Jómsvíkinga saga

Jómsvíkinga sagaJómsvíkinga saga er íslensk fornsaga sem segir frá víkingum sem stofnuðu virkið Jómsborg, og komu þar á bræðralagi hermanna sem voru kallaðir Jómsvíkingar.#
Epub / Kindle
Jómsvíkingasaga var samin á Íslandi um 1200 og er til í nokkrum handritum, sem eru talsvert ólík hvert öðru, og hefur samband þeirra valdið fræðimönnum heilabrotum.

[…]

Þó að Jómsvíkingasaga sé ekki talin traust söguleg heimild, hefur hún sögulegan kjarna. Skipta má sögunni í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er sagt frá nokkrum Danakonungum fram til Haraldar Gormssonar. Þessi hluti er ítarlegastur í AM 291, hann vantar í AM 510, og er talsvert frábrugðinn í öðrum handritum. Í miðhlutanum er sagt frá nokkrum höfðingjum frá Fjóni í Danmörku. Koma þar mest við sögu Vagn Ákason og Pálnatóki, en sá síðarnefndi stofnaði víkingaborgina Jómsborg á suðurströnd Eystrasalts. Þriðji hlutinn segir frá því að Sveinn tjúguskegg Danakonungur býður Jómsvíkingum í veislu og vélar þá til að fara í herför til Noregs, til að setja Hákon jarl af. Þar bíða þeir ósigur í orrustunni í Hjörungavogi, og eru flestir drepnir (um 986). Helsti foringi þeirra þar var Sigvaldi jarl.#