Hér er komin þriðja sagan af fimmtán af Sögum herlæknisins í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Þrjár til viðbótar eru í yfirlestri í dreifða prófarkalestri Rafbókavefsins. Ef þið viljið fleiri sögur þá getið þið hjálpað til við yfirlesturinn.
Sögur herlæknisins hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi í rúma öld. „Þær eru hvorki meira né minna en tveggja alda saga Svía og Finna, eða landanna frá upphafi Gústafs Adólfs til Gústafs þriðja, framsett í skáldlegri búnings meðferð og með mikilli list og kunnáttu. Þær mynda samanofinn sagnabálk með einni og sömu umgjörð og eins og með einum og sama rauða þræði í miðri uppistöðu vefsins. Umgjörðina myndar hinn hugsaði gamli finnski fræðiþulur, herlæknirinn Bekk. Hann býr eins og húsmaður hjá góðu fólki í Ábæ, og segir því sögur (á finnskan hátt) í ljósaskiptunum, þegar öll veröldin er komin í kyrrð og „amma gamla“ og börnin ásamt fáeinum húsvinum er sezt að uppi á kvistlofti karls.“
Hér er komin önnur sagan af fimmtán af Sögum herlæknisins í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Þriðja sagan mun birtast á morgun og þrjár til viðbótar eru í yfirlestri í
Hér er komin fyrsta sagan af fimmtán af Sögum herlæknisins í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Tvær aðrar munu birtast á næstu dögum og þrjár til viðbótar eru í yfirlestri í
Ævintýri og sögur H.C. Andersen eru hluti af menningarvitund Vesturlanda. Vísanir í sögurnar auðga mál okkar. Við værum til að mynda fátækari ef við gætum ekki sagt að keisarinn sé ekki neinum fötum með vissu um að áheyrendur skildu hvað við ættum við. Hér er safnað saman þýðingum Steingríms Thorsteinssonar á þessum sögum.
Samansafn af 57 Íslendingaþáttum sem fengnir voru frá Netútgáfunni.
„Jón Trausti gerði áhrifamikla skáldsögu, sem heitir Söngva-Borga. Þar er byggt á sannsögulegum atburðum úr lífi þessarar Söngva-Borgu sem var dóttir Jón Sigmundssonar […] og eitt átaklegasta dæmi íslandssögunnar um fórnardýr helvítiskenningarinnar gömlu.“ (Gunnar Benediktsson, Verkamaðurinn, 14. tbl., 45. árg)
„Veislan á Grund byggir á þeim atburðum sem urðu á bænum Grund í Eyjafirði 1362 þar sem Norðlendingar drápu óvinsælan hirðstjóra, Smið Andrésson, og lögmanninn Jón skráveifu, í Grundarbardaga.“
Hækkandi stjarna fjallar um þau feðgin Björn bónda Einarsson Jórsalafara og dóttur hans Vatnsfjarðar-Kristínu (Jón Jónsson – Skírnir, 1916).