Kúgun kvenna er bók eftir breska heimspekinginn John Stuart Mill þar sem hann rökstuddi aukin réttindi kvenna út frá nytjastefnu. Bókin, sem er hugsanlega einnig skrifuð af Harriet Taylor Mill, kom út á frummálinu árið 1869. Strax ári seinna þýddi Georg Brandes bókina og kom hún út þá í Danmörku undir titlinum Kvindernes Underkuelse. Bókin var þýdd á íslensku af Sigurði Jónassyni og gefin út af Hinu íslenska kvenfélagi árið 1900 og hafði mikil áhrif í kvenfrelsisbaráttu.
Greinasafn fyrir flokkinn: Heimspeki
Fyrirlestur um hagi og réttindi kvenna, sem Bríet Bjarnhéðinsdóttir hélt í Reykjavík 30. des. 1887
Fyrirlestur um hagi og réttindi kvenna, sem Bríet Bjarnhéðinsdóttir hélt í Reykjavík 30. des. 1887
Fyrsti fyrirlestur kvennmanns á Íslandi.