27 En þegar tvö ár voru liðin, tók Porkíus Festus við landstjórn af Felix, og af því að Felix vildi afla sér hylli Gyðinga, lét hann Pál eftir í böndum.


25

Er Festus nú hafði tekið við skattlandinu, fór hann þrem dögum síðar frá Sesareu upp til Jerúsalem. 2 Og æðstu prestarnir og helztu menn Gyðinga báru fyrir honum sakir fram gegn Páli, 3 og þeir báðu hann að vera sér hliðhollan gegn honum, og lögðu að honum að láta koma með hann til Jerúsalem, og bjuggu honum fyrirsát, til þess að vega hann á leiðinni. 4 En Festus svaraði, að Páll væri í varðhaldi í Sesareu, og sjálfur ætlaði hann bráðlega að fara þangað. 5 Þeir sem völdin hafa hjá yður, segir hann, skulu því verða samferða ofan eftir og kæra hann, ef maðurinn er eitthvað brotlegur.

6 En er hann hafði dvalið hjá þeim í mesta lagi átta eða tíu daga, fór hann niður til Sesareu, og daginn eftir settist hann á dómstólinn og bauð að leiða Pál fram. 7 En er hann var þar kominn, stóðu Gyðingarnir, sem farið höfðu ofan frá Jerúsalem, í kring um hann og báru á hann margar og þungar sakir, sem þeir gátu ekki sannað. 8 En Páll bar fram sér til varnar: Eg hefi hvorki brotið neitt gegn lögmáli Gyðinga, né gegn helgidóminum, né gegn keisaranum. 9 En Festus, sem vildi koma sér vel við Gyðinga, svaraði Páli og sagði: Vilt þú fara upp til Jerúsalem, og að þú sért þar lögsóttur fyrir mér í þessu máli? 10 En Páll sagði: Nú stend eg fyrir dómstóli keisarans, og þar ber að lögsækja mig. Gyðingum hefi eg engan órétt gjört, sem þú og fullvel veizt. 11 Ef eg nú er brotlegur og hefi framið eitthvað, sem dauða er vert, þá mæli eg mig ekki undan dauða, en ef ekkert er hæft í því, sem þessir menn kæra mig fyrir, á enginn með að selja mig á vald þeirra. Eg skýt máli mínu til keisarans. 12 Þá svaraði Festus, eftir að hann hafði borið sig saman við ráðunauta sína: Til keisarans hefir þú skotið máli þínu, til keisarans skalt þú fara.

13 Að nokkurum dögum liðnum kom Agrippa konungur og Berníke til Sesareu, og sögðu Festus velkominn. 14 En er þau dvöldu þar allmarga daga, skýrði Festus konunginum frá máli Páls og sagði: Maður nokkur er af Felix eftir skilinn í böndum. 15 Um hann báru æðstu prestarnir og öldungar Gyðinga fram sakir, þegar eg kom til Jerúsalem, og kröfðust áfellisdóms yfir honum. 16 Eg svaraði þeim, að ekki væri það venja Rómverja að selja nokkurn mann öðrum a vald, fyr en hinn kærði hefði kærendurna fyrir sér og ætti kost á að bera fram vörn gegn sakargiftinni. 17 Er þeir nú voru komnir hér saman, lét eg engan drátt á verða og settist daginn eftir á dómstólinn og skipaði að leiða fram manninn. 18 Er nú kærendurnir komu fram, báru þeir eigi fram sakir um hann fyrir nein þau illræði, er eg hafði búist við, 19 heldur áttu þeir í einhverjum deilum við hann um átrúnað sjálfra þeirra og um Jesúm nokkurn, látinn mann, sem Páll sagði lifa. 20 Er eg nú var í vandræðum með rannsókn þessa máls, spurði eg, hvort hann vildi fara til Jerúsalem, og vera þar lögsóttur í þessu máli. 21 En er Páll skaut máli sínu og krafðist þess, að hann væri hafður í haldi, til þess er hátignin gæti kveðið upp úrskurð, skipaði eg að hann skyldi hafður í haldi, þangað til eg gæti sent hann til keisarans. 22 En Agrippa sagði við Festus: Mig fýsir líka að heyra manninn sjálfur. Á morgun, segir hann, skalt þú fá að hlusta á hann.

23 Daginn eftir kom þá Agrippa og Berníke, með mikilli viðhöfn, og gengu þau, ásamt hersveitarforingjunum og hinum æðstu mönnum borgarinnar, inn í málstofuna, og var Páll að boði Festusar leiddur fram. 24 Og Festus tekur svo til máls: Agrippa konungur og þér menn allir, sem hjá oss eruð staddir, þér sjáið mann þennan, og hefir öll alþýða Gyðinga lagt að mér um hann, bæði í Jerúsalem og hér, og sagt hástöfum, að ekki ætti hann lengur að lifa. 25 En eg komst að raun um, að hann hefir ekkert það framið, sem dauða er vert, og réð eg af, er hann sjálfur skaut máli sínu til hátignarinnar, að senda hann. 26 Nú hefi eg ekkert áreiðanlegt að skrifa herra vorum um hann; þess vegna hefi eg leitt hann fram fyrir yður og einkum fyrir þig, Agrippa konungur, svo að eg, að framfarinni rannsókn, hefði eitthvað að skrifa; 27 því að mér lízt óskynsamlegt að senda bandingja og tjá eigi um leið sakir þær, sem á hann eru bornar.


26

En Agrippa sagði við Pál: Nú er þér leyfilegt að tala þínu máli. Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína:

2 Sæll þykist eg þess, Agrippa konungur, að eg á fyrir þér í dag að halda uppi vörn fyrir mig gegn öllu því, sem Gyðingar saka mig um, 3 þar sem þú þekkir manna bezt alla siðu Gyðinga og ágreiningsmál; fyrir því bið eg þig, að þú viljir þolinmóðlega hlýða á mál mitt. 4 Hvernig líferni mitt hefir verið frá æskuárum, vita allir Gyðingar, þar sem eg hefi frá fyrstu alið aldur minn hjá þjóð minni og í Jerúsalem, 5 og hafa þeir þekt mig að því frá upphafi, vilji þeir um það vitni bera, að eg hefi lifað sem Farísei, samkvæmt strangasta flokki átrúnaðar vors. 6 Og nú stend eg undir lögsókn vegna vonarinnar um fyrirheitið, er Guð gaf feðrum vorum, 7 sem vorar tólf kynkvíslir með kappsamlegri guðsdýrkun nótt og dag vænta að hreppa. Fyrir þessa von er eg, konungur, kærður af Gyðingum. 8 Hvernig farið þér að telja það ótrúlegt, að Guð uppveki dauða? 9 Eg fyrir mitt leyti taldi mér líka skylt, að beita mér mjög á móti nafni Jesú frá Nazaret, 10 sem eg og gjörði í Jerúsalem, og bæði hnepti eg marga af hinum heilögu í fangelsi, er eg hafði fengið vald til þess af æðstu prestunum, og er þeir voru af lífi teknir, galt eg því jákvæði, 11 og í öllum samkundunum refsaði eg þeim þrásinnis og neyddi þá til að lastmæla, og eg æddi svo frekt gegn þeim, að eg fór enda til borga erlendis að ofsækja þá. 12 Er eg í þessum erindum var á leið til Damaskus, með valdi og umboði frá æðstu prestunum, 13 sá eg, konungur, á veginum, um miðjan dag, ljós af himni sólu bjartara leiftra um mig og þá, sem mér voru samferða. 14 Og er vér allir féllum til jarðar, heyrði eg rödd, er sagði við mig á hebreska tungu: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Erfitt verður þér að spyrna móti broddunum. 15 En eg sagði: Hver ert þú, herra? En drottinn sagði: Eg er Jesús, sem þú ofsækir. 16 En rís þú upp og statt á fætur þína; því að til þess birtist eg þér, til þess að kjósa þig að þjóni og að votti bæði um það, hvernig þú sást mig, og um það, hvernig eg mun birtast þér, 17 er eg tek þig út úr lýðnum og út úr heiðingjunum, sem eg sendi þig til, 18 til að opna augu þeirra, svo að þeir snúi sér frá myrkri til ljóss og frá Satans valdi til Guðs, svo að þeir öðlist synda-fyrirgefningu og arf með þeim, sem helgaðir eru fyrir trúna á mig. 19 Fyrir því gjörðist eg, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun, 20 heldur boðaði eg fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem og um alla Júdeubygð og heiðingjunum, að gjöra iðrun og hverfa til Guðs og vinna verk samboðin iðruninni. 21 Fyrir þá sök gripu Gyðingar mig í helgidóminum og leituðust við að taka mig af lífi; 22 en með því að eg hefi hlotið fulltingi frá Guði, stend eg alt til þessa dags, vitnandi bæði fyrir smáum og stórum, og mæli ekki annað en það, sem bæði spámennirnir hafa sagt að fram mundi koma og Móse: 23 að Kristur ætti að líða, og að hann mundi fyrstur við upprisuna frá dauðum boða ljós bæði lýðnum og heiðingjunum.

24 Og er hann var þetta að mæla sér til varnar, segir Festus með hárri raustu: Óður ert þú orðinn, Páll, hið mikla bókvit þitt gjörir þig óðan. 25 En Páll segir: Ekki er eg óður, göfugi Festus, heldur mæli eg sannleiks og stillingar orð; 26 því að konungurinn ber skyn á þetta, og við hann tala eg líka einarðlega, því að eigi ætla eg að neitt af þessu sé honum dulið, því að eigi hefir þetta gjörst í afkima. 27 Trúir þú, Agrippa konungur, spámönnunum? Eg veit, að þú trúir. 28 En Agrippa sagði við Pál: Með litlu hyggur þú, að þú munir gjöra mig kristinn! 29 En Páll sagði: Þess bið eg Guð, hvort sem það er með litlu eða miklu, að ekki einungis þú, heldur og allir, sem til mín heyra í dag, verði slíkir sem eg er, að undan teknum þessum fjötrum.

30 Og konungurinn stóð upp og landstjórinn og Berníke og þeir, sem sátu þar ásamt þeim. 31 Og er þeir voru burt gengnir, töluðu þeir hverjir við aðra og sögðu: Þessi maður fremur ekkert, sem dauða er vert eða banda. 32 En Agrippa sagði við Festus: Mann þennan hefði mátt lausan láta, ef hann hefði ekki skotið máli sínu til keisarans.


27

En þegar úrskurðað var, að vér skyldum sigla til Ítalíu, seldu þeir Pál og nokkura aðra bandingja í hendur hundraðshöfðingja, er Júlíus hét, úr Hátignar-hersveitinni. 2 Og vér stigum á skip frá Adramýttíum, sem átti að sigla til bæjanna með Asíuströndum, og létum í haf; og Aristarkus, makedónskur maður frá Þessaloníku, var oss samferða. 3 Og á öðrum degi komumst vér til Sídon. Og Júlíus var mannúðlegur við Pál, og leyfði honum að fara á fund vina sinna og njóta hjúkrunar. 4 Og þaðan létum vér í haf og sigldum undir Kípur, því að vindar voru andstæðir. 5 Og er vér höfðum siglt yfir hafið fyrir Kilikíu og Pamfilíu, komum vér til Mýra í Lýkíu. 6 Og þar hitti hundraðshöfðinginn fyrir skip frá Alexandríu, er sigla átti til Ítalíu, og lét oss stíga á það. 7 En siglingin gekk tregt í allmarga daga, og er vér með herkjum vorum komnir móts við Knídus, bægði vindur oss og vér sigldum undir Krít við Salmóne, 8 og beittum með naumindum fram með henni, og komumst á stað einn, sem kallast Góð-hafnir, í grend við borgina Lasea.

9 Og er enn leið drjúgur tími og sjóferðir tóku þegar að verða hættulegar, því að fastan var nú líka um liðin, réð Páll þeim og sagði við þá: 10 Það sé eg, góðir menn, að sjóferðin muni verða með hrakningum og miklu tjóni, ekki einungis á farminum og skipinu, heldur og fyrir líf vort. 11 En hundraðshöfðinginn trúði betur skipstjóranum og skipseigandanum, en því er Páll sagði. 12 Og þar eð höfnin var óhentug til vetrarlegu, varð það flestra ráð að leggja til hafs þaðan, ef þeir kynnu að ná til Fönix og hafa þar vetrarlegu; er sú höfn á Krít og veit til útsuðurs og útnorðurs. 13 Og er hægur sunnanvindur kom á, hugðust þeir að hafa ráð þetta í hendi sér og heimtu upp akkeri, og sigldu fram með Krít nálægt landi. 14 En áður en langt leið, skall á af landi ofan ofviðri, sem kallað er Evrakvíló. 15 Og er skipið hrakti og ekki varð beitt upp í vindinn, slógum vér undan og létum reka. 16 Og er vér höfðum hleypt undir litla ey, sem hét Káda, var það með naumindum, að vér gátum bjargað bátnum; 17 drógu þeir hann upp og gripu til bjargráða og lögðu strengi um skipið, og þar eð þeir óttuðust að þá mundi bera upp á Sýrtuna, feldu þeir akreiðann og létu svo reka. 18 En er ofviðrið hrjáði oss, ruddu þeir skipið daginn eftir.19 Og á þriðja degi köstuðu þeir út með eigin höndum áhöldum skipsins. 20 Og er hvorki sást til sólar né stjarna marga daga og illviðrið, sem á lá, var ekki lítið, þá var loks öll von úti um það, að vér kæmumst af. 21 Og er menn höfðu lengi verið matarlausir, stóð Páll upp meðal þeirra og mælti: Góðir menn, þér hefðuð átt að hlýða mér og leggja ekki út frá Krít, og komast hjá hrakningum þessum og tjóni. 22 En nú ræð eg yður að þér séuð með öruggum huga, því að enginn yðar mun lífi týna, en skipið mun farast; 23 því að á þessari nóttu stóð hjá mér engill þess Guðs, sem eg tilheyri, sem eg og þjóna, og mælti: 24 Óttast þú eigi, Páll; fyrir keisarann átt þú að koma; og sjá, Guð hefir náðarsamlega gefið þér alla þá, sem með þér eru á sjóferðinni. 25 Verið því, menn, með öruggum huga, því að eg treysti Guði, að svo muni fara, sem við mig hefir verið mælt. 26 En oss hlýtur að bera upp á einhverja ey.

27 En þegar fjórtánda nóttin var komin, og oss var að hrekja í Adríahafinu, grunaði skipverjana um miðnættisskeið, að þeir væru að nálgast land. 28 Og vörpuðu þeir botnsökku og fundu tuttugu faðma dýpi; síðan færðust þeir lítið eitt og vörpuðu aftur botnsökku og fundu fimtán faðma dýpi. 29 Og af því að þeir óttuðust, að oss kynni að bera upp á sker, köstuðu þeir fjórum akkerum úr skutnum og óskuðu að dagur rynni. 30 En er sjómennirnir leituðust við að flýja úr skipinu og létu bátinn niður síga á sjóinn, undir því yfirskini, að þeir vildu fá akkerum út komið úr framstafninum, 31 sagði Páll við hundraðshöfðingjann og hermennina: Ef menn þessir eru ekki kyrrir í skipinu, getið þér ekki komist lífs af. 32 Hermennirnir hjuggu þá á festar bátsins og létu hann detta niður. 33 En þangað til birta færi, hvatti Páll alla að neyta matar og sagði: Það er nú komið á fjórtánda daginn, sem þér hafið beðið fastandi og einskis neytt; 34 því hvet eg yður að taka fæðu, því að það verður yður til bjargar; því að ekki mun farast eitt hár af höfði neins yðar. 35 Að svo mæltu tók hann brauð, gjörði Guði þakkir í allra augsýn, braut og tók að eta. 36 Og nú hrestust allir og þeir fóru líka að matast. 37 Og alls vorum vér á skipinu tvö hundruð sjötíu og sex sálir. 38 Og er þeir höfðu etið sig metta, léttu þeir á skipinu með því að kasta korninu í sjóinn. 39 Og er dagur rann, þektu þeir ekki landið; en þeir sáu vík nokkura með fjöru, og réðu þeir af að halda þangað skipinu, ef þeir mættu því við koma. 40 Losuðu þeir nú um akkerin og létu þau eftir í sjónum, leystu um leið stýrisböndin og drógu upp ráseglið og létu vindinn standa í það og héldu til fjörunnar. 41 En þeir lentu á rifi í sjónum, og skipið rakst á grunn og stóð að framan og hrærðist hvergi, en skuturinn tók að liðast í sundur af hafrótinu. 42 En hermennirnir ætluðu að drepa bandingjana, til þess að enginn þeirra skyldi komast undan á sundi og forða sér. 43 En hundraðshöfðinginn, sem vildi forða Páli, aftraði þessari fyrirætlun þeirra, og bauð að þeir, sem syndir væru, skyldu kasta sér út og leita fyrstir til lands, 44 og hinir sumpart á plönkum, sumpart á einhverju úr skipinu. Og þannig tókst það, að allir komust heilir til lands.


28

Og er vér nú höfðum komist af, fengum vér að vita, að eyjan hét Melíta. 2 Og útlendingarnir auðsýndu oss einstaka mannelsku; því að þeir kyntu bál og tóku á móti oss öllum vegna hrakveðursins, sem á var, og kuldans. 3 En Páll vatt saman hrísvöndul og lagði á eldinn; skreið þá út naðra undan hitanum og festi sig á hendi hans. 4 Og er útlendingarnir sáu kvikindið hanga við hönd hans, sögðu þeir sín á milli: Áreiðanlega er maður þessi manndrápari, fyrst refsinornin lofaði honum ekki að lifa, eftir að hann komst af úr sjávarháskanum. 5 En hann hristi kvikindið af sér í eldinn og varð ekkert meint við. 6 En þeir bjuggust við, að hann mundi bólgna upp eða detta sviplega dauður niður. En er þeir höfðu beðið þess lengi og sáu ekkert frábrugðið verða á honum, skiftu þeir um og sögðu hann guð vera.

7 En í grendinni við stað þennan átti jarðeignir helzti maðurinn á eynni, Públíus að nafni. Hann tók á móti oss og veitti oss vinsamlega gistingu í þrjá daga. 8 En það vildi svo til, að faðir Públíusar lá sjúkur með hitaköstum og blóðsótt, og gekk Páll inn til hans og baðst fyrir og lagði hendur yfir hann og læknaði hann. 9 Og eftir að þetta hafði við borið, komu hinir aðrir, þeir er sjúkir voru á eynni, og urðu læknaðir. 10 Og höfðu þeir oss líka í miklum hávegum, og er vér lögðum til hafs, veittu þeir oss það, sem vér þurftum að hafa.

11 Og eftir þrjá mánuði lögðum vér til hafs á skipi frá Alexandríu, sem legið hafði við eyna um veturinn og var með merki Tvíburanna. 12 Og vér tókum höfn í Sýrakúsu og dvöldum þar þrjá daga. 13 Þaðan sigldum vér í kring og komum til Regíum, og að degi liðnum fengum vér sunnanvind og komum á öðrum degi til Púteólí. 14 Þar hittum vér bræðurna, og báðu þeir oss að dvelja hjá sér í sjö daga, og síðan fórum vér til Róm. 15 Og þaðan komu bræðurnir, er þeir höfðu frétt um oss, til móts við oss alla leið út til Appíusartorgs og Þríbúða, og er Páll sá þá, gjörði hann Guði þakkir og hrestist í huga.

16 Og er vér komum inn í Róm, var Páli leyft að búa út af fyrir sig, ásamt hermanninum, sem gætti hans.

17 En svo bar við eftir þrjá daga, að hann stefndi til sín helztu mönnum Gyðinga, og er þeir voru saman komnir, sagði hann við þá: Þér bræður, þó að eg hafi ekkert aðhafst gegn lýðnum eða feðra-siðunum, var eg frá Jerúsalem seldur bundinn í hendur Rómverja. 18 Og er þeir höfðu prófað mig, vildu þeir mig lausan láta, af því að engin dauðasök fanst hjá mér. 19 En er Gyðingar mæltu á móti, neyddist eg til að skjóta máli mínu til keisarans; þó eigi svo að skilja, að eg hefði nokkuð að kæra þjóð mína fyrir. 20 Af þessari orsök hefi eg nú kallað yður hingað, svo að eg mætti sjá og tala við yður; því að vegna vonar Ísraels ber eg þessa hlekki. 21 Og þeir sögðu við hann: Vér höfum hvorki fengið bréf um þig frá Júdeu, og eigi hefir heldur neinn af bræðrunum komið hingað og borið eða talað nokkuð ilt um þig; 22 en rétt þykir oss að heyra af þér, hvað þér býr í huga, því að um flokk þennan er oss kunnugt, að alstaðar er honum mótmælt.

23 Og þeir tóku til dag við hann, og komu mjög margir til hans í herbergi hans, og frá því um morguninn og til kvelds setti hann þeim fyrir sjónir og vitnaði fyrir þeim um guðsríki og reyndi að sannfæra þá um Jesúm, bæði af lögmáli Móse og spámönnunum. 24 Og sumir sannfærðust við það, sem talað var, en sumir trúðu ekki. 25 Og ósamþykkir sín á milli fóru þeir burt, eftir að Páll hafði svo að orði kveðið: Nú kemur það fram, sem heilagur andi mælti fyrir munn Jesaja spámanns við feður yðar, er hann sagði: 26 Far til lýðs þessa og seg: Með eyrunum munuð þér heyra, og alls eigi skilja, og sjáandi munuð þér sjá, og alls eigi skynja. 27 Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið og á eyrunum eru þeir orðnir daufir, og augum sínum hafa þeir lokað, til þess að þeir sæju eigi með augunum og heyrðu með eyrunum og skynjuðu með hjartanu og sneru sér, og eg læknaði þá. 28 Vita skuluð þér því, að þetta hjálpræði Guðs er sent heiðingjunum, og þeir munu og þekkjast það.

30 Og hann var tvö árin full í eigin leiguherbergi, og tók á móti öllum þeim, sem komu inn til hans, 31 og prédikaði um guðsríki og fræddi um drottin Jesúm Krist með allri djörfung, tálmunarlaust.