Sögur inniheldur safn af smásögum Einars Benediktssonar.
Það er mikilvægt fyrir fólk að segja frá því hvaða málstað það styður, hvers vegna og hvort það gæti mögulega verið hlutdrægt. Einskonar yfirlýsingu um hagsmunatengsl. Þannig að ég ætla að ræða við ykkur um lestur. Ég ætla að segja ykkur að bókasöfn séu mikilvæg. Ég ætla að gefa í skyn að það að lesa skáldskap, ánægjulestur, sé eitt það mikilvægasta sem maður getur gert. Ég ætla að biðla til fólks á tilfinningaþrunginn hátt um að skilja – og taka þátt í að verja – bókasöfn og bókaverði.
Frá því að prófarkalestursverkefni Rafbókavefsins hófst hefur það verið markmið okkar að bjóða upp á yfirlestur á bókum sem eru enn í höfundarétti með leyfi að dreifa textanum frjálst á netinu.
Í kvöld hefst yfirlestur á fyrsta textanum af þessu tagi en það er bókin Heiðinn siður á Íslandi eftir Ólaf Briem (endurskoðuð útgáfa 1985). Það er dætur Jóhanns Briem listmálara, sem var bróðir Ólafs, þær Katrín, Ólöf og Brynhildur sem veita leyfi fyrir verkinu. Í kjölfarið mun einnig fara í yfirlestur bókin Norræn goðafræði eftir Ólaf.
Þó efni bókanna sé tengt þá eru þær um margt ólíkar. Sú fyrrnefnda er fræðilegri í umfjöllun sinni en sú síðarnefnda er inngangsrit sem hefur verið mikið notað í kennslu í framhaldsskólum landsins frá því hún kom fyrst út árið 1940 (síðasta útgáfa var 1990).
Bækurnar hafa ekki verið endurútgefnar frá því að Ólafur lést og því má búast við að marga hlakki til að komast í þær og við hvetjum það fólk að skrá sig á Prófarkalestursvefinn.
Þetta er fyrsta höfundavarðabókin sem við lesum yfir en vonandi ekki sú síðasta. Þeir sem eiga réttinn á bókum, hvort sem það sé sínum eigin eða ættingja sinna, og vilja koma þeim í yfirlestur er hvatir til að hafa samband. Við getum að sjálfsögðu engu ráðið um hraða yfirlesturs enda fer það eftir virkni og áhuga sjálfboðaliða okkar.
Umhverfis jörðina á 80 dögum segir sögu Englendingsins Phileas Fogg sem veðjar á að hann geti ferðast í kringum hnöttinn á 80 dögum. Á ferðalaginu notar Fogg nær öll þau farartæki sem honum stóð til boða árið 1872. Bókin hefur fyrir löngu skapað sér sess í bókmenntasögunni og er talin meðal bestu bóka sem skrifaðar hafa verið.
Kindle / Epub / HTML + myndir (zip) / Texti
Ævintýri og sögur H.C. Andersen eru hluti af menningarvitund Vesturlanda. Vísanir í sögurnar auðga mál okkar. Við værum til að mynda fátækari ef við gætum ekki sagt að keisarinn sé ekki neinum fötum með vissu um að áheyrendur skildu hvað við ættum við. Hér er safnað saman þýðingum Steingríms Thorsteinssonar á þessum sögum.
Kindle (öll þrjú bindin í einu) / Epub (öll þrjú bindin í einu) / HTML + myndir (zip) / Textaskjal Halda áfram að lesa
Ævintýri og sögur H.C. Andersen eru hluti af menningarvitund Vesturlanda. Vísanir í sögurnar auðga mál okkar. Við værum til að mynda fátækari ef við gætum ekki sagt að keisarinn sé ekki neinum fötum með vissu um að áheyrendur skildu hvað við ættum við. Hér er safnað saman þýðingum Steingríms Thorsteinssonar á þessum sögum.
Kindle (öll þrjú bindin í einu) / Epub (öll þrjú bindin í einu) / HTML + myndir (zip) / Textaskjal
Í þessu bindi er að finna sögurnar: Hafmeyjan litla, Eldfærin, Förunauturinn, Brellni drengurinn, Murusóleyin, Rósarálfurinn, Ljóti andarunginn, Óli Lokbrá, Flibbinn, Engillinn, Litla stúlkan með eldspýturnar, Klukkan, Grenitréð, Vatnsdropinn, Paradísargarðurinn, Næturgalinn.
Rétt er að minna foreldra á að þetta eru ekki sögur eins og við finnum í dauðhreinsuðum bókum nútímans. Sumar eru hryllilegar og því er rétt að lesa þær yfir áður en þær eru lesnar fyrir börn.

Séra Ólafur Egilsson var meðal þeirra Vestmannaeyinga sem rænt var í Tyrkjaráninu. Hér lýstir hann ævintýralegri sögu sinni sem bar hann frá Vestmannaeyjum til Algeirsborgar, þaðan til Danmerkur með viðkomu í ýmsum Evrópulöndum og síðan aftur heim á ný. Á köflum er sagan átakanleg en einnig er hún forvitnilegt sjónarhorn Íslendings á veröld sem kom mjög svo ókunnuglega fyrir sjónum.